Lögmannablaðið - 01.10.2003, Síða 20
20
Þann 28. maí sl. útskrifuðust 56 nemendur úr
bóklegum hluta námskeiðs til öflunar héraðs-
dómslögmannsréttinda. Þetta er í fjórða sinn
sem námskeiðið er haldið og aðsókn var mun
meiri en áður. Í prófnefnd sátu Eiríkur Tóm-
asson lagaprófessor, Ingveldur Einarsdóttir
héraðsdómari og Sif Konráðsdóttir hrl., en
auk þeirra kenndi fjöldi lögmanna á nám-
skeiðinu.
Bóklegi hluti námsins var í tvennu lagi þar sem
í fyrri hlutanum var farið í réttindi og skyldur lög-
manna, störf verjenda og réttargæslumanna,
skiptastjórn, sönnun, lögfræðilega skjalagerð og
störf lögmanna í fullnustugerðum. Í síðari hlut-
anum var málflutningur, rekstur lögmannsstofa
auk kynningar á starfsemi LMFÍ. Að loknum bók-
legum hluta var útskrift en nemendur þurfa að
þreyta verklega prófraun innan sex mánaða til að
fá réttindi sem héraðsdómslögmenn.
Við útskriftina ræddi Eiríkur Tómasson for-
maður prófnefndar um mikilvægi réttaröryggis og
hve erfitt það getur reynst lögmönnum að varð-
veita sjálfstæði og trúnað við umbjóðendur í
sumum málum þar sem almenningsálitið er and-
snúið sakborningum. Í slíkum tilvikum væri mik-
ilvægt að lögmenn héldu trúnað bæði vegna hags-
muna skjólstæðinga og réttaröryggis. Eiríkur
sagði það eitt af skilyrðum fyrir því að dómstólar
viðhéldu sjálfstæði sínu að þeir drægjust ekki um
of inn í þær deilur sem uppi væru í þjóðfélaginu á
hverjum tíma. Til þess að forðast slíkt væru mál
lögð fyrir dómstólana með tilteknum hætti þar
sem fram kæmu sjónarmið málsaðila. Þetta mikil-
væga hlutverk væri oftast nær í höndum lögmanna
og þar sem málsúrslit réðust oft af málatilbúnaði
aðila skipti sköpum að þeir séu vandanum vaxnir.
“Ef lögmenn leysa störf sín vel af hendi leiðir það
m.ö.o. til vandaðri dómsúrlausna og þar með auk-
ins réttaröryggis í þjóðfélaginu,” sagði Eiríkur
sem enn fremur ræddi um þær miklu kröfur sem
gera þyrfti til hæfni og menntunar íslenskra lög-
manna ef réttarkerfið ætti að jafnast á við það sem
best gerist með öðrum þjóðum.
Þegar nemendur höfðu fengið afhent prófskír-
teini sín bauð Gunnar Jónsson, formaður LMFÍ,
þá velkomna í Lögmannafélag Íslands. Hann
ræddi almennt um lögmannsstarfið og lagði sér-
staka áherslu á mikilvægi þess að lögmenn væru
sjálfstæðir og óháðir í störfum sínum. Þannig væri
grundvallaratriði að úrskurðar- og agavald yfir
lögmönnum yrði áfram hjá lögmannafélaginu.
Lögmenn, sem væru undir eftirlits- og agavaldi
stjórnvalda, gætu vart talist óháðir. Gunnar sagði
t. d. að stöðugt væri sótt að þagnarskyldunni undir
formerkjum annarskonar góðra og gildra hags-
muna, s.s. til varnar gegn peningaþvætti og í þágu
ýmiskonar rannsókna yfirvalda. “En lögmenn
hljóta að verjast slíkum árásum, þagnarskyldan er
liður í réttarörygginu. Borgararnir verða að geta
treyst því að lögmenn leki því ekki til yfirvalda
sem undir þá er borið. Þau réttindi borgaranna
verða lögmenn að vernda og sú barátta verður
ykkar í framtíðinni,” sagði Gunnar að lokum.
Lögmannablaðið ræddi við tvo nýútskrifaða
lögmenn, þau Vífil Harðarson og Helgu Hlín
Hákonardóttur um hvernig þeim hefið líkað nám-
skeiðið.
3 / 2 0 0 3
Metaðsókn að hdl-námskeiði
Hluti útskriftarnemenda á hdl-námskeiði vorið 2003 sem dóms- og kirkjumálaráðuneytið stóð fyrir.