Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2008, Blaðsíða 48
FÖSTUdagUr 24. OKTÓBEr 200848 Helgarblað DV
Sakamál
SmáSkilaboð bjarga lífi Hin fjórtán ára
Elizabeth Shoaf hafði verið í prísund mannræningja í tíu daga. Í
jarðhýsi í skógi í Suður-Karólínu hafði ræningi hennar nauðgað
henni og svívirt og hinu unga fórnarlambi virtust allar bjargir
bannaðar. En margt fer öðruvísi en ætlað er og hana brast ekki
kjarkinn þegar tækifæri gafst. Mannræninginn var enginn nýgræð-
ingur og þjálfun hans í að komast af í óbyggðum hafði bjargað honum
frá því að verða handtekinn. Í jarðhýsi sínu hafði hann komið sér vel fyrir og
ekki var hægt um vik að finna það. Hann missteig sig einu sinni og það varð
honum að falli og Elizabeth til lífs. Lesið um málið í næsta helgarblaði dV.UMSjÓn: KOLBEinn ÞOrSTEinSSOn kolbeinn@dv.is
Bonnie & Clyde
Sá ævintýraljómi sem lék um bonnie og Clyde í upphafi sameiginlegrar sögu þeirra máðist skjótt. Róm-
antíkin sem almenningur í Bandaríkjum kreppuáranna tengdi við þau fölnaði og eftir stóðu forhertir
morðingjar. Það sem hófst sem ævintýri ungs ástfangins pars breyttist í flótta undan vörðum laganna og
í kjölfarið hrúguðust líkin upp.
Bonnie Parker og Clyde Barrow
voru alræmdir útlagar og banka-
ræningjar sem settu svip sinn á
Bandaríkin upp úr 1930. Þau fóru
vítt og breitt um miðfylki Bandaríkj-
anna og náðu athygli allrar þjóðar-
innar með verkum sínum. Fjölmiðl-
ar og almenningur fylgdust náið
með ferli þeirra og þau urðu þekkt
fyrir að ræna banka, þótt þau hafi í
meira mæli gert atlögu að bensín-
stöðvum og smáverslunum.
Almennt hefur verið álitið að
Bonnie hafi verið fullgildur með-
limur í glæpagengi Barrows og því
meðsek í öllum glæpum sem það
framdi. Tveir meðlima gengisins,
W.D. Jones og Ralph Fults, báru á
sínum tíma vitni um að þeir hefðu
aldrei séð Bonnie skjóta af byssu.
Skuggi kreppunnar miklu lá yfir
því samfélagi sem Bonnie og Clyde
spruttu upp úr. Atvinnuleysi var
mikið og fjöldi atvinnu- og heim-
ilslausra neyddist til að setjast að
í hreysahverfum. Framtíðarvonir
véku fyrir áhyggjum af næstu mál-
tíð. Því var kannski ekki að undra
að almenningur dáðist að Bonnie
og Clyde og í einhvern tíma urðu
þau að ímynd nútíma Hróa hattar
og nærvera Bonnie Parker var ekki
til að skemma ímyndina. Talið er að
gengið hafi á ferli sínum banað að
minnsta kosti níu lögregluþjónum
og nokkrum öðrum að auki.
aftur til upphafsins
Bonnie Parker fæddist 1. okt-
óber 1910 í Rowena í Texas og ekki
er mikið vitað um bernsku henn-
ar. Hún var ágætlega pennafær og,
líkt og aðrir unglingar, átti hún sér
drauma. Hún var falleg stúlka og er
talið að hún hefði getað orðið leik-
kona ef hún hefði viljað, en hún
kastaði öllum draumum fyrir róða
þegar hún giftist æskuástinni Roy
Thornton. En Roy stóð ekki undir
væntingum og átti það til að hverfa
dögum saman og á endanum spark-
aði Bonnie honum út, en hún skildi
aldrei við hann.
Átján ára og ein á báti vann
Bonnie fyrir sér við framreiðslu-
störf. Ekki hvarflaði að henni á þeim
tíma að handan við hornið lægju
breytingar sem myndu hafa áhrif á
örlög hennar.
Clyde Barrow fæddist 24. mars
1909 í Ellis-sýslu í Texas. Skólaganga
Clydes var gloppótt og áður en
hann náði tvítugsaldri hafði hann
verið handtekinn fjórum sinnum,
en vegna skorts á sönnunum slapp
hann með skrekkinn. Í janúar 1930
hittust Bonnie og Clyde fyrir tilvilj-
un í Vestur-Dallas þar sem Bonn-
ie var í heimsókn hjá vini sínum. Í
ljós kom að Clyde þekkti vininn líka
og tilviljun ein réð því að þar hittust
þau í fyrsta sinn. Hvort um var að
ræða ást við fyrstu sýn eða ekki kom
hjónaband aldrei til greina; Bonn-
ie var gift kona. En þær taugar sem
mynduðust á milli þeirra styrktust
hratt, en fyrr en varði ráku lögin
fleyg á milli þeirra.
