Lögmannablaðið - 01.12.2011, Page 21
lögmaNNaBlaðið tBl 04/11 21
lMfÍ 100 ÁrA
stjórn lmfí 19711972 önnum kafin við undirskrift fundargerða. f.v.: Hrafnkell ásgeirsson
meðstjórnandi, Björn svein björnsson ritari, Benedikt Blöndal formaður, jón Ólafsson
varaformaður og Þorsteinn geirsson gjaldkeri.
ábyrgðarsjóður lögmanna
Árið 1969 var byrjað að undirbúa stofnun
ábyrgðarsjóðs sem átti að gera félaginu
kleift að bæta að hluta eða öllu leyti
tjón sem skjólstæðingur lögmanns yrði
fyrir vegna fjárþrots lögmanns. Fyrirmynd
að sjóðnum voru ábyrgðar sjóðir sem
störfuðu í noregi, Svíþjóð og Danmörku.
Árið 1970 var farið að leggja til hliðar í
ábyrgðarsjóð helming málagjalda sem
runnu til LmFÍ en frá árinu 1932 hafði
félagið fengið málagjöld af hverju
einkamáli er lögmenn lögðu sem
sækjendur í dóm eða gerðu sátt um og
fyrir hverju máli sem var áfrýjað til
Hæstaréttar.
Haustið 1976 var ábyrgðar sjóðurinn
formlega stofnaður. bætur var heimilt
að greiða úr sjóðnum þegar lögmaður
varð gjaldþrota en þær voru þó einungis
Brot úr sögu félags
greiddar ef féð hafði komist í hendur
lögmannsins vegna stöðu hans og að
honum hafi borið skylda til að varðveita
það vegna trúnaðarskyldu sinnar sem
lögmaður. Sjóðurinn eignaðist síðan
endurkröfurétt á hendur lögmanni eða
búi hans. Árið 1987 voru bætur greiddar
úr sjóðnum í fyrsta sinn, rúmlegar fjórar
milljónir króna, og árið 1992 féllu
ábyrgðir á sjóðinn vegna gjaldþrots
tveggja lögmanna. Í kjölfarið urðu miklar
umræður um sjóðinn á aðalfundi þar
sem félagsmenn lýstu sig andvíga því
að þeir yrðu gerðir ábyrgir fyrir afbrotum
annarra félagsmanna. Í kjölfarið hafði
LmFÍ frumkvæði að lagabreytingu, nr.
27/1995, um að skylda lögmenn til að
kaupa starfsábyrgðartryggingu og halda
fjárvörslureikninga. Ábyrgðarsjóðnum
var slitið árið 1999.78
LMFÍ 80 ára
Bókasafn lmfí var opnað á 80 ára afmæli
lmfí árið 1991 og í tilefni þess var
lögmönnum og dómurum boðið í hóf. f.v.
garðar gíslason hæstaréttardómari og
jóhann Pétur sveinsson lögmaður lyfta
glösum.
Vígsla Hæstaréttar 1996
Nýtt hús Hæstaréttar var vígt haustið 1996
og við það tilefni var hæstaréttarlögmönnum
boðið til móttöku. f.v. sveinn snorrason,
jónas a. aðalsteinsson og guðmundur
ingvi sigurðsson.