Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2008, Síða 15
mánudagur 29. september 2008 15Ættfræði
40 ÁRA Í DAG
30 ára
n Radoslaw Roszkowski Víkurási 8, Reykjavík
n Ingibjörg Ósk Þorvaldsdóttir Hamratúni 34,
Akureyri
n Vignir Örn Arnarson Kirkjuvöllum 3, Hafnarfjörður
n Tinna Kristjánsdóttir Framnesvegi 24, Reykjavík
n Eva Hrönn Jónsdóttir Klapparhlíð 22, Mosfellsbær
n Linda Hrönn Sigfúsdóttir Þórunnarstræti 87,
Akureyri
n Héðinn Jónsson Kaplaskjólsvegi 65, Reykjavík
n Ingvi Þór Guðmundsson Lynghaga 7, Reykjavík
n Steingrímur Randver Eyjólfsson Skútagili 3,
Akureyri
n Brynjar Emil Friðriksson Tjarnabakka 14, Njarðvík
n Margrét Friðriksdóttir Holtagötu 15a, Selfoss
n Sveindís Ýr Sveinsdóttir Njálsgötu 12, Reykjavík
n Dóra Birna Ævarsdóttir Þórðarsveig 2, Reykjavík
n Kristinn Karl Jónsson Sólbraut 2, Seltjarnarnes
40 ára
n Boguslawa Barbara Wisniewska Fjarðarbraut
57, Stöðvarfjörður
n Azam Khan Hábergi 7, Reykjavík
n Friðrik Már Gunnarsson Byggðarholti 31,
Mosfellsbær
n Ívar Jón Arnarson Reynihvammi 14, Kópavogur
n Steinunn Þorsteinsdóttir Álfaskeiði 94,
Hafnarfjörður
n Dóróthea H Grétarsdóttir Lómasölum 3,
Kópavogur
n Ásta Finnbogadóttir Dalhúsum 93, Reykjavík
n Hrefna Valdís Guðmundsdóttir Faxastíg 14,
Vestmannaeyjar
n Sigþór Einarsson Tjarnarstíg 22, Seltjarnarnes
n Bryndís Lúðvíksdóttir Vallargötu 23, Reykjanes-
bær
50 ára
n Júnía Vald Jia Gnípuheiði 17, Kópavogur
n Guðlaugur Ágústsson Hólmgarði 42, Reykjavík
n Hjálmar Kristjánsson Reyrengi 31, Reykjavík
n Björg Jóhannesdóttir Bústaðavegi 77, Reykjavík
n Hilmar Ægir Þórarinsson Tinnubergi 6, Hafnar-
fjörður
n Þorgeir Ver Halldórsson Elliðavöllum 14,
Reykjanesbær
n Óskar Björgvinsson Drafnarstíg 7, Reykjavík
n Guðrún Ásta Björgvinsdóttir Steinahlíð 8,
Hafnarfjörður
n Íris Ólöf Sigurjónsdóttir Laugasteini, Dalvík
n Guðjón Guðmundsson Hlíð, Reykholt
60 ára
n Ronald David Giles Breiðbraut 669, Reykjanesbær
n Margrét Friðbergsdóttir Lækjarhvammi 7,
Hafnarfjörður
n Erla Þorsteinsdóttir Blómvallagötu 2, Reykjavík
n Sóley Vilhjálmsdóttir Arnórshúsi, Króksfjarðarnes
n Jón E Árnason Hjallabraut 2, Hafnarfjörður
n Guðbjörg Hulda Árnadóttir Glósölum 7,
Kópavogur
n Halldór Kristinsson Sóltúni 8, Reykjavík
70 ára
n Svavar J Árnason Brautarholti 3, Selfoss
n Sveinn Þórarinsson Krossdal, Kópasker
n Frúgit S Thoroddsen Fífumóa 5a, Njarðvík
n Arndís Pálsdóttir Áshamri 3a, Vestmannaeyjar
75 ára
n Geir Helgason Borgarstíg 2, Fáskrúðsfjörður
n Þorsteinn J Þórhallsson Skipasundi 85, Reykjavík
n Jósep Þóroddsson Hólavegi 29, Sauðárkrókur
80 ára
n Guðni Sigfússon Arahólum 4, Reykjavík
n Halldór Viðar Pétursson Hraunvangi 7,
Hafnarfjörður
n Einar Magnússon Skúlagötu 40, Reykjavík
85 ára
n Guðríður Matthíasdóttir Sóltúni 28, Reykjavík