Clyde var handtekinn og á end-
anum játaði hann á sig nokkur inn-
brot og bílþjófnað og var dæmdur
til tveggja ára fangelsisvistar. Bonn-
ie var ástfangin og heimsótti Clyde
í grjótið á nánast hverjum degi. Í
einni slíkri heimsókn, að beiðni
Clydes, kom hún með skammbyssu
og næstu nótt flúði Clyde, klefafé-
lagi hans og einn að auki.
Clyde og klefafélaginn komust
ekki langt og fyrir uppátækið hlaut
Clyde fjórtán ára dóm. En Clyde
eyddi ekki fjórtán árum á bak við
lás og slá. Fyrir tilstilli móður sinnar
gekk hann út frjáls maður 2. febrú-
ar 1932. Clyde tókst að halda sér á
mottunni í hálfan mánuð. Þá leit-
aði hann Bonnie uppi og þau lögðu
upp í ferðalag – á stolnum bíl. Arm-
ur laganna er langur en í þetta skipti
náði hann taki á Bonnie en Clyde
komst undan. Bonnie eyddi nokkr-
um mánuðum í fangelsi í Kaufman
í Texas.
krossgötur
Á meðan Bonnie var í fangelsi
komst Clyde á bragðið. Hann rændi
Sims-olíufélagið í Dallas og síðan
skartgripaverslun. Eigandi skart-
gripabúðarinnar, John Bucher, dó
þann dag. Clyde sagðist saklaus af
því og sagði félaga sinn, Reymond
Hamilton, vera ábyrgan. Sú yfirlýs-
ing bar ekki árangur, og þaðan í frá
var Clyde brennimerktur morðingi.
Í kjölfar skartgriparánsins fylgdi röð
bensínstöðvarána. Glæpaferill Cly-
des Barrow var hafinn fyrir alvöru.
Þegar Bonnie losnaði úr fang-
elsi tók hún sess sinn við hlið Clyd-
es. 5. ágúst skutu Clyde og Hamilton
til bana tvo lögregluþjóna í Atoka í
Oklahoma. Hvort það var af ásettu
ráði eða tilviljun var Bonnie ekki
með þeim í för þann örlagaríka dag.
En almenningsálitið var að
breytast. Bonnie og Clyde hættu að
vera hetjur í augum almennings og
rómantíkin sem hafði sveipað fer-
il þeirra hvarf. Þau voru ekki leng-
ur krakkar í uppreisn gegn kerfinu
heldur kaldrifjaðir morðingjar.
Þræðir tilveru Bonnie og Clyde
byrjuðu að rakna upp og það sem í
upphafi átti að verða ævintýraferð í
gegnum miðvesturríkin hafði breyst
í örvæntingarfullan flótta fyrir frelsi.
Felustaðir þeirra og griðastaðir voru
ekki lengur öruggir.
Hamilton var handtekinn og
dæmdur til 263 ára fangelsisvistar
og lögreglan hafði tekið af sér silki-
hanskana. Slíkt hið sama mátti segja
um Clyde Barrow og enn einn lög-
regluþjónninn lá í valnum.
líkin hrannast upp
Í mars 1933 losnaði Buck, bróðir
Clydes, úr fangelsi og skömmu síðar
slógust hann og Blanch, eiginkona
hans, í hóp Clydes. Um skamma
hríð tókst þeim að una í friði í Joplin
í Missouri, en lögreglan gerði atlögu
að húsi þeirra vegna misskilnings.
Lögreglan hélt að þar væru til húsa
bruggarar og í skotbardaganum
féllu tveir lögregluþjónar. Við leit í
húsinu fundust meðal annars film-
ur og á einni þeirra mynd af Bonn-
ie að reykja vindil. Sú mynd átti eftir
að verða fræg.
En lánið virtist hafa yfirgefið
Bonnie og Clyde. Á stolnum bíl óku
þau út af brú sem var í smíðum.
Bonnie klemmdist undir bílnum og
fékk þriðju gráðu brunasár. Geng-
ið leigði kofa í Platte í Missouri, en
Bonnie var sárþjáð og þurfti lækn-
isaðstoð. Apótekarinn sem þau
leituðu til hafði samband við lög-
regluna og enn og aftur lenti Clyde-
gengið í skotbardaga.
Liðin var sú tíð að gengið kæmi
óskaðað úr slíkum uppákomum.
Buck og Clyde fengu báðir skot í sig
og Blanch fékk gler í augun, en þrátt
fyrir það tókst þeim að flýja.
Þremur dögum síðar var lögregl-
an komin á sporið, en gengið var í
felum í skóglendi fyrir utan Dext-
er í Iowa. Í óðagotinu sem fylgdi ók
Clyde bílnum á tréstubb og lögregl-
an hóf skothríð. Clyde fékk nokkur
skot í sig, en tókst að bjarga sér og
Bonnie og flýja í gegnum kornakur.
