Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2008, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2008, Page 2
Einkaþotuþjónustan Icejet verður fyrir talsverðum samdrætti en forsvarsmenn hennar líta björtum augum til fram- tíðar. Framkvæmdastjóri Icejet, Jón Ingi Jónsson, segir fyrirtæk- ið vera að hasla sér völl í Bretlandi og stefni meðal annars á Rúss- land í þeim efnum. Alls voru átta einkaþotur hér á landi fyrir ári en þar er meðal annars einkaþota Bakkavararbræðra sem kostar fjóran og hálfan milljarð. Þá er þota auðkýfings einnig til sölu. föstudagur 10. október 20082 Fréttir Þetta helst - þessar fréttir bar hæst í vikunni DV greindi frá því á miðviku- daginn að Geir H. Haarde færi allra sinna ferða með tvo líf- verði úr sérsveit ríkislögreglu- stjóra. Af þessum viðbúnaði mátti draga þá ályktun að líf og limir forsætisráðherra væru talin í hættu. Sérþjálfaðir lífverðirnir elta ráðherra- bifreið Geirs á ómerktum bifreið- um til að vekja ekki athygli. Fylgst er með öllum mannaferðum í kringum Stjórnarráð Íslands og sérsveitin köll- uð út ef einhverjir þykja grunsamleg- ir. Ekki hefur áður þótt ástæða til að vernda forsætisráðherra Íslands eða aðra ráðherra ríkisstjórnarinnar á götum úti en vegna ástandsins í fjár- málaheiminum þykir mönnum nú nauðsynlegt að vernda Geir. Sam- kvæmt heimildum DV var Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra líka með lífverði en afþakkaði þá eftir tvo daga. Lífverðir Geirs RíkisstjóRn BuBBa F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð dv.isbesta rannsóknarblaðamennska ársins miðvikudagur 8. október 2008 dagblaðið vísir 186. tbl. – 98. árg. – verð kr. 295 sérsveit Björns Bjarnasonar verndar ráðherra: Viðbragð við óánægju almenningsFylgja ráðherranum heim að dyrumViðskiptaráðherra afþakkaði lífverði Bubbi Morthens íhugar framboð LeituM ásjáR hjá ógnandi RússuM„íslensk stjórnvöld munu fylgjast grannt með umsvifum Rússa,“ sagði geir h. haarde fyrir mánuði BíLaLánuM ekki BjaRgað FRéttiR FjáRMáLakeRFiReistá sandi Geir með lifverði eVRan á 130 tiL 244 kRónuR Endalok ferðalaga? neytenduR FRéttiR m YN d si g tr Yg g u r Fréttavefurinn DV.is greindi frá því fyrstur allra miðla að Kaupþing væri fallið í forsjá Fjár- málaeftirlitsins seint á miðvikudagskvöld. Þá hafði DV traustar heimildir fyrir því að stjórnendur Kaupþings myndu óska eftir því við Fjármálaeftir- litið að það tæki bankann yfir þá um nóttina. Það gekk eftir og viðmælendur DV töldu orsök- ina fyrir fallinu fyrst og fremst að finna í orðum Davíðs Oddssonar í Kastljósi á þriðjudagskvöld. DV.is hafði áður verið fyrstur með fréttir af yfirtöku FME á Landsbankanum og Glitni kvöldin á und- an. Fall Kaupþings er þrátt fyrir hin stóráföllin það alvarlegasta og eftir að Kaupþing komst í þrot urðu áhyggjur af því að gjaldþrot blasti við íslensku þjóðarbúi raunverulegar Davíð feLLDi kaupþinG fimmtudagur 9. október 20088 Fréttir Athugun á samskiptum breskra og íslenskra ráðamanna undanfarna daga leiðir í ljós að ekkert er þar að finna um að íslenska ríkið hafi