Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2008, Blaðsíða 34
SKILNAÐIR ÍSLENSKRA STJARNA
FÖSTUdagUr 24. OKTÓBEr 200834 Helgarblað
Eitt það yndislegasta við lífið er að verða ástfanginn. En því miður hættir
fólk líka
stundum að vera ástfangið. Það er jafneðlilegt og að jörðin snýst í kringum
sólina.
Og eins og það er sjálfsagt að segja frá tilhugalífi kónga, drottninga, prinsa
og
prinsessa heimsins er það jafneðlilegt að gera því skil þegar þau skilja að s
kipt-
um, ekki síst þegar poppdrottningin Madonna hefur nú skilað sínum bresk
a
förunaut til nokkurra ára.
Birgitta Haukdal og Hanni Backman
Poppprinsessan Birgitta Haukdal og trommarinn Hanni
Backman voru ekkert lítið áberandi par þegar velgengni
hljómsveitarinnar Írafárs stóð sem hæst en bæði voru þau
meðlimir hljómsveitarinnar. Þau vöktu mikla athygli hvar sem
þau komu og voru dáð og dýrkuð af ungu kynlóðinni. Ungu
poppstjörnurnar voru saman í nokkur ár en haustið 2003 fóru
að berast sögur af því að þau hefðu slitið samvistum
aðdáendum þeirra til mikilla vonbrigða. gengið var á Birgittu
Haukdal í útvarpsviðtali þar sem hún játti sambandslitunum.
Hljómsveitin hélt þó ótrauð áfram um nokkurt skeið þrátt
fyrir skilnaðinn. Birgitta Haukdal gekk nýlega að eiga unnusta
sinn til nokkura ára, Benedikt Einarsson. athöfnin fór fram í
dómkirkjunni í reykjavík og var það séra Jón dalbú
Hróbjartsson sem gaf þau saman. Í kjölfarið var slegið upp
mikilli veislu á 20. hæðinni í Turninum í Kópavogi.
arnar gunnlaugsson og
Helga lind Björgvinsdóttir
Hann er einn eftirsóttasti fótboltakappi
landsins, hún var upprennandi fyrirsæta.
Leiðir þeirra lágu saman og voru arnar og
Helga Lind eitt flottasta par landsins. Þau
stofnuðu saman fjölskyldu ung að aldri og
eiga saman tvö börn. Það slitnaði upp úr
sambandi þeirra fyrir rúmum þremur árum.
Helga Lind byrjaði fljótlega með gylfa
Einarssyni fótboltamanni. Þau giftu sig
og fluttu saman til Leeds. arnar er í
dag með leikkonunni Pöttru
Sriyanonge.
Þorsteinn m. jónsson og anna lilja joHansen
Mikill hraði einkenndi samband þeirra Þorsteins M. Jónssonar og Önnu Lilju
Johansen en aðeins nokkrum mánuðum eftir að þau kynntust voru þau gengin í það
heilaga. Ekkert var til sparað á brúðkaupsdaginn, athöfnin fór fram í Hallgrímskirkju
ásamt vinum og vandamönnum. Veislan var haldin í hvítdekkuðum súlnasal á Hótel
Sögu þar sem gestir nutu víns og matar og tónlist sjálfra Stuðmanna fram á nótt.
Nokkrum mánuðum síðar fæddist þeim Önnu Lilju og Þorsteini dóttir og virtist allt
vera í lukkunnar velstandi í fallega húsinu þeirra á Laufásveginum. aðeins þremur
árum eftir draumabrúðkaupið var sælan þó á enda og skildu leiðir þeirra hjóna.
Skilnaðurinn kom mörgum mjög í opna skjöldu.
anna Lilja hefur nú fundið ástina á ný en Þorsteinn í Kók eins og hann er oft kallaður
hefur enn ekki fundið draumaprinsessuna sína.
Hannes smárason og steinunn jónsdóttir
Hannes Smárason kynntist Steinunni Jónsdóttur
innanhússarkítekt ungur að aldri í Menntaskólanum við
reykjavík og giftust þau. Steinunn er dóttir Jóns Helga
guðmundssonar sem oftast er kenndur við Byko. Hannes
og Steinunn skildu árið 2004 og var skilnaðurinn dálítið
flókinn þar sem Hannes vann náið með tengdaföður
sínum og áttu þeir saman í hinum ýmsu fyrirtækjum.
BuBBi og Brynja
Bubbi Morthens og Brynja gunnarsdóttir eru ein
þekktustu hjón Íslands fyrr og síðar og það kom
mörgum gríðarlega á óvart þegar þau ákváðu að
skilja í lok árs 2004. Þá höfðu Bubbi og Brynja
verið gift í 19 ár og eignast saman þrjú börn.
Bubbi og Brynja kynntust þegar hún var þjónn á
Hótel Borg á sínum tíma en ástarsöngvar Bubba til
Brynju urðu ástarsöngvar þjóðarinnar.
Um mitt árið 2005 fór þjóðfélagið bókstaflega á
annan endann þegar Ásgerður guðmundsdóttir
steig fram og sagði í viðtali við tímaritið Hér og nú
að Brynja hefði haldið framhjá með eiginmanni
hennar gunnari Erlingssyni. Upphófust miklar
deilur og margir aðdáendur Bubba og aðrir
reiddust Ásgerði mjög fyrir að hafa farið með
málið í fjölmiðla. Sjálfur steig Bubbi fram í
fjölmiðlum og kom Brynju til varnar.
Þau hafa nú bæði farið sína leið en Bubbi giftist á
ný í sumar fegurðardrottningunni Hrafnhildi
Hafsteinsdóttur. Lítið sem ekkert hefur farið fyrir
Brynju eftir skilnaðinn.