n Regína Kjerulf Hjallaseli 55, Reykjavík
n Guðný Gísladóttir Háholti 16, Hafnarfjörður
90 ára
n Skúli Magnússon Hveratúni, Selfoss
n Geirþrúður Brynjólfsdóttir Austurbyggð 17,
Akureyri
95 ára
n Jóna Ásta Sigurðardóttir Bergþórugötu 43b,
Reykjavík
n Ingileif Guðmundsdóttir Holtsgötu 18,
Hafnarfjörður
Birgir Þórarinsson
tÓnLIstarmaÐur Í gus gus
Birgir fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp í Álfheimunum og Breið-
holtinu. Hann var í Fellaskóla og
Hólabrekkuskóla, stundaði nám
við MS og lauk þaðan stúdentsprófi
1988, stundaði nám í tölvunarfræði
við HÍ og lauk þaðan prófum 1994.
Birgir vann við malbikun á Kefla-
víkurflugvelli, var járnamaður í vél-
smiðju og starfaði við landmælingar
á Keflavíkurflugvelli á unglings- og
skólaárum. Birgir starfaði við Reikni-
stofu bankanna 1992-94 og starf-
aði síðan hjá Os í eitt ár. Hann er nú
tölvunarfræðingur hjá Glitni.
Birgir hóf að búa til elektróníska
tónlist 1986 og er enn að því. Hann
var meðlimur í hljómsveitinni T-
World 1991-95 og hefur verið með-
limur í hljómsveitinni Gus Gus frá
1995.
Fjölskylda
Eiginkona Birgis er Sigrún Daní-
elsdóttir, f. 24.5. 1975, sálfræðingur.
Börn Birgis og Sigrúnar eru Silja
Sóley Birgisdóttir, f. 13.5. 2000;
Rökkvi Birgisson, f. 3.9. 2004.
Systkini Birgis, sammæðra, eru
Bryndís Einarsdóttir, f. 21.3. 1975, og
Bjarki Einarsson, f. 27.2. 1982.
Systkini Birgis, samfeðra, eru
Ingunn Edda, f. 15.3. 1969; Hall-
dóra Kristín, f. 23.12. 1968; Tyrfing-
ur, f. 25.2. 1970; Björn Logi, f. 16.2.
1972; Hildur, f. 29.4. 1977 Þórhildur,
f. 23.11. 1989.
Foreldrar Birgis eru Þórarinn
Tyrfingsson, f. 20.5. 1947, yfirlækn-
ir á Vogi, og Erla M. Indriðadótt-
ir, f. 30.8. 1949, skrifstofumaður og
stuðningsfulltrúi.
Fósturfaðir Birgis sem hefur
gengið honum í föðurstað frá barn-
æsku er Einar Benjamínsson, f.
29.8. 1948, framkvæmdastjóri, son-
ur Benjamíns H.J. Eiríkssonar, hag-
fræðings og bankastjóra, og Krist-
bjargar Einarsdóttur húsmóður.
Ætt
Þórarinn er bróðir Péturs, sál-
fræðings og gítarleikara. Þórarinn er
sonur Tyrfings, húsasmíðameistara
í Reykjavík Þórarinssonar, trésmiðs
og múrara í Borgarnesi Ólafssonar,
b. á Einifelli Ólafssonar. Móðir Þór-
arins smiðs var Ólöf Sigurðardóttir,
b. á Mófellsstöðum í Skorradal Sig-
urðssonar, pr. í Vatnsfirði Þorbjarn-
arsonar, bróður Ólafs, afa Ragnhild-
ar, ömmu Bjarna Benediktssonar
forsætisráðherra og Tómasar Helga-
sonar yfirlæknis. Ólafur var einn-
ig langafi Jóns, föður Þorsteins frá
Hamri. Móðir Tyrfings var Jónína
Kristín, dóttir Jónasar, sjómanns í
Skáholti í Reykjavík Ólafssonar, og
Kristínar, systur Magnúsar „rokka-
drejara“, langafa Megasar. Kristín var
dóttir Ásbjarnar, húsmanns á Grím-
arsstöðum Magnússonar.