ekki ætlað að ábyrgjast innistæður breskra sparifjáreigenda í íslensk- um bönkum í Bretlandi. Ljóst þyk- ir því að reiði bresku ráðherranna í fjölmiðlum í gær átti rætur sínar í ummælum Davíðs Oddssonar, for- manns bankastjórnar Seðlabank- ans, í Kastljósþætti Ríkisútvarps- ins í fyrrakvöld. Leiða má líkur að því að ummælin hafi leitt til hastar- legrar greiðslustöðvunar íslensku bankanna í gærmorgun og afskipta breska fjármálaeftirlitsins af þeim. Jafnframt að matsfyrirtæk- ið Moody‘s hafi lækkað lánshæfismat íslenska ríkisins um heilan flokk, úr AA1 í A1, en slíkt hrap er einsdæmi. Ísland í skotlínu Bretlands Alasdair Darling, fjár- málaráðherra Bretlands, sagði í breskum fjölmiðl- um í gærmorgun að íslensk stjórn- völd hefðu lýst því yfir deginum áður að ís- lenska ríkið hygðist ekki ábyrgjast inni- stæðurnar hjá íslensku bönkunum þar í landi. Gordon Brown forsæt- isráðherra hótaði síðan að lögsækja íslenska ríkið vegna málsins en eign breskra sparifjáreigenda í íslensk- um bönkum ytra gæti numið um 500 milljörðum króna. Athygli vakti að Geir H. Haar- de forsætisráðherra frestaði blaða- mannafundi sem boðaður hafði verið klukkan ellefu í gærmorgun til klukkan fjögur síðdegis, en þannig gafst svigrúm til þess að reyna að bæta samskipti þjóðanna og leið- rétta misskilning eða misvísandi upplýsingar. Ágreiningur landanna vakti gíf- urlega athygli og var blaðamanna- fundurinn síðdegis í gær þéttsetinn erlendum blaða- og fréttamönn- um. Af orð- um Geirs mátti ráða að tekist hefði að slökkva elda. Hann lýsti því að mað- ur hefði gengið undir manns hönd til að bæta samskiptin og sagðist meta mikils að bresk stjórnvöld ætl- uðu að tryggja innistæður. Góðar líkur væru á að eignir Landsbank- ans stæðu undir innistæðum Breta í Icesave. „Ríkisstjórnin er staðráðin í að láta þetta ekki skyggja á vináttu Íslands og Bretlands.“ Böndin berast að Davíð Samkvæmt óyggjandi heimild- um DV er ekkert í samskiptum ís- lenskra og breskra ráðherra undan- farna daga sem gefur tilefni til svo harðra viðbragða sem Darling og Brown viðhöfðu í breskum fjölmiðl- um í gær. Samskipti ráðamanna eru skrifuð niður og unnt að bera þau saman. Eftir því sem næst verður komist var í gær farið gaumgæfilega yfir samtöl ráðamanna undanfarna daga án þess að nokkurt tilefni fynd- ist til hastarlegra viðbragða bresku ráðherranna. Þetta kann líka að varpa ljósi á hversu vel ráðherr- um beggja landanna gekk að ná sáttum þegar leið á daginn, áður en blaðamannafundur forsætis- og viðskiptaráðherra var hald- inn síðdegis. Fullvíst má því vera að ummælin um að íslenska rík- ið ætlaði ekki að ábyrgj- ast neitt eru komin úr Kastljósþætti RÚV í fyrra- kvöld þar sem Davíð Oddsson seðlabankastjóri fjallaði um emb- ættisverk sín. Þar sagði Davíð með- al annars: „Við tökum þessa harka- legu ákvörðun að segja: Við ætlum ekki að borga þessar erlendu skuld- ir bankanna.“ Davíð sagði einnig að eigið fé bankanna yrði notað til að mæta skuldbindingum erlend- is en „erlendu kröfuhafarnir munu fá fimm, tíu, fimmtán prósent upp í sínar kröfur. Því miður.