Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2008, Síða 6
mánudagur 29. september 20086 Fréttir
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
20 % afmælisafsláttur
af öllum hefðbundnum
myndatökum og stækkunum
í október.
Nú er um að gera að panta stax
Mynd - ljósmyndastofa í 25 ár.
MYND
Bæjarhrauni 26, Hafnarfirði
S: 565 4207 www.ljosmynd.is
Brynjólfur Þór Guðmundsson
fréttastjóri skrifar: brynjolfur@dv.is
Leigusalar íbúðarhúsnæðis eru í auknum mæli farnir að lækka húsaleigu sína eða
krefjast minni trygginga en áður. Þetta gera þeir til að eiga betra með að koma íbúð-
um sínum í útleigu. Lán til verktaka hafa ekki leitt til jafnmikils framboðs nýrra
íbúða og gert var ráð fyrir segir leigumiðlari.
LÆGRI HÚSALEIGA OG
MINNI TRYGGINGAR
Leigusalar eru farnir að lækka leigu-
verð og krefjast minni trygginga
í von um að leigja út íbúðir sínar.
Þetta hefur verið sérstaklega áber-
andi síðla sumars og núna í sept-
ember.
DV þekkir dæmi þess að leigusali
lækkaði leiguverð íbúðar um 20 þús-
und krónur, úr 100 þúsund krónum
í 80 þúsund krónur, eftir að hann
kom henni ekki út. Annar leigusali
setti sig í samband við þá sem höfðu
skoðað íbúð hans og sagðist nú
ekki krefjast fyrirframgreiðslu. Áður
hafði sami leigusali krafist bæði fyr-
irframgreiðslu og tryggingar af verð-
andi leigjanda. Slíkt er þó reyndar
ólöglegt þar sem velja þarf á milli
tryggingarforma. Þriðji leigusal-
inn sem DV hefur spurnir af lækk-
aði leiguna um 10 þúsund krónur
frá því sem hann hafði sett upp og
náði þannig samningum við leigj-
anda sinn.
leigan lækkar
Leigusali, leigjandi og starfs-
maður á leigumarkaði, sem DV hef-
ur rætt við, segja að leiguverð hafi
farið lækkandi undanfarið auk þess
sem fleiri íbúðir standi til boða nú en
áður. Þetta sé mikil breyting frá því
sem var fyrir nokkrum mánuðum.
Leiguverð hækkaði mjög mik-
ið fyrir ári. Þegar erfiðara varð að
kaupa íbúðir, færri fengu lán og verð-
bólgan fór á fleygiferð sóttu fleiri í að
leigja sér íbúð. Það leiddi til þess að
leiguverð hækkaði snöggt. Sú hækk-
un hefur þó að einhverju leyti geng-
ið til baka því eftir því sem leiguverð
hækkaði vildu fleiri leigja út íbúðir
sínar. Það varð til þess að bylta stöð-
unni á leigumarkaði. Í stað þess að
fjöldi fólks berðist um hverja íbúð
eiga leigjendur nú mun auðveldara
en áður með að velja úr íbúðum.
Til marks um hversu mikið fram-
boð af leiguhúsnæði hefur aukist má
nefna að íbúðir sem hafa verið aug-
lýstar hjá Leigulistanum eru rúmlega
þrefalt fleiri núna en þær voru í byrj-
un sumars.
ræðst af greiðslugetunni
Svanur Guðmundsson, löggiltur
leigumiðlari hjá Húsaleigu leigumiðl-
un, segir mestu breytinguna undan-
farið þá að það sé að myndast leigu-
markaður í stað fasteignamarkaðar.
Þá séu komin faglegri vinnubrögð í
þetta með tilkomu leigumiðlara sem
verðleggja hús og hafa milligöngu um
útleigu þeirra.
Svanur tekur ekki undir með öðr-
um viðmælendum DV um að mark-
aðurinn hafi breyst að miklum mun
hvað varðar verð og framboð. Hann
segir þó að leiguverð ráðist af greiðslu-
getu fólks. „Að því leyti getum við sagt
að leiguverðið sé að lækka.“ Hann
segir aftur á móti að það vanti meira
af leiguhúsnæði á lista. Þannig geti
verið erfitt að finna minni íbúðir fyrir
ungt fólk sem er að koma inn á mark-
aðinn. Hann bendir meðal annars
á að lánveitingar Íbúðalánasjóðs til
verktaka svo þeir gætu leigt út íbúðir
sem seljast ekki hafi ekki leitt til auk-
ins frambðs á leigumarkaði að neinu
ráði. Ástæðan er tvíþætt, annars vegar
að lánin dugi ekki til að verktakar sjái
sér hag í þessu og hins vegar það að
ef þeir leigja út íbúðina geta þeir ekki
selt hana sem nýja síðar.