Móðir Þórarins læknis er Lára,
dóttir Þórðar, b. á Högnastöðum í
Þverárhlíð Jónssonar, skálds á Há-
reksstöðum, bróður Jóhanns, alþm.
í Sveinatungu. Jón var sonur Eyjólfs,
skálds í Hvammi Jóhannessonar, og
Helgu Guðmundsdóttur, b. á Sáms-
stöðum, bróður Sigurðar, afa Jóns
Helgasonar prófessors. Guðmund-
ur var sonur Guðmundar, ættföður
Háafellsættar Hjálmarssonar. Móð-
ir Láru var Gunnvör Magnúsdótt-
ir, sjómanns á Akranesi Helgason-
ar, og Guðrúnar Jónsdóttur eldra,
b. í Síðumúla Sveinssonar, bróður
Jóns yngra, afa Guðmundar Böðv-
arssonar, skálds á Kirkjubóli. Móðir
Guðrúnar var Þórdís Jónsdóttir, b.
á Tóftarhring í Hvítársíðu Jónsson-
ar, og Guðrúnar, systur Jóns, langafa
Halldórs H. Jónssonar stjórnarfor-
manns, föður Garðars arkitekts.
Erla er dóttir Indriða, málara-
meistara í Reykjavík, bróður Jóns
Skagan, pr. á Bergþórshvoli. Ind-
riði var sonur Jóns, b. á Þangskála
á Skaga Sveinssonar. Móðir Indriða
var María Jóhanna, systir Guðrúnar,
móður Bents Scheving Thorsteins-
son, fyrrv. fjármálastjóra Rafmagns-
veitna ríkisins. María Jóhanna var
dóttir Sveins, útvegsb. á Hrauni á
Skaga Jónatanssonar, b. á Þangskála
Jóntanssonar, bróður Valgerðar,
langömmu Öldu, móður Vilhjálms
Egilssonar, framkvæmdastjóra Sam-
taka atvinnulífsins. Móðir Sveins
var María Magnúsdóttir, b. á Fjalli
á Skagaströnd Jónssonar, pr. í Vest-
urhópshólum Mikaelssonar. Móðir
Magnúsar var Jóhanna Sæmunds-
dótir, pr. á Tjörn á Vatsnesi Odds-
sonar, b. á Atlastöðum í Svarfaðardal
Sæmundssonar, prófasts í Mikla-
bæ Magnússonar, b. í Bræðratungu
Sigurðssonar. Móðir Sæmundar í
Miklabæ var Þórdís (Snæfríður Ís-
landssól) Jónsdóttir, biskups á Hól-
um Vigfússonar.
Móðir Erlu er Bryndís, fyrrv.
verkstjóri í Reykjavík Jónsdóttir, b. á
Brjánsstöðum í Grímsnesi Þorkels-
sonar, b. þar Þorleifssonar. Móð-
ir Jóns var Halldóra, systir Þuríðar,
ömmu Þorgeirs Pálssonar flugmála-
stjóra. Halldóra var dóttir Péturs, b.
á Brúsastöðum í Þingvallasveit Jóns-
sonar. Móðir Bryndísar var Guðrún,
systir Kollbeins, afa Steinunnar Jó-
hannesdóttur rithöfundar. Ann-
ar bróðir Guðrúnar var Einar, faðir
Guðmundar Einarssonar, verkfræð-
ings og formanns Sálarrannsókn-
arfélagsins. Guðrún var dóttir Jó-
hannesar, b. í Eyvík Einarssonar, b.
