Lögmannablaðið - 01.03.1998, Blaðsíða 17
rýnir ORATOR að samkvæmt frum-
varpstextanum er mögulegt að all-
ir prófnefndarmenn séu starfandi
lögmenn og telur ORATOR mikil-
vægt öryggisatriði að þessu verið
breytt. Þá hefur prófnefnd mikið
vald til að ákveða fyrirkomulag
námskeiðs án þess að álits annarra
sé leitað. ORATOR bendir á að til
að tryggja vandaðri undirbúning
og til að sátt verði um fyrirkomulag
þess, verði leitað álits hagsmuna-
hópa lögfræðimenntaðs fólks sem
og Lagadeildar H.Í. Mikilvægt er
einnig að hafa í huga að laga-
menntun hefur breyst stórlega síð-
astliðin ár og taka verður mið af
því við skipulag námskeiðs. Þá
verði haft að leiðarljósi að kenna
þá þætti sem sérstakir eru um starf
málflutningsmanns en að ekki
verði kenndir þættir sem heyra
undir fyrirtækjarekstur og skrif-
stofustörf. Í samræmi við ofan-
greinda gagnrýni leggja laganemar
eftirfarandi til:
• Prófmálakerfið verði ekki lagt
niður, a.m.k. ekki að sinni,
heldur verði boðið upp á nám-
skeið samhliða því að mögu-
leiki sé að þreyta prófmál með
þeim hætti sem nú er. M.ö.o. að
val verði á milli námskeiðs eða
prófmála. Telur ORATOR að
öðru vísi verði ekki komið í veg
fyrir þann aðstöðumun sem
gagnrýndur er í athugasemdum
frumvarps.
• Lögfest verði að einungis einn
prófnefndarmaður megi vera
starfandi lögmaður.
• Tillögur prófnefndar um skipan
námskeiðs fái umsögn hags-
munahópa lögfræðimenntaðs
fólks og Lagadeildar H.Í.
• Lögfræðingum verði heimilt að
þreyta próf án þess að hafa sótt
námskeið að hluta eða að öllu
leyti.
• Námskeið verði haldið að
minnsta kosti annað hvert ár en
þó á hverju ári ef 10 manns eða
fleiri óska eftir því.
• Námskeið verði að hámarki 50
klst. og standi ekki lengur en
eina önn í skólaári.
• Efni námskeiðs takmarkist við
þá þætti sem einkum reynir á í
starfi málflutningsmanns.
17Lögmannablaðið
Optíma filma
Útleiga á
fundarsal
Lögmenn geta fengið
leigðan fundarsal á jarð-
hæð í húsnæði félagsins
undir t.d. skiptafundi,
gerðardómsmál o.fl. Sal-
urinn rúmar u.þ.b. 20-25
manns ef setið er við
borð en annars eru sæti
fyrir um 35-40 manns.
Leiguverðið er 2.000
krónur fyrir klukkustund-
ina auk virðisaukaskatts.
Innifalið er kaffi. Tekið er
við pöntunum á skrif-
stofu L.M.F.Í. í síma 568-
5620.