Tvöfaldar tryggingar
Eitt af því sem leigusalar hafa
stundum gert, og brotið gegn rétti
leigjandans, er að krefjast of mik-
illa trygginga. Leigusala er heim-
ilt að krefjast fyrirframgreiðslu eða
tryggingarfjár en ekki hvors tveggja.
Krefjast má allt að þriggja mánaða
fyrirframgreiðslu en þá er uppsagn-
arfrestur líka þreföld lengd fyrir-
framgreiðslunnar – eða níu mánuðir.
Vilji leigusali fá tryggingarfé í staðinn
er það heimilt en þá má ekki krefjast
fyrirframgreiðslu húsaleigu.
„Í stað þess að fjöldi fólks berðist um hverja íbúð
eiga leigjendur nú mun auðveldara en áður með
að velja úr íbúðum.“
leiguverð á niðurleið Leigusalar og
leigjendur sem dV ræddi við finna mikinn mun
á leigumarkaði. Þeir segja af það sem áður var
þegar hægt var að krefjast hvaða upphæðar
sem er fyrir hvaða íbúð sem er. mynd sTefán
Annir hjá
lögreglunni
Aðfaranótt sunnudagsins
var afar erilsöm hjá lögregl-
unni á höfuðborgarsvæðinu.
Þrettán manns voru fluttir í
fangageymslur vegna ýmissa
brota. Má þar nefna vegna
slagsmála, óláta og ölvunar.
Nóttina þar á undan gistu tíu
manns geymslur. Ekki var um
nein stórmál að ræða.
Einnig var mikið að gera
í umferðinni en lögreglan
stöðvaði sjö ökumenn sem
grunaðir voru um að hafa
ekið undir áhrifum áfengis.
Fjögur innbrot voru framin
í borginni og var í öllum til-
vikum um innbrot í fyrirtæki
að ræða.
Ökumannslaus
árekstur
Aftanákeyrsla varð á Akra-
nesvegi laust eftir miðnætti á
laugardag með þeim afleiðing-
um að bíllinn sem ekið var á fór
út af veginum og valt. Lögreglan
á Akranesi yfirheyrði fjóra menn
af erlendum uppruna sem voru í
bílnum sem olli árekstrinum. Sú
undarlega staða kom upp að all-
ir neituðu þeir að hafa ekið bíln-
um. Yfirheyrslur stóðu í nokkurn
tíma og að lokum játaði einn á
sig brotið. Var þeim þá sleppt
úr haldi. Grunur leikur á að um
ölvun við akstur hafi verið að
ræða. Engin slys urðu á fólki.
Alvarlegt um-
ferðarslys
Alvarlegt umferðarslys
varð á Miklubraut aðfaranótt
sunnudags. Fimm manns voru
í bílnum og voru allir fluttir á
slysadeild. Þar á meðal var einn
mjög alvarlega slasaður og er
honum haldið sofandi í öndun-
arvél. Hinir eru minna slasaðir.
Slysið varð með þeim hætti að
ökumaður bílsins missti stjórn á
honum með þeim afleiðingum
að bíllinn fór í gegnum stálgirð-
ingu og yfir á öfugan vegarhelm-
ing. Samkvæmt lögreglu eru til-
drög slyssins ókunn.
Árni Mathiesen fjármálaráð-
herra kynnti þingflokki Sjálfstæð-
isflokksins í síðustu viku tillögu
ríkisstjórnarinnar til fjárlaga. Ráð-
herrann gerir ráð fyrir tugmilljarða
halla, eða allt að 50 milljörðum
króna, samkvæmt heimildum DV.
Tillaga hans fór illa í marga inn-
an þingflokksins og þá sérstaklega
áframhaldandi þensla á rekstri rík-
isins þar sem ekki er gert ráð fyr-
ir að ríkið dragi saman seglin í takt
við samdrátt á hinum almenna
markaði.
Engar hugmyndir eru um að
fækka ríkisstarfsmönnum eða
skera niður rekstur ríkisins til að
mæta þeim fyrirsjáanlega sam-
drætti sem verður á næstu árum í
tekjum ríkisins.
Þykja fjárlagahugmyndir ráð-
herrans vera að þessu leyti veru-
leikafirrtar. Eftir því sem DV kemst
næst er enginn samdráttur áform-
aður í samgöngumálum og ætlun-
in að halda þar fullri ferð.
Fjármálaráðherra mun kynna
Alþingi tillögu sína í vikunni.
Heimildir DV herma að hörð átök
innan fjárlaganefndar liggi í loftinu
og fjármálaráðherra megi ekki síst
eiga von á mótstöðu úr röðum eig-
in flokksmanna.
árni mathiesen
Fjármálaráðherra hyggst
stefna ríkissjóði í
tugmilljarða halla.
Sjálfstæðismenn óánægðir með fyrirhugaðan og háan fjárlagahalla:
Átök liggja í loftinu