Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2008, Page 22
mánudagur 29. september 200822 Fólkið
Orri Harðarson, tónlistarmaður,
tónlistargagnrýnandi og þýðandi
með meiru, hefur skrifað opinskáa
og afhjúpandi bók um þann samfé-
lagskima sem blasir við íslenskum
alkóhólista sem vill hætta neyslu
sinni. Bókin heitir Alkasamfélagið
og á að koma út á föstudaginn undir
merkjum Skruddu. Í kynningartexta
segir að haustið 1994 hafi Orri verið
staddur í sinni fyrstu áfengismeð-
ferð hjá SÁÁ, þá handhafi Íslensku
tónlistarverðlaunanna sem bjartasta
vonin. Framtíðin virtist þó ekki björt
og næstu þrettán árin háði Orri
langa og stranga baráttu við Bakkus
þar sem ótal áfengismeðferðir og
bindindistilraunir innan AA-samtak-
anna virtust engan endi ætla að taka.
Sjónvarpsstjarnan og fegurðar-
drottningin Ragnhildur Steinunn
Jónsdóttir er komin á nýjan BMW.
Kagginn er silfurgrár og er af gerð-
inni BMW M3. Ragnhildur hefur
verið á BMW síðustu þrjú árin og er
því að uppfæra í nýrri bíl. Það er nóg
um að vera hjá Ragnhildi þessa dag-
ana sem er á fullu gasi í upptökum
á laugardagsþættinum Gott kvöld.
Þátturinn fer í loftið seinna í vetur en
meðal þeirra sem hafa verið í upp-
tökum hjá Ragnhildi undanfarið er
Bubbi Morthens.
Uppfærir
Bimmann
málar hús í
millitíðinni
„Ég hef fengið helling af tilboð-
um,“ segir Sigfús Sigurðsson, silf-
urhafi og ein af þjóðhetjum okkar
Íslendinga, um þau atvinnutilboð
sem hann hefur fengið eftir um-
fjöllun DV um atvinnuleysi kapp-
ans. Eftir að Sigfús sneri heim eft-
ir Ólympíuleikana í Peking til þess
að leika handbolta með Val reynd-
ist erfitt fyrir hann að finna vinnu en
hann er kominn með starf til bráða-
birgða.
„Núna er ég að mála ásamt félaga
mínum. Hann bauð mér þetta þang-
að til að eitthvað betra kemur, “ seg-
ir Sigfús og er hæstánægður í máln-
ingargallanum. „Það er allt í góðu
standi. Ég er inni að mála í þessu
klikkaða veðri.“
Sigfús flutti heim í vor eftir margra
ára atvinnumennsku í handknatt-
leik erlendis. Hann sagði í viðtali
við DV á dögunum að erfitt væri að
koma undir sig fótunum en Sigfús er
enn að leita að réttu vinnunni sem
hentar honum. „Mig langar í vinnu
sem ég hef áhuga á og samhliða því
starf sem er mannsæmandi launað,“
en Sigfús þarf að reka heimili eins og
flestir Íslendingar „Ég á 13 ára strák
og þarf að halda uppi húsnæði, fæði
og slíku,“ sagði Sigfús í viðtali við DV
fyrir ekki svo löngu.
Línutröllið Sigfús er meðlimur
netsamfélagsins Facebook.com eins
og svo margir aðrir og hafa vinsæld-
ir kappans rokið upp eftir velgengni
íslenska landsliðsins á Ólympíuleik-
unum í Peking. Fyrir leikana voru
vinsældir Sigfúsar þó miklar en þá
var hann kominn með um 1.500
„vini“ á síðu sinni. Nú um rúmum
mánuði eftir leikana er Sigfús kom-
inn með hvorki meira né minna en
3.585 „vini“. Það er því óhætt að segja
að vinsældir línutröllsins góðlega
hafi aldrei verið meiri. Innan vallar
sem utan. hanna@dv.is,asgeir@dv.is
Línutröllið Sigfús Sigurðsson hefur fengið vinnu sem málari á meðan hann leitar
sér að öðru starfi. Vinsældir Sigfúsar eftir Ólympíuleikana eru miklar og hefur
hann eignast þúsundir aðdáenda innan netsamfélagsins Facebook á mettíma.
„Ég reyni að lesa upp úr henni
á hverjum degi og fólk er farið að
koma að úr öðrum deildum til að
hlýða á lesturinn,“ segir Kolbeinn
Óttarsson Proppé, blaðamaður á
Fréttablaðinu.
Kolbeinn hefur tekið upp á því
að lesa valda kafla úr Kynlífsbiblí-
unni sem nýverið kom út en það
er samstarfsmaður hans, Berg-
steinn Sigurðsson, sem þýddi
bókina.
„Það eru þarna hlutir eins
stríðsvagninn og að þurrka spjót-
ið sem bráðnauðsynlegt er að
vita,“ segir Kolbeinn glettinn
en upplestrar hans hafa vakið
mikla lukku á ritstjórninni. „Það
er munaður að hafa svona fjöl-
breytta blaðamenn hér sem geta
þýtt kynlífsbiblíur með annarri og
skrifað fréttir með hinni.“
Kolbeinn segir Bergstein hafa
góðan húmor og því fari þetta allt
vel fram. „Bergsteinn er einhver
mesti húmoristi sem ég þekki
svo það er lítið mál. Hann þykist
stundum vera fúll en hann er það
nú ekki. Hann bendir mér meira
að segja á góða kafla til að lesa.“
Kolbeinn segist jafnvel sjá fyrir
sér að upplestrar hans muni einn
daginn ná út fyrir ritstjórnina.
„Ég sé fyrir mér að ég og Berg-
steinn munum ferðast á vegum
forlagsins um landið og lesa upp
í saumaklúbbum og á konu- og
karlakvöldum víðs vegar.“
asgeir@dv.is
les KynlífsBiBlíUna
RitStjÓRn FRéttabLaðSinS hLýðiR á uppLeStuR KolbeinS ProPPé:
Kolbeinn Óttarsson Proppé
Les úr biblíunni fyrir bergstein
þýðanda og kollega sína.
SigfúS SigurðSSon:
Orri
Opnar sig
mynd Gunnar Gun
narSSon
Sigfús Sigurðsson Hefur
fengið vinnu sem málari.
Feðgarnir sigfús vill geta
boðið syni sínum upp á allt
það besta. mynd SiGtryGGur