Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.2008, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.2008, Blaðsíða 10
föstudagur 22. ágúst 200810 Helgarblað DV Dag of upptekinn við að horfa í spegilinn, til þess að sjá í kringum sig. Dagur svaraði því að bragði, að hann gæti að minnsta kosti horft í spegil, án þess að líta undan. Stólaleikur ungliðahreyfinganna Ungliðahreyfingar vinstri grænna og Samfylkingar, ákvaðu að mæta ekki á áhorfendapallana til að mótmæla, líkt og þeir gerðu í janúar. Um það bil 50 manns voru hins vegar samankomn- ir fyrir framan Ráðhúsið, sem er nokkuð færra en búist hafði verið við. Anna Pála Sverrissdóttir, hjá ungum jafnaðarmönnum sagði borgarstjórn hafa boðað til fund- arins á þessum tíma vitandi það að færri gætu komið í Ráðhús- ið en vildu. Ungliðahreyfingarn- ar boðuðu í sameiningu til tákn- ræns stólaleiks, með lifandi tónlist undir. Stólaleikurinn var til heið- urs vinnubrögðum í borgarstjórn Reykjavíkur, þar sem stólarnir skiptu öllu máli, en málefnin ekki. Sjálfstæðisflokkur og Framsókn- arflokkur boðuðu stuðningsmenn sína hins vegar á pallana. Dagur B. Eggertsson óskaði flokkunum til hamingju með að 30 manns hafi svarað kalli þeirra í fjölmiðlum og komið til að klappa fyrir ræðum þeirra. Sundabraut og loftslagsáætlun Samkvæmt málefnasamning- um verður strax í haust óskað eftir viðræðum við ríkisvaldið um fram- kvæmdir vegna Sundabrautar og framtíðarstasetningu innanlands- flugvallar og sem fyrr segir verði haldið áfram í skipulagsvinnu í Vatnsmýri. Þá boða flokkarnir að sérstök áhersla verði lögð á fjölg- un búsetukosta á miðsvæði, ekki síst með hliðsjón af þörfum ungs fólks. Ekkert er sagt um viðhald 19. aldar myndar Laugarvegs, eins og síðasti meirihluti lagði svo mikla áherslu á, heldur segir að lóða- úthlutanir til fólks og fyrirtækja verði haldið áfram, með sérstakri áherslu á leiðir til að auðvelda íbú- um að byggja og búa í borginni. Í umhverfismálum ber það helst að Loftslagsáæltun fyrir Reykjavík á að liggja fyrir innan árs Hanna Birna steig í pontu og hrósaði Ólafi F., Degi og Svan- dísi fyrir störf sín, athygli vakti að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fékk enga sneið af því hrósi. Hún sagði sjálfstæðismenn ekki hafa átt val um annað en að slíta samstarfinu við Ólaf F. Hún biðlaði því næst til fulltrúa allra flokka að sameig- inlega verði að koma stjórn borg- arinnar á réttan kjöl, meðal ann- ars með stórauknu samstarfi við borgarfulltrúa allra flokka. Skráning hafin í síma 5862600 og á dansskoli@dansskoliragnars.is Bjóðum upp á greiðsludreifingu dansskoli@dansskoliragnars.is - www.dansskoliragnars.is Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - S:586-2600 Breik - Salsa Ungi borgarstjórinn ugla Egilsdóttir stóð uppi sem sigurvegari og var krýnd borgarstjóri. MYND SigtrYggUr Í stólaleik ungliðahreyfingar vinstri grænna fóru í stólaleik upp á borgarstjórastólinn. MYND SigtrYggUr Ólafur F. Magnússon fyrrverandi borgarstjóri fór hörðum orðum um svikráð sjálfstæðisflokksins. MYND SigtrYggUr
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.