Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2008, Blaðsíða 64
n Vefsíðan indefence.is sem stofn-
uð var til að hindra frekari skaða af
hruni fjármálakerfisins hefur fengið
einstaklega góð viðbrögð. Að sögn
forsvarsmanna síðunnar hefur söfn-
un undirskrifta vegna ákalls Íslend-
inga til bresku ríkisstjórnarinnar far-
ið fram úr björtustu vonum og vegna
mikils álags lá vefsíðan niðri um
tíma. Fréttaveitan Reuters birti frétt
um málið og í kjölfarið kepptust er-
lendir fjölmiðlar um að hafa
samband við að-
standendur átaks-
ins sem vinna
nú skipulega að
samskiptum við
erlenda fjöl-
miðla.
Er ekki fljótlegra
að fá Benna í málið?
Fréttaskot 512 70 70
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. fyrir fréttaskot sem Verður
aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur. fyrir besta fréttaskot Vikunnar greiðast allt
að 50.000 krónur. alls eru greiDDar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hVers mánaðar.
Ölgerð Egils Skallagrímsson-
ar krefur Ragnar Magnússon, sem
stundum er kallaður Brunabíla-
Ragnar, ásamt þremur öðrum og
skemmtistaðinn Oliver um sex og
hálfa milljón króna vegna ógreiddra
reikninga. Málið var tekið fyrir í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur í gærmorg-
un. Ölgerðin telur sig eiga fimm og
hálfa milljón inni hjá Ragnari. Með
dráttarvöxtum og innheimtuþókn-
un leggur skuldin sig á sex og hálfa
milljón. Fallist var á frávísunarkröfu,
þegar niðurstaða er komin í málið er
boðað til fyrirtöku og sátta.
Ragnar komst síðast í kastljósið
eftir samskipti sín við Benjamín Þór
Þorgrímsson, einkaþjálfara og meint-
an handrukkara, í Kompásþætti í síð-
asta mánuði. „Ég var beinlínis neydd-
ur til þess að skrifa undir pappírana,“
sagði Ragnar Magnússon í viðtali við
DV í vor en sjálfur taldi hann að beint
tjón vegna undirskriftarinnar þar
sem hann afsalaði sér Oliver og fleiri
skemmtistöðum hefði numið rúm-
lega hundrað milljónum króna. Hann
sagði í sama viðtali að hann hefði skrif-
að undir að lokum vegna hótana um
limlestingar. Málið allt hefur hins veg-
ar haft þær afleiðingar að Benjamín
Þór hefur sakað Ragnar um að hafa
kveikt í lúxusjeppa sínum í hefndar-
skyni. Deila þeirra tveggja náði há-
marki í lok júlí þar sem Benjamín Þór
lamdi Ragnar við hafnarvogina í Hafn-
arfirði fyrir framan myndavélar Komp-
áss. Ekki er vitað hvenær kæra Ragnars
á Benjamín verður tekin fyrir.
n Leikkonan og leikstjórinn
María Ellingsen prýðir forsíðu
nýjasta tölublaðs Nýs Lífs. Leik-
konan talar opinskátt um leiklist-
ina og Hollywood-ævintýri sitt,
einnig opnar hún sig
um veikindi dóttur
sinnar í ítarlegu
viðtalinu. María
talar þó ekkert
um samband
sitt og sjónvarps-
mannsins Þor-
steins J. Vilhjálms-
sonar eða sambúð
þeirra hjóna. Hún
minnist reyndar
ekki einu sinni á
fyrrverandi mann
sinn. En Þorsteinn
og María voru hjón
um árabil og eiga
saman tvö börn.
n Góðgerðarráð Verzlunarskóla
Íslands blæs til knattspyrnuleiks
fræga fólksins á laugardagskvöld
í samstarfi við UNICEF. Leikur-
inn er haldinn til styrktar vatns-
verkefni í Gíneu-Bissá, en þar er
barnadauði hvað algengastur í
heimi. Lið Verzló mun þar mæta
svokölluðu „All-star“-liði skip-
uðu þjóðþekktum einstaklingum.
Kastljósshaukurinn Helgi Seljan
mætir þar til leiks ásamt stall-
bróður sínum Sölva Tryggvasyni
úr Íslandi í dag. Þá ætlar söngv-
arinn Geir Ólafs ekki að láta sig
vanta frekar en útvarpsmaðurinn
Ívar Guðmundsson, Gillzenegg-
er, þingmaðurinn Sigurður Kári
Kristjánsson og Kolfinna Bald-
vinsdóttir. World Class-hjónin
Dísa og Bjössi leggja góðu mál-
efninu líka lið sem og
Gunnleifur Gunn-
leifsson landsliðs-
markvörður og fleiri
góðir. Leikurinn fer
fram í Kórn-
um og hefst
klukkan 19.
Vekur heims-
athygli
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/N
A
T
4
0
5
1
7
0
1
/0
8
Mikilvægasta
máltíð
dagsins
Ölgerðin krefur Ragnar Magnússon um 6,5 milljónir króna:
kompásbeita krafin um milljónir
Þögul um
Þorstein j.
boltaspark gegn
barnadauða
Úr Kompásþætti ragnar var tálbeita
kompáss þegar hann hitti benjamín Þór.