Lögmannablaðið - 01.09.2004, Blaðsíða 8

Lögmannablaðið - 01.09.2004, Blaðsíða 8
8 og fulltrúa á lögmannsstofum sem og í sam- skiptum eldri og reyndari innanhússlögmanna gagnvart þeim yngri sem kæmu nýir inn. Brýnt væri að kynna siðareglur og mikilvægi þeirra fyrir yngri lögmönnum og þeim grunvallaratriðum sem gilda um störf og samskipti lögmanna og skjól- stæðinga. Fram kom að danska lögmannafélagið hefur nýlega tekið upp að bjóða litlum og miðl- ungsstórum stofum upp á ráðgjöf við gerð við- skiptaáætlana og er jafnframt að vinna að upplýsingariti um atriði sem huga þarf að við stofnun lögmannsstofa. Hugmyndir um afnám einkaréttar lög- manna til málflutnings Þriðja málefnið sem tekið var fyrir á fundinum snéri að hugmyndum Evrópuráðsins að setningu reglna um starfsemi lögmanna, m.a. út frá sam- keppnislegum forsendum, þar sem komið hefur til tals að afnema einkarétt lögmanna til málflutn- ings. Í máli Sys Rovsing Kock, formanns danska lögmannafélagsins og Henrik Rothe, fram- kvæmdastjóra félagsins, kom m.a. fram að ljóst væri að lögmenn þyrftu að fara í vissa naflaskoðun - ekki aðeins út frá því hvernig þeir líta á sig heldur hvernig markaðurinn lítur á lögmenn. Skilgreina þyrfti betur þær grundvallarreglur sem gilda um störf lögmanna og gera viðeigandi breytingar á siðareglum. M.a. þyrfti að gera strangari kröfur til lögmanna um kostnaðarupplýsingar til skjólstæð- inga í tengslum við störf þeirra auk upplýsinga- streymis um stöðu mála og framþróun. Einnig mætti hugsa sér staðlaða uppsetningu á tiltekinni þjónustu sem yrði sem slík verðlögð fyrirfram. Hins vegar bentu frummælendur á að kæmi til þess að einkaréttur lögmanna yrði afnuminn þyrfti slíkt alls ekki að hafa í för með sér vandamál fyrir lög- menn, stæðu þeir sig á annað borð í samkeppni við aðra sem byðu upp á slíka þjónustu. Hins vegar þyrftu lögmannafélögin að mæta hugsanlegri sam- keppni með markvissri endurmenntun og ráðgjöf, með því að standa vörð um þær grundvallarreglur sem hingað til hafa gilt í lögmennsku, ásamt skýrum siðareglum og með virku innra eftirlits- og agakerfi lögmannafélaganna. Lögmannafélögin gætu best verndað lögmannstitilinn með því að tryggja að aðeins þeir sem uppfylla þau skilyrði sem félögin setja, fái að nota titilinn. Bent var á þessu sambandi að einkaréttur lögmanna væri ekki til staðar í Svíþjóð en reynslan sýndi að almennt væri þó leitað til lögmanna, þ.e. félagsmanna sænska lögmannafélagsins, þar sem þeir hafi áunnið sér traust fyrir fagleg vinnubrögð. Samstarf lögmannafélaga Fjórða umræðuefnið á fundinum snéri að þátt- töku norrænu lögmannafélaganna í CCBE - sam- tökum evrópskra lögmannafélaga og IBA – alþjóðlegu lögmannasamtökum og hvernig sam- starfi norrænu lögmannafélaganna væri best borgið út frá sameiginlegum áherslum. Kari Laut- jarvi, formaður finnska lögmannafélagsins, gerði grein fyrir fyrirhuguðum skipulagsbreytingum á starfsemi IBA sem kynntar yrðu á aðalfundi sam- takanna í Auckland á Nýja Sjálandi í október n.k. Kari benti jafnframt á að þó svo samstarf norrænu lögmannafélaganna væri mikilvægt á vettvangi IBA væri slíkt samstarf ennþá mikilvægara innan CCBE, sem væri vettvangur sífellt vaxandi þáttar Evrópusambandsins í ákvarðanatöku og reglu- setningu í málefnum lögmanna og skjólstæðinga þeirra. Stækkun ESB og samsvarandi fjölgun aðildarfélaga CCBE undirstrikaði enn frekar mik- ilvægi samvinnu norrænu lögmannafélaganna og hugsanlega Eystrasaltslandanna þegar fram líða stundir, við að hafa áhrif í framgang og stefnu- mótun CCBE. 3 / 2 0 0 4

x

Lögmannablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.