Lögmannablaðið - 01.12.2011, Blaðsíða 35
