Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2008, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2008, Blaðsíða 28
HIN HLIÐIN Langar að koma við hárið á Einstein Nafn og aldur? „Magnús Guðmundsson, 27 ára.“ Atvinna? „Leikari og hárgreiðslumaður.“ Hjúskaparstaða? „Í sambúð.“ Fjöldi barna? „Núll.“ Áttu gæludýr? „Ég á einn þriðja í gullfiski.“ Hvaða tónleika fórst þú á síðast? „Ég man það ekki, af hverju spyrðu?“ Hefur þú komist í kast við lögin? „Mín sakaskrá er algjörlega hrein á Íslandi.“ Hver er uppáhaldsflíkin þín og af hverju? „Ég á ekki uppáhaldsflík en ég á þrjú uppáhaldsfatamerki; Moods of Norway, Skunk funk og Mustang.“ Hefur þú farið í megrun? „Af hverju? Finnst þér ég þurfa þess?“ Hefur þú tekið þátt í skipu- lögðum mótmælum? „Nei, ég svaf yfir mig.“ Trúir þú á framhaldslíf? „Ég lærði í leiklistarskólanum að vera í núinu, það er frábær staður að vera á svo að hugsa um framhaldslíf núna finnst mér svolítið að vera að fara fram úr sér.“ Hvaða lag skammast þú þín mest fyrir að hafa haldið upp á? „Ég er með mjög undarlegan tónlistarsmekk en ég skamm- ast mín alls ekki fyrir hann.“ Til hvers hlakkar þú núna? „Að frumsýna Fólkið í blokk- inni í Borgarleikhúsinu, þessi sýning er klárlega málið.“ Afrek vikunnar? „Það er án efa þegar ég slökkti á logandi bakka fullum af dísilolíu með slökkvitæki á brunaæfingu á þriðjudaginn, ég var hetja í fimm sekúndur eða þangað til slökkviliðsmað- urinn kveikti í honum aftur og rétti næsta tækið.“ Hefur þú látið spá fyrir þér? „Nei, en það spáði einu sinni kona fyrir mér í leyfisleysi. Hún hafði rétt fyrir sér.“ Spilar þú á hljóðfæri? „Já, ég er trommuleikari en ég spila líka á flest hljóðfæri nema túpu.“ Styður þú ríkisstjórnina? „Eru ekki allir komnir með nóg af þessu? Ég ætla að hlífa les- andanum og segja pass.“ Hvað er mikilvægast í lífinu? „Það er einfaldlega að hafa gam- an af því.“ Hvaða fræga einstakling myndir þú helst vilja hitta og af hverju? „Einstein, mig langar svo að koma við hárið á honum.“ Ertu með tattú? „Já, ekki að þér lesandi góður líði betur að vita það eða hvern- ig það er eða hvað það táknar.“ Hefur þú ort ljóð? „Já, ég er mikill ljóðaunnandi, ég les ljóðin mín oft.“ Hverjum líkist þú mest? „Manninum í speglinum.“ Ertu með einhverja leynda hæfileika? „Já, marga en ég ætla ekki að gefa það upp hér, þá eru þeir ekki leyndir lengur og ég hef ekki frá neinu að segja í næsta viðtali sem ég fer í.“ Af hverju stafar mannkyninu mest hætta? „Sama og öllum hinum dýrun- um í skóginum, mannkyninu.“ Á að leyfa önnur vímuefni en áfengi? „Nei, það á bara að vera til eitt vímuefni, ríkisvímuefni.“ Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn? „Inni í huganum á mér, þar hef ég allt sem ég girnist, þar er ég frjáls, glaður og öruggur í góðum félagsskap með sjálfum mér.“ Magnús guðMundsson leikari fer Með eitt af hlutverkunuM í söngleikn- uM fólkið í blokkinni seM fruMsýndur er í kvöld. föstudagur 10. október 200828 Helgarblað Mynd kristinn Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is Patti lagersala Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16 í 4 mism unandi á klæðumBjóðum 1 5 tungu sófa verð áður 139.000 kr.69.000,- á aðeins yfir 200 gerðir af sófum VERÐHRUN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.