Lögmannablaðið - 01.03.1998, Page 6
Í3. tölublaði Lögmannablaðs-ins á síðasta ári ritaði Guð-laug B. Ólafsdóttir, lögfræð-
ingur hjá Íslandsbanka hf.,
grein um hlutverk fjármála-
stofnana hér á landi í aðgerðum
gegn peningaþvætti. Í því grein-
arkorni, sem hér birtist, verður
fjallað lítillega um nokkur atriði
er varða lögmenn og peninga-
þvætti.
FATF-hópurinn
Á vegum OECD hefur undanfar-
in ár verið unnið ötullega og
skipulega að því að koma í veg
fyrir og uppræta þann þátt í al-
þjóðlegri glæpastarfsemi sem felst í
peningaþvætti, þ.e. þeirri iðju að
koma í umferð fjármunum, sem
aflað hefur verið með ólöglegum
hætti. Í þessu skyni var á vegum
OECD, framkvæmdastjórnar Evr-
ópusambandsins o.fl. stofnaður
vinnuhópur, The Financial Action
Task Force on Money Laundering
(FATF), sem hefur það hlutverk að
þróa og leggja fram tillögur um
það hvernig megi koma í veg fyrir
peningaþvætti.
Á árinu 1990 lagði FATF-hópur-
inn fram tillögur sínar í 40 liðum
(The Forty Recommendations)1 um
hvernig haga mætti og ætti barátt-
unni gegn peningaþvætti, að ein-
hverju leyti þó að teknu tilliti til
ólíkra aðstæðna í hinum einstöku
löndum. Þessar tillögur hafa síðan
verið notaðar til að setja lög í við-
komandi löndum um aðgerðir
gegn peningaþvætti, hér á landi
með lögum nr. 80/1993. Þátttöku-
löndin í þessu fjölþjóðlega sam-
starfi hafa skuldbundið sig til að
koma á fót innra eftirlitskerfi í
hverju landi fyrir sig og að þola
utanaðkomandi reglubundið eftir-
lit, sem framkvæmt er af FATF-
hópnum.
Tillögurnar 40 voru teknar til
endurskoðunar á árinu 1996, að
fenginni 6 ára reynslu og vegna
breytinga, sem orðið hafa á þessari
ólöglegu starfsemi. Í tillögunum 40
hafði spjótunum upphaflega verið
beint að peningaþvætti í gegnum
hinar ýmsu fjármálastofnanir land-
anna, en við endurskoðunina hef-
ur þótt ástæða til að láta aðgerðirn-
ar ná til fleiri aðila í þjóðfélaginu,
sem FATF-hópurinn telur að hætta
sé á að verði notaðir til peninga-
þvættis með einum eða öðrum
hætti.
Endurskoðun laga
nr. 80/1993
Í viðskiptaráðuneytinu hefur
undanfarið verið unnið að samn-
ingu frumvarps til laga um breyt-
ingar á lögum nr. 80/1993, um að-
gerðir gegn peningaþvætti, þar
sem m.a. hefur verið höfð hliðsjón
af ábendingum FATF-hópsins um
nauðsynlegar breytingar í ljósi
fenginnar reynslu. Hefur í þessu
sambandi m.a. verið rætt um að
fella lögmannsþjónustu, a.m.k. að
sumu leyti, undir gildissvið lag-
anna. Fæli það í sér að lögmönn-
um yrði hugsanlega gert skylt að
tilkynna lögregluyfirvöldum ef þeir
í störfum sínum fá grunsemdir
um að viðskiptamenn þeirra eða
aðrir stunda peningaþvætti. Yrði
þeim, sem og öðrum, sem falla
undir gildissvið laganna, gert skylt
að veita alla nauðsynlega aðstoð til
að ákvæðum laganna yrði fram-
fylgt.
Á sínum tíma, þegar setning
reglugerðar nr. 695/1994, um hlut-
verk nokkurra starfsstétta og lög-
aðila við aðgerðir gegn peninga-
þvætti, var í undirbúningi, var uppi
hugmynd um að fella lögmenn,
löggilta endurskoðendur, fast-
eignasala og bílasala undir gildis-
svið laga nr. 80/1993. Stjórn
L.M.F.Í. mótmælti á þeim tíma
harðlega þeim hugmyndum að því
er lögmenn varðaði og taldi að
með slíkum reglum yrði vegið al-
varlega að því trúnaðarsambandi
sem nauðsynlegt er að ríki milli
lögmanns og skjólstæðings hans.
Skjólstæðingar lögmanna yrðu að
mega treysta á lögbundna þagnar-
skyldu lögmannanna. Slíkt trúnað-
arsamband væri einn af hornstein-
um réttarríkisins. Einnig benti
stjórnin á að ekki væri hægt með
setningu reglugerðar að víkja til
hliðar hinni lögbundnu þagnar-
skyldu lögmanna, eins og hún birt-
ist í 1. gr. laga nr. 61/1942, um mál-
flytjendur.
Umræða á erlendum
vettvangi
Á erlendum vettvangi, m.a. inn-
an samtaka lögmannafélaga í Evr-
ópu, CCBE, hafa menn haft miklar
áhyggjur af þeirri þróun, sem mjög
víða á sér stað, þar sem æ lengra er
gengið í þá átt að þrengja að trún-
aðarsambandi lögmanna og skjól-
stæðinga þeirra, þó svo það sé lið-
ur í virðingarverðri baráttu gegn
glæpastarfsemi. Á þetta sér ekki
eingöngu stað í baráttu gegn pen-
ingaþvætti heldur einnig við rann-
sókn skattsvikamála o.fl.
Á fulltrúafundi CCBE (Plenary
Session) í nóvember 1997 var sam-
þykkt stefnuyfirlýsing samtakanna
um trúnaðarskyldur lögmanna og
aðgerðir gegn peningaþvætti. Í yf-
irlýsingunni er lögð á það áhersla
að ekki megi líta á þagnarskyldu
lögmanna sem forréttindi þeirra og
skjólstæðinga þeirra. Þagnarskylda
lögmanna sé í raun nauðsynleg
fyrir starfsemi sérhvers frjáls lýð-
ræðisríkis. Einstaklingur, stofnun
eða fyrirtæki verði að mega treysta
því að það, sem lögmanni er trúað
6 Lögmannablaðið
Peningaþvætti og lögmenn
Slíkt trúnaðarsamband
væri einn af
hornsteinum
réttarríkisins.
1 Hægt er að fá eintak tillagnanna á
skrifstofu L.M.F.Í.