Lögmannablaðið - 01.12.2011, Blaðsíða 32
32 lögmaNNaBlaðið tBl 04/11
ViðtAl
lögmennska, samskipti milli lögmanna
og tæknibylting
viðtal við nýja heiðursfélaga
í tilefNi aldarafmælis lmfí
bættust fimm nýir heiðursfélagar í hóp
þeirra 14 sem áður hafa verið kjörnir.
Þetta eru þau ragnar aðalsteinsson
hrl., Hákon árnason hrl., Þórunn
guðmundsdóttir hrl., jón steinar
gunnlaugsson hæstaréttardómari og
gestur jónsson hrl. en öll eiga þau það
sameiginlegt að hafa starfað við góðan
orðstír í lögmennsku, verið formenn
lmfí og unnið að fjölmörgum
trúnaðarstörfum fyrir félagið. í byrjun
aðventu settust ása Ólafsdóttir og
ingimar ingason niður með heiðurs
félögunum og ræddu við þau um
lögmennsku fyrr og nú, tæknibyltingu
og samskipti milli lögmanna.
tölvuvæðing og fjölgun lög
manna
Hvað hefur breyst í lögmennsku frá því
þið hófuð lögmannsferil ykkar?
Þórunn: Ég byrjaði í lögmennsku
vorið 1984 og það er tvennt sem ég vil
nefna. Það fyrra er gríðarleg fjölgun
lögmanna en þegar ég hóf störf þá
þekkti ég alla lögmenn. Hið síðara er
tölvuvæðingin en áður voru t.d.
innheimtumál öll reiknuð í höndunum.
Jón Steinar: ritari minn var með
fimm kalkipappírsblöð á milli síðna í
ritvélinni.
Hákon: Ég man eftir ágætum
lögmanni sem lamdi svo fast á ritvélina
þegar hann var að leggja áherslu á málin
að það voru göt í gegn á pappírnum.
Ragnar: Tæknibyltingin í mínum
huga er telefaxið. rétt eftir að ég komst
í tæri við slíkan munað kom upp mál
sem var unnið var að í þremur löndum;
Írlandi, Frakklandi og á Íslandi og við
leystum það á tæpum sólarhring
eingöngu vegna þessarar tækninýjungar.
verkefni frábrugðin því sem
nú er
Gestur: Verkefni lögmanna voru
mjög frábrugðin því sem nú er. Ég
byrjaði 1975 og þá var fjármálakerfið
og form viðskipta allt öðru vísi en nú.
Þau verkefni sem lögmenn sinntu voru
að stærstum hluta til einhvers konar
innheimtumál. Þegar ég varð formaður
Lögmannafélagsins árið 1989 var
ástandið þannig að fleiri dómsmál voru
þingfest í Héraðsdómi reykjavíkur
heldur en í Stokkhólmi og ástæðan var
sú að hér voru menn í stórum stíl að
þingfesta fjárkröfur út af einföldum
viðskiptum. engin deila var um hvað
væri rétt eða rangt heldur var þetta
afleiðing af óstjórn í efnahagsmálum,
verðbólgu og því kerfi sem við bjuggum
við.
Hákon: Þegar ég byrjaði árið 1966
var einyrkjabúskapur yfirgnæfandi í
lögmennskunni og lögmenn þurftu að
vera færir um að sinna hvaða sviði sem
var. Síðan hafa lögmannsstofurnar orðið
stærri og sérhæfingin meiri. Það er
stærsta breytingin fyrir utan tækni-
breytingarnar. Svo hefur orðið veruleg
breyting á réttarfarinu. menn stefndu
inn máli og fóru í gagnaöflun þegar
búið var að úthluta dómara. Síðan var
verið að tína inn eitt og eitt vitni í
þinghald, málinu svo frestað í tvo
mánuði og svo næsta vitni og