Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2008, Blaðsíða 13
mánudagur 29. september 2008 13Fréttir
Miza til bjargar afríku
Þegar veiðiþjófar vopnaðir byssum
réðust inn á verndarsvæðið Virunga
National Park í Kongó í fyrra og
slátruðu þar tíu fjallagórillum í út-
rýmingarhættu, gerðu starfsmenn
svæðisins sér litlar vonir um að
finna þar nokkra eftirlifendur. Miza
var ein af ungum górillanna sem
taldir voru af. Hún hafði hangið á
baki móður sinnar þegar vopnuðu
veiðiþjófarnir slátruðu öllu kviku,
þar á meðal móður hennar.
Nokkrir dagar liðu þangað til
faðir Mizu, gömul silfurbaksgórilla
sem ber nafnið Kabirizi, fann hana
ráfa aleina í skóginum og færði
hana heim þar sem hún er nú alin
upp ásamt eldri systur sinni.
Innblástur barnabókar
Þessi átakanlega saga af ör-
lögum Mizu, sem sat á baki móð-
ur sinnar þegar veiðiþjófar drápu
hana, fangaði athygli bandaríska
barnabókahöfundarins Craig Hat-
koff. Sá tók sig til ásamt dætrum
sínum, níu og þrettán ára, og skrif-
aði bók um Mizu litlu. Nú vonar
Hatkoff að nýja bókin, „Looking
for Miza...“ muni hjálpa til við að
beina kastljósinu að ástandi þeirra
380 fjallagórilla sem lifa í Kongó og
fólksins sem hættir lífi sínu við að
verja þær.
Bókin miðlar ástandinu
Kongó er eitt af stærstu löndum
Afríku en hefur í rúman áratug liðið
fyrir stríð og mikla neyð. Bók Hatk-
offs er engu síður fyrir börn, og hann
stígur því létt til jarðar þegar kemur
að því að lýsa óreiðunni í Kongó og
morðinu á móður Mizu. Hún er til að
mynda ekki drepin í bókinni heldur
hverfur hún bara. Og Hatkoff full-
yrðir að með því að búa til tengingu í
gegnum górillurnar eins og Mizu geti
hann beint athygli að þeim vanda-
málum sem herja á Kongó.
„Þetta snýst ekki bara um að
bjarga górillunum,“ segir Hatkoff.
„Við verðum að bjarga fólkinu í
Kongó líka. Það þarf hreint vatn,
mat, menntun og heilbrigðisþjón-
ustu. Þetta eru flókin mál sem samt
er hægt að leysa.“
Bók Hatkoffs og dætra hans um
Mizu litlu verður miðpunkturinn
í nýrri herferð sem fór af stað um
helgina í New York og miðast að
því að auka meðvitund fólks um
neyðarástand vissra héraða í Afr-
íku.
SIgurður MIkael jónSSon
blaðamaður skrifar: mikael@dv.is
Górilluunginn Miza, sem lifði af árás veiðiþjófa í Kongó, fær nýtt hlutverk í gegnum barnabók eftir höfundinn
Craig Hatkoff. Höfundurinn á sér þá ósk heitasta að bókin um raunir Mizu beini athygli umheimsins að því
neyðarástandi sem ríkir í landinu.
Sameiningartákn heillar
þjóðar mizu litlu er ætlað
stærra hlutverk en hana grunar.
4you.is l Digranesvegi 10 l 200 Kópavogur l Sími 564 2030 690 2020
Vöruflutningar frá Kína
Erum með skrifstofur og fagfólk í Kína sem
aðstoða fyrirtæki,stofnanir, gistiheimili, hótel og
byggingaverktaka að kaupa vörur þaðan.
Fylgst er með allri framleiðslu og
gæðaeftirlit áður en varan er sett í gám.
Getum fundið allar vörur sem hugurinn girnist
Vilt þú versla vörur frá Kína á ódýrari verði?
H
ild
ur
H
lín
J
ón
sd
ót
ti
r
/ h
ild
ur
@
d
v.
is