Buck og Blanch áttu ekki slíku
láni að fagna. Þau voru bæði hand-
tekin en Buck var helsærður og lést
þremur dögum síðar. Blanch var
send í ríkisfangelsið í Missouri.
Fram undan voru daprir mánuð-
ir. Einn félaganna yfirgaf skötuhjúin
og taldi sig hólpnari einan en í slag-
togi með þeim. Gengið samanstóð
af Bonnie, Clyde og Henry Methy-
in. Bonnie og Clyde lentu í fyrirsát
lögreglunnar þegar þau ætluðu að
heimsækja foreldrana, en þrátt fyr-
ir að vera skotin í fótleggina tókst
þeim að komast undan. Þar sem
þau voru bæði særð var ljóst að þau
þyrftu liðsauka. Þau náðu sínum
gamla félaga Reymond Hamilton
og öðrum til úr fangelsi í Huntsville
í Texas. Enn einn lögregluþjónn dó
þann dag.
Næstu mánuði var fjöldi banka
rændur. Hvort sem það var með
réttu eða röngu voru bankaránin
skrifuð á gengi Clydes. Í mars 1934
yfirgaf Hamilton gengið, hann var
síðar handtekinn og endaði í raf-
magnsstólnum vegna morðs á
fangaverði nóttina sem hann flúði
frá Huntsville-fangelsinu.
bonnie og vindlarnir
Á páskasunnudag 1934 drápu
Clyde og Methyun tvo lögreglu-
þjóna sem höfðu stöðvað við bif-
reið þeirra. Lögreglumennirnir
ætluðu víst aðeins að bjóða aðstoð
sína. Fimm dögum síðar myrtu
þeir lögregluvarðstjóra, Cal Camp-
ell, og rændu Commerce, lögreglu-
stjóra Oklahoma,en slepptu honum
nokkrum dögum síðar.
Engu líkara var en Bonnie
gæti ekki hugsað skýrt því hún lét
Commerce lofa sér því að hann léti
almenning vita að hún reykti ekki
vindla. Frægasta myndin af henni
fór greinilega meira fyrir brjóstið á
henni en yfirvofandi dauði þeirra.
Lögreglan neytti allra leiða til
að hafa hendur í hári þeirra. Vin-
ir og fjölskyldur voru áreittar í tíma
og ótíma, og á endanum var leitað
til Franks Hamer, liðsmanns U.S.
Rangers.
Hamer hlýtur að hafa haft lykt-
arskyn sporhunds því hann komst
fljótt á slóðina og tapaði henni
aldrei. Alla jafna var hann einum
degi á eftir þeim, en eftirförin kost-
aði þrjá lögreglumenn lífið.
Gengið leitaði hælis hjá Ivan,
föður Henrys Methyin, og sagan
segir að hann hafi sagt til þeirra í
von um vægari dóm syni sínum til
handa. Ivan sagði Hamer frá „póst-
húsinu“ sem var í raun viðarplanki
þar sem gengismeðlimir skildu eftir
skilaboð sín á milli og til fjölskyldu-
meðlima, og ef Bonnie og Clyde
væru í nágrenninu myndu þau án
efa reyna að nálgast póst sinn.
fyrirsát
Hamer kallaði nokkra vini sína til
hjálpar og í skjóli nætur komu þeir
sér fyrir og biðu parsins alræmda.
Rúmlega níu næsta morgun óku
Bonnie og Clyde inn í fyrirsát. Ekki
er vitað hver félaga Hamers gekk
í veg fyrir bílinn, neyddi þau til að
stoppa og sagði þeim að gefast upp.
Þegar Clyde teygði sig eftir byssu
sinni hóf eftirreiðarsveitin skothríð
og þegar upp var staðið hafði eitt
hundrað sextíu og sjö skotum verið
hleypt af og drungaleg þögn lagð-
ist yfir.
Dagurinn var 23. maí árið 1934
og staðurinn var vegur nálægt Bi-
enville Parish í Louisiana. Eftirreið-
arsveitin samanstóð af fjórum lög-
reglumönnum frá Texas og þremur
frá Louisiana og Bonnie og Clyde
voru liðin lík.
Margir eru þeirrar skoðunar að
eina sök Bonnie hafi verið að falla
fyrir röngum manni. Hún var Clyde
trygg allt til enda og dauði lögreglu-
þjóna varð lítilvægur í samanburði
við samband þeirra. Ástin er vissu-
lega blind.
En saga og ferill Bonnie og Clyde
eru vissulega fjarri sögunni um Hróa
hött sem rændi ríka og gaf fátækum.
En almenningsálitið var að breytast. Bonnie og
Clyde hættu að vera hetjur í augum almennings
og rómantíkin sem hafði sveipað feril þeirra
hvarf. Þau voru ekki lengur krakkar í uppreisn
gegn kerfinu heldur kaldrifjaðir morðingjar.
Clyde og bonnie Áttu lítið
sameiginlegt með Hróa hetti eins
og almenningur komst fljótt að.
bonnie Parker
Hafði áhyggjur
af því að fólk
héldi að hún
reykti vindla.