Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2008, Síða 24
FÖSTUdagUr 24. OKTÓBEr 200824 Fókus
u m h e l g i n a
„Ég var mikið að lesa íslensku þjóð-
sögurnar til að fá innblástur til að skrifa
hryllingssögu þegar ég byrjaði á frí-
stundaheimilinu. Ég var því svolít-
ið djúpt á kafi í þessu og stakk upp á
því við yfirmanninn að ég færi að lesa
þjóðsögurnar fyrir börnin. Honum leist
mjög vel á það og þannig byrjuðu þess-
ar sögustundir. Þetta sló algjörlega í
gegn og það kom mörgum á óvart hvað
krakkarnir voru æstir í þetta, sérstak-
lega foreldrunum. Svo fór ég að lesa
fleira, til dæmis ýmis ævintýri. Og eft-
ir að ég var byrjaður að kynnast krökk-
unum, eftir svona hálft ár, byrjaði ég að
skrifa þessa sögu og lesa hana fyrir þau
jafnóðum.“
Sá sem talar er Gunnar Theodór
Eggertsson, tuttugu og sex ára gamall
bókmennta- og kvikmyndafræðing-
ur og höfundur bókarinnar Steindýr-
in sem hlaut Íslensku barnabókaverð-
launin í vikunni. Eins og Gunnar lýsir
varð sagan til í tengslum við starf hans
á frístundaheimilinu Hlíðaskjóli í
Hlíðaskóla veturinn 2006 til 2007.
Gunnar, sem vinnur enn í Hlíðaskjóli
eftir hádegi samfara doktorsnámi í
bókmenntafræði, skrifaði einn kafla á
viku í tólf vikur.
Kláraði kafla á viku
Fyrsta sögustund vikunnar var á
mánudögum og kveðst Gunnar stund-
um hafa setið sveittur á mánudags-
morgnum við að klára kafla vikunnar.
„Og þegar ég las fyrsta kaflann vissi ég
ekkert hvert sagan myndi stefna því ég
var ekki búinn að ákveða söguþráðinn.
Hann kom svona jafnt og þétt. Krakk-
arnir voru svo áhugasamir að ég bara
hélt áfram að skrifa og endaði í tólf
köflum, sem eru þrettán í bókinni. Það
er alveg sérstök stemning að sitja fyrir
framan hóp af krökkum og lesa fyrir þá.
Og það var einhver kraftur sem varð til
þarna,“ segir Gunnar sem hafði aldrei
áður lesið fyrir krakka, né skrifað fyrir
þá.
Steindýrin fjallar um Gunnar og
vini hans tvo, systkinin Erlu og Hauk,
sem fara að kanna hvað veldur því að
öll dýrin í þorpinu sem þau búa í breyt-
ast allt í einu í stein. Og fullorðna fólkið
lætur eins og dýrin hafi aldrei verið til.
Krakkarnir leggja í framhaldinu upp í
ævintýralegan leiðangur inn í Dimma-
helli í útjaðri þorpsins til að komast að
hinu sanna í málinu.
Hugmyndina að sögunni segist
Gunnar hafa fengið þegar hann var í
heimsókn í litlum bæ í Þýskalandi sem
heitir Neuenkirchen en þáverandi kær-
asta hans var að setja þar upp listasýn-
ingu. „Við tókum eftir því þegar við vor-
um að labba um bæinn að þarna voru
voða fín hús og garðarnir vel snyrtir,
og allt fullt af steinstyttum af dýrum.
Okkur fannst þetta mjög dularfullt. Það
var enginn með lifandi gæludýr, en all-
ir voru ýmist með hundastyttur, katta-
styttur eða styttur af öðrum gælu- eða
húsdýrum. Þá kviknaði þessi hugmynd
Íslensku barnabókaverðlaunin voru
afhent í tuttugusta og fyrsta sinn síðast-
liðinn þriðjudag. Höfundur verðlauna-
sögunnar í ár, Steindýranna, heitir
Gunnar Theodór Eggertsson, bók-
mennta- og kvikmyndafræðingur
og starfsmaður frístundaheimilis-
ins í Hlíðaskóla. Í spjalli við
Kristján Hrafn Guðmundsson
segir Gunnar frá því hvernig
þessi fyrsta bók hans varð til í
sögustundum á frístundaheim-
ilinu, hryllingssöguáhuga sín-
um og samlíkingum við rokk-
stjörnur og Jesúm Krist.
Sýningarlok og upplestur í listasafni aSÍ
Myndlistarsýningu Haralds Jónssonar lýkur á sunnudaginn í Listasafni aSÍ og munu
af því tilefni þrjú skáld lesa upp úr væntanlegum jólabókum sínum. Kristín ómars-
dóttir les upp úr ljóðabókinni Sjáðu fegurð þína, Hjálmar Sveinsson flytur kafla úr
ævisögu Þórðar sigtryggssonar og sJón les úr skáldsögu sem ber heitið rökkurbýsnir.