þar Einarssonar, og Guðrúnar eldri,
systur Guðrúnar yngri, langömmu
Eyrúnar, ömmu Magnúsar Kjartans-
sonar tónlistarmanns. Guðrún var
dóttir Sigurðar, ættföður Galtaættar
Einarssonar.
Til
hAminGju
með
Afmælið!
Þórður Júlíusson, forstjóri og verk-
fræðingur, fæddist á Leirá í Borgarfirði
og ólst þar upp. Foreldrar hans voru
Júlíus Bjarnason, hreppstjóri á Leirá,
og Hallfríður Helgadóttir, kennari og
húsfreyja.
Þórður lauk stúdentsprófi frá MR
1950, lauk B.S. prófi í búvélaverkfræði
frá Oregon State College í Bandaríkj-
unum 1953 og var við verklega þjálfun
hjá International Harvester Co. í Wis-
consin í Bandaríkjunum 1953-1954.
Þórður var yfirmaður þjónustu-
deildar SÍS 1954-1957, fulltrúi forstjóra
Orklu hf. 1957-1962, framkvæmda-
stjóri þar 1962-1966, einn af stofnend-
um Fíat-umboðsins, Davíð Sigurðsson
hf. og sat í stjórn þess og var aðstoð-
arframkvæmdastjóri 1966-1980, var
stofnandi, eigandi og forstjóri heild-
verslunarinnar Tanna um árabil, keypti
byggingavöruverslunina Burstafell
og stofnaði hlutafélagið Burstafell hf.
og var forstjóri þess 1988. Þá stofnaði
hann Sútun hf. á Akranesi og var fram-
kvæmdastjóri þess fyrirtækis 1968-
1972. Auk þess gegndi Þórður ýmsum
trúnaðarstörfum í Lions- og Rotaryfé-
lögum.
Þórður var kvæntur Karen Lövdahl,
f. 28.9. 1930, húsmóður, og eignuðust
þau þrjú börn.
Þórður Júlíusson
f. 29. september 1928, d. 9. febrúar 1997
„Konan er að spá í að bjóða mér
út að borða á Hereford. Mér líst mjög
vel á það því við höfum farið einu
sinni áður þangað og þá fengum við
mjög góðan mat,“ segir Vignir Örn
Arnarson sem er þrítugur í dag. Af-
mælisveisla er svo líka á döfinni,
nánar tiltekið helgina 17. til 19. okt-
óber í sumarbústað í Brekkuskógi
sem Vignir fær leigðan í gegnum
stéttarfélag sitt, Félag iðn- og tækni-
greina.
„Ég býð svona í kringum tuttugu
manns. Ég sé fyrir mér að hafa þetta
rólegt á föstudeginum en setja svo
allt í botn á laugardagskvöldinu. Þá
grillum við kannski lambalæri fyr-
ir allan hópinn og tjúttum svo langt
fram á nótt. Menn verða væntanlega
skelþunnir á sunnudeginum.“
Vignir kveðst yfirleitt halda upp á
afmælið sitt. Þegar um „minnihátt-
ar“ afmæli er að ræða býður hann
bara fjölskyldunni, „...en þegar það
eru einhver merkisafmæli reyni ég
að hafa þetta aðeins stærra“. Vigni
líst annars bara afar vel á að kom-
ast á fertugsaldurinn og upplifir það
ekki eins og hann sé allt í einu orð-
inn „gamall“, hvað sem það svo þýð-
ir. „Nei, nei, ég er ekki orðinn það
gamall ennþá.“
Aðspurður hvort hann búist við
að fá einhverja fallega gjöf frá kon-
unni segist Vignir nú gera ráð fyrir
því. „En ég veit ekkert hvað það verð-
ur. Það getur samt verið að hún gefi
mér peninga upp í gönguskó. Ég fer
öðru hverju upp á fjall og svo hef ég
einstaka sinnum farið í rjúpu. Þá er
gott að eiga góða og vatnshelda skó.“
Vignir Örn Arnarson er þrítugur í dag.
Peningar uPP í gönguskó
Vignir Örn fer líklega út
að borða með konunni á
Hereford í kvöld.
meRkiR ÍslenDinGAR