Lögmannablaðið - 01.12.2011, Page 9
lögmaNNaBlaðið tBl 04/11 9
UMfJöllUn
Carolyn sagði að hjálpa yrði þeim
löndum sem eru í breytingaferli.
Lögfræðingar, sem arkitektar samfél-
agsins, gætu mótað réttarríkið til þess
að koma í veg spillingu og kúgun í
framtíðinni. Hlutverk lögfræðinga væri
að vernda réttarríkið og stuðla að réttlæti
um allan heim.
Lögmannafélög hafi mikilvægu
hlutverki að gegna í að fara fyrir breyt-
ingum og efla réttarríkið. Tryggja þurfi
aðgang að réttlæti, jafnt á krepputímum
eða þegar þjóðaröryggi er ógnað sem
endranær. Carolyn sagði það markmið
aba að efla og vernda réttarríki um
allan heim. Þótt lög séu mismunandi
verði réttarríkið að vera hafið yfir
landamæri. Á krefjandi tímum sem þeim
sem við lifum verði lögfræðingar að
vinna sameiginlega að því að standa
vörð um réttarríkið. Þeir hafa þekkinguna
og geti staðið vörð um réttlætið, heima
sem að heiman.
að viðhalda meginreglum
lýðræðis
evangelos tsouroulis, 2. varaforseti
CCBe samtaka evrópskra lögmanna
félaga, gerði skyldur lögmanna og
lögmannafélaga til þess að viðhalda
grunnreglum lýðræðis, standa vörð um
réttindi borgaranna, stuðning við
réttarríkið og réttarframkvæmdina sem
slíka að umtalsefni í sínu framsögu
erindi.
evangelos benti á að þetta hlutverk
lögmanna og lögmannafélaga, sem
viðurkennt væri af fjölda alþjóðlegra
stofnana, byggðist m.a. á sjálfstæði
lögmanna, tryggð og trúnaðarskyldu
þeirra við skjólstæðinga sína. Þetta
hlutverk hefði aukið vægi á erfiðum
tímum, hvort heldur sem þeir stöfuðu
af efnahagshruni eða upplausn stofnana
samfélagsins.
réttindi borgaranna
að mati evangelos þyrftu lögmannafélög
sífellt að minna stjórnvöld á hvert væri
hlutverk lögmanna. Á erfiðum tímum
grípi stjórnvöld gjarnan til aðgerða sem
bitna á frelsi einstaklingsins. Þá reynir
á reglur réttarríkisins. aðgerðir
stjórnvalda, sem fela í sér afnám
trúnaðarskyldu lögmanna, t.d. í nafni
varna gegn hryðjuverkum eða peninga-
þvætti, svipti borgara í raun réttinum til
að leita sér lögmannsaðstoðar. Sama
gilti um viðleitni stjórnvalda til að eyða
eða draga úr sjálfstæði lögmanna félaga
með því að færa ákvörðunarvald þeirra
og reglusetningu í eigin málefnum undir
forsjá ríkisins. Pólitískir brott rekstrar
dómara og saksóknara, sem og pólitískar
skipanir í þessi embætti, fælu einnig í
sér ógnun við réttarkerfið. Slíkri þróun
bæri að verjast af öllum mætti og
hlutverk lög mannafélaga væri m.a. í því
fólgið að viðhalda samræðum við
löggjafann og stjórnvöld til að tryggja
að ríkið virði alltaf sjálfstæði réttar-
kerfisins og lögmanna þar með. Slíkt
sjálfstæði réttarkerfisins væri grundvöllur
lýðræðissamfélaga, enda takmarkaði
það pólitísk afskipti eða stýringu og
tryggði þannig frelsi einstaklinganna.
evangelos sagði að lögmannafélög
hefðu það samfélagslega hlutverk að
fylgjast með og yfirfara laga- og reglu-
setningu stjórnvaldameð gagn rýnum
hætti. Hafa frumkvæði að gerð athuga-
semda og tillagna til hlutað eigandi aðila,
hvort heldur er löggjafans, ráðuneyta
eða dómstóla, varðandi úrbætur á lögum
og reglum, sem og túlkun þeirra. einnig
væri það hlutverk lögmanna og lög-
mannafélaga að tryggja að lögum og
reglum sé beitt af réttlæti og ekki sé
gengið of nærri réttindum einstaklinga
í réttarríkinu.
Hornsteinn lýðræðis
evangelos benti á að sjálfstæði réttar-
kerfisins væri í raun hornsteinn lýðræðis
og evrópskrar siðmenningar, sem legði
grunn að rétti þegnanna til réttlátrar
málsmeðferðar fyrir dómstólum. Tilraunir
stjórnvalda til þess að gera réttarkerfið
háð duttlungum stjórn málamanna,
óskum þeirra og þörfum, væru því í
raun árás á réttarríkið og lýðræðið sjálft,
auk þess að vera alvarlegt inngrip inn
í rétt þegnanna til réttlátrar málsmeð-
ferðar. Lögmannafélögin þyrftu jafnframt
að berjast fyrir því að þeir sem standa
höllum færi fjárhagslega séu ekki sviptir
rétti til að sækja mál sín fyrir dómstólum
eða taka til varna í slíkum málum. Slíkt
mætti gera með opinberri réttaraðstoð
eða pro-bono vinnu sem skipulögð væri
af lögmönnum eða lögmannafélögum.
Þá benti evanglos á að lögmanna-
félögum bæri að framfylgja agavaldi
sínu gagnvart félagsmönnum á sann-
gjarnan og hlutlausan hátt til að tryggja
að lögmenn ræki hlutverk sitt á full-
nægjandi og sæmandi hátt, þ.e.a.s. í
samræmi við lög, siðareglur og venjur
lögmannastéttarinnar.
að lokum tók evangelos fram að
lögmannafélögum beri að undirbúa
Berit reiss andersen tók dæmi af hryðjuverkum í Noregi í sumar.