Upplesturinn fer fram klukkan 16 og er aðgangur ókeypis.
Söguhetja Sex Drive er algjört
nörd sem keyrir þvert yfir landið
til að smella í píu sem hann hitti á
spjallrás á netinu. Hann tekur vini
með og úr verður vegamynd. Þessi
mynd fer ekki í neinar grafgötur
með hvaða flokki hún tilheyrir. Hér
er á ferðinni formúlukennd gelgj-
umynd sem inniheldur hrekkju-
svín, nörd, vandræðalegheit, nokk-
ur brjóst, „highschool rokk“, dans,
væmni og flotta bíla.
Satt að segja byrjar hún sæmi-
lega. Við fáum að kynnast bróð-
ur hetjunnar sem er ýkt og á köfl-
um fyndin týpa. Kaldhæðinn
amish-gaur sem ber nafnið Ezeki-
el er reyndar slakur en nógu fínn á
stöku stað til að nefna hann einnig
sem hláturvekjandi. Myndin er að
nokkru leyti frábrugðin hefðbundn-
um unglingamyndum og þá aðal-
lega um eftirfarandi hluti: Hetjan
er nörd frá upphafi til enda myndar
og verður ekkert töff fyrir tilstuðl-
an fyrirliða ruðningsliðsins. Vinur
hans er akfeitur og fáránlegur en á
engu að síður í litlum vandræðum
með að krækja sér í stelpur. Þetta er
að sjálfsögðu markaðslega snjallt
með vaxandi offitu Vesturlandabúa
í huga þar sem fólk vill geta sam-
samað sig söguhetjum. Þetta er gott
og blessað en helsti munurinn felst
kannski í lengdinni.
Myndin er dreplangdregin og ekki
af þeim gæðum að halda þér í nærri
tvo tíma. Þar vegur þungt eitt lengsta
og glataðasta lokauppgjör okkar
tíma. Endalaust og ömurlegt. Vitandi
að þetta er ekki góð mynd gæti ein-
hver spurt hvort þetta væri samt ekki
„fín unglingamynd“? En góð mynd
er góð mynd óháð því hver er mark-
hópurinn. Svo þetta er vond mynd,
sama fyrir hvern hún var gerð.
Erpur Eyvindarson
Unglingamiðuð maraþonleiðindi
utan gátta Í
KaSSanum
Þjóðleikhúsið frumsýnir leikrit-
ið Utan gátta eftir Sigurð Pálsson
á morgun, laugardag, í leikstjórn
Kristínar Jóhannesdóttur. Sýningar
verða í Kassanum við Lindargötu.
Villa og Milla eru tvær persónur,
innilokaðar. Þær eru á valdi einhvers
sem við sjáum aldrei, en stjórnar
kringumstæðum þeirra. Tvær sam-
an eins og gamalt par, bundnar hvor
annarri, eins og afbrýðisamar systur,
börn í sandkassa. Þær eru stöðugt að
leita leiða til að komast burt en geta
engu treyst og sérstaklega ekki hvor
annarri. Leikarar í sýningunni eru
Arnar Jónsson, Eggert Þorleifsson,
Kristbjörg Kjeld og Ólafía Hrönn
Jónsdóttir.
lög unga fólKS-
inS Í Salnum
Hinn ungi og efnilegi bariton-
söngvari Jón Svavar Jósefsson
mun flytja tónleika í Salnum í
Kópavogi á laugardaginn næst-
komandi. Tónleikarnir eru þeir
fyrstu í nýrri tónleikaröð innan Tí-
brár og ber heitið Lög unga fólks-
ins. Jón Svavar, sem hlotið hefur
frábæra dóma, mun flytja verk
eftir Loewe, Schubert, Schumann
og Hugo Wolf, Sveinbjörn Svein-
björnsson og Karl Ottó Runólfsson
ásamt Ástríði Öldu Sigurðardóttur
sem mun leika á píanó. Tónleik-
arnir hefjast klukkan 17.
liStamannaSpjall
með Braga
áSgeirSSyni
Bragi Ásgeirssons mun fara um yfir-
litssýningu sína í Listasafni Reykja-
víkur sunnudaginn næsta klukkan
15 og ræða um einstök verk og feril
sinn. Auk þess mun hann árita bók
sína Augnsinfónía en hún fjallar
einmitt um líf hans og list. Sýningin
hans Braga hefur staðið yfir í rúm-
an mánuð við miklar vinsældir og
spannar sextíu ár í lífi hans. Allir eru
velkomnir og verða veitingar í boði á
sanngjörnu verði í kaffiteríunni. Bók
Braga verður seld á tilboðsverði.
kvikmyndir
Sex Drive
Leikstjórn: Sean anders
Aðalhlutverk: James Marsden, Josh
Zuckerman, amanda Crew, Katrina Bowden
Vond Sex drive byrjar
sæmilega en er vond
þegar upp er staðið.
Leið svolítið
einS og
roKKStjörnu