“ Og enn- fremur: „Við erum að ákveða að við ætlum ekki að borga erlendar skuldir óreiðumanna.“ Lánshæfi fellur „Áhrif þessara ummæla sjást gleggst í því að Moody‘s lækkaði umsvifalaust lánshæfismat íslenska ríkisins um heilan flokk, úr AA1 í A1, sem er meiri lækkun matsfyrirtækis en við höfum nokkru sinni fyrr staðið frammi fyrir,“ segir Ólafur Ísleifsson hagfræðingur. „Þetta sýnir hvílík- an óhemjuskaða ógætileg ummæli ráðamanna geta valdið. Segja má að ummælin hafi kippt teppinu undan því litla sem eftir var af íslenska fjár- málageiranum,“ segir Ólafur. Skaðræði fyrir bankana Athygli vakti að sænski seðla- bankinn veitti Kaupþingi í Sví- þjóð jafnvirði 90 milljarða króna lán í gær. Það er liður í því að auka stöðugleika sænska bankakerfisins að því er fram kom í máli Stefans Ingves seðlabankastjóra Svíþjóð- ar í sænskum fjöllmiðlum. Stefan sagði að Kaupþing væri lítill banki á sænskan mælikvarða sem ætti um sárt að binda vegna ástandsins á íslenskum fjármálamarkaði. „Það er því mikilvægt að við liðsinnum þessum banka hið bráðasta með þeim hætti að vandi Kaupþings grafi ekki um sig í sænsku fjármála- lífi.“ Á sama tíma er að sjá sem ís- lenski seðlabankastjórinn hafi graf- ið undan starfsemi Kaupþings í Bretlandi og truflað aðgerðir ríkis- stjórnarinnar með ummælum sín- um í Kastljósi í fyrrakvöld. „Það hlýtur að skaða bank- ana þegar seðlabankastjóri í við- komandi landi talar um banka og stjórnendur þeirra eins og gert var í Kastljósþætti sjónvarpsins í fyrra- kvöld,“ segir Lúðvík Bergvinsson, þingflokksformaður Samfylkingar- innar. Davíðs Oddssonar davíð talaði kaupþing í ka Jóhann haukSSon blaðamaður skrifar: johannh@dv.is Óttast er að Davíð hafi með orðum sínum kippt teppinu undan því litla sem eftir var af ís- lenska fjármálageiranum. Vík milli vina davíð oddsson virðist með orðum sínum hafa hleypt öllu í uppnám í bretlandi með ófyrirsjáanlegum afleiðing- um fyrir kaupþing og íslenska fjármálagei r- ann. geir H. Haarde tókst þó að róa gordo n brown, forsætisráðherra bretlands, fyrir blaðamannfund sinn í iðnó í gær.Davíð oddsson „ Við ætlum ekki að borga þessar erlendu skuldir bankanna,“ sagði hann í kastljósi og virðist með orðum sínu m hafa hleypt öllu í bál og brand. ólafur Ísleifsson hagfræðingur Segir frammistöðu davíðs í kastljósi sýna hvílíkan óhemjuskaða ógætileg ummæli ráðamanna geta valdið. 2 Kröfur um brottrekstur seðlabankastjóranna hafa aukist eftir því sem liðið hefur á vikuna og íslenskt efnahagslíf hefur sokkið dýpra í öldudal fjármála- kreppunnar. Hagfræðingarnir Jón Daníelsson og Þorvaldur Gylfa- son sögðu í DV á mánudaginn að það myndi styrkja íslenskt efna- hagslíf ef skipt yrði um banka- stjórn Seðlabankans. Hávaxta- stefnan og lækkun bindiskyldu bankanna þóttu hafa verið mis- ráðnar og þjóðnýting Glitnis án samráðs við helstu hagfræðinga bankans leiddi til hruns íslensku krónunnar. Sérfræðingar erlendis og innanlands hafa fylgst agndofa með aðgerðum Seðlabankans og hrista höfuðið yfir hverju axarskaft- inu á fætur öðru. Þorvaldur sagði við DV að gerræðisleg aðferð við að þjóðnýta Glitni væri alvarleg brottrekstrarsök. þeir réðu ferðinni F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð dv.isbesta rannsóknarblaðamennska ársins mánudagur 6. október 2008 dagblaðið vísir 184. tbl. – 98. árg. – verð kr. 295 SeðlabankaStjórarnir axli ábyrgð: Þeir réðu ferðinni Stöðug fundahöld til að bjarga málum fólkSkorar á Skjá einn lífróður íSlenSku þjóðarinnar Glitnismynd- bandið hvarf Mætti ekki hjá Sáá fólk fréttir neytendur nóg til af kjöti fréttir Morðtól í tíSku „lúxushvíldarheimili fyrir afdankaða stjórnmálamenn”kostar á þriðja hundrað milljóna að segja þeim uppSjö mistök bankastjóra Seðlabankans 14,5% 20% 12,7% 13,3% 11,8% 12,3% Fatlaður söngfugl sárreiður fréttir 3 ,,Eitt af því mikilvæg- ara sem við gerum er að koma til bjargar skuld- ugu fólki. Íbúðalánasjóð- ur mun fá takmarkalausa heimild til að kaupa upp öll veðlán sem tengd eru húsnæð- iskaupum,“ sagði Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra á þriðjudag spurður um örlög fólksins í landinu sem tekið hef- ur húsnæðislán tengd erlendri mynt og horfir nú upp á að eiga enga möguleika á því að standa undir afborgunum sem hafa hækkað í hlutfalli við fall krón- unnar. Björgvin sagði að þau lán sem um ræðir verði tekin inn í Íbúðalánasjóð sem sam- kvæmt heimild muni lækka þau til samræmis við það gengi sem var þegar lánið var tekið. ,,Þannig munum við koma til móts við þá sem skulda. Að auki munu vera heimildir til að veita skuldafresti fyrir þá sem eiga í erfiðleikum.“ björGum skuLDurum F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð dv.is besta rannsóknarblaðamennska ár sinsþriðjud agur 7. október 2008 dagblaðið vísir 185. tbl. – 98. árg. – verð kr. 295 Dagurinn í Dag verður erfiður: fólk Vill Davíð í endurhæfingu Hollur matur Hækkar mest fréttir fréttir Gréta Morthens söng með föður sínum „Þjóðin horfist nú í augu við skelfilegar aflei ðingar“ Hrikalegar verðHækkanir yfirvofandi Bubbi stoltur af dótturinni neytendur Hannes var rétt að byrja fréttir eining evrópu brostin Skuldurum verður bjargað „sláum skjaldborg um hag almennings,“ segir björgvin g. sigurðsson erlendu lánin verða yfirtekin og lækkuð verðtryggð lán snarhækka eftir gærdaginn 4 hitt málið Háklassaflugfélagið Icejet, sem hefur boðið upp á einkaþotuflug undan- farin ár, hyggst hasla sér völl í Bret- landi eftir stórfelldan samdrátt á Ís- landi í einkaþotuviðskiptum. „Það hefur mikið breyst,“ segir Jón Ingi Jónsson, framkvæmdastjóri Ice- jet, og lítur björtum augum til fram- tíðar á krepputímum en auk þess að vera með þotur í Bretlandi stefnir fyr- irtækið á landvinninga meðal annars í Rússlandi. Alls eru átta einkaþotur í eigu ein- staklinga á Íslandi en meðal þeirra er glæsileg fjögurra milljarða Gulf- stream-þota Bakkavararbræðranna Lýðs og Ágústar Guðmundssona sem áttu meðal annars í Kaupþingi. Ráðamenn á einkaþotum Einhver mesti holdgervingur góð- æristíma Íslendinga voru tíðar ferð- ir einstaklinga og ráðamanna fyr- irtækja með einkaþotum. Það hafa ekki aðeins auðmenn ferðast með hinum þægilega og glæsilega farkosti heldur var það umdeilt þegar forsæt- isráðherra Íslands, Geir H. Haarde, og utanríkisráðherrann, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, flugu til Búdapest á ráðstefnu í apríl fyrr á árinu. Þá fékkst kostnaðurinn ekki uppgefinn hjá forsætisráðuneytinu. En nú eru breyttir tímar, mikill samdráttur er í einkaþotuþjónustu hér á landi auk þess sem auðkýfingar reyna að selja þotur sínar samkvæmt heimildum DV. Breyttar aðstæður „Það hefur hægst á síðustu vikur,“ segir Jón Ingi um afleiðingar efna- hagslegu hamfaranna á einkaþotu- þjónustuna hér á landi undanfarn- ar vikur. Viðskiptavinir fyrirtækisins voru helst fyrirtæki og einstaklingar en sjálfur vildi hann ekki gefa upp einstaka viðskiptavini þegar hann var spurður hvort ríkisvæðing bank- anna hefði haft dramatísk áhrif á rekstur félagsins. Aðspurður segir hann ástandið á einkaþotuþjónustu- markaði einnig hafa breyst víðar, þá bæði í Evrópu og vestan hafs enda kreppan farið eins og eldur um sinu um gjörvallan heiminn þó svo Ísland standi tæpast sé tekið mið af erlend- um viðskiptafréttum. Stefna á Rússland „Áhrifin á okkur eru slík að við erum búnir að hasla okkur völl í Bretlandi og höldum vélum þar úti og höldum áfram að sækja inn á önnur mið,“ segir Jón Ingi sem deyr ekki ráðalaus í því svartnætti sem virðist steðja að íslensku efnahags- lífi. Hann segir hluta af flugvélaflota Icejet þegar kominn til Bretlands en vélarnar eru á Heathrow í London. Hann segir að fyrirtækið hafi und- irbúið farveginn í talsverðan tíma erlendis og til að mynda hafa þeir haft flugvélar og veitt þjónustu í Bretlandi síðan á síðasta ári. Hann segir að fyrirtækið hyggi á frekari landvinninga og nefnir þar meðal annars Rússland en svo heppilega vill til fyrir Icejet að íslenska rík- ið ætlar að freista þess að fá fimm hundruð milljónir evra lánaðar frá birninum í austri. Þotur til sölu Fyrir ári voru átta einkaþotur hér á landi í einkaeign en samkvæmt heimildum er að minnsta kosti ein þota á sölu og hefur verið í talsverð- an tíma. Um er að ræða þotu sem er í eigu Hannesar Smárasonar auð- manns en hann er staddur í Bret- landi núna. Þá má geta þess að Bakkavarar- bræður eiga glæsilega Gulfstream V- þotu sem kostar í dag fjóra og hálf- an milljarð. Þá á Björgólfur Thor Björgólfsson eina glæsilegustu þotu landsins. Ekki er ljóst hvernig sendinefnd á vegum Seðlabankans mun fara til Rússlands á fund þarlendra yfirvalda vegna hugsanlegs láns, en Icejet gef- ur ekkert upp um viðskiptavini sína. Icejet fer í kreppuútrás „Áhrifin á okkur eru slík að við erum búnir að hasla okkur völl í Bret- landi og höldum vél- um þar úti og höldum áfram að sækja inn á önnur mið.“ valuR gRettISSon blaðamaður skrifar: valur@dv.is glæsileg þota ein af þotum sem eru í einkaeigu er glæsileg þota bakkavar- arbræðra sem kostar fjóra og hálfan milljarð króna. Heathrow Icejet haslar sér völl í bretlandi og er með hluta af flugvélaflota sínum á flugvellinum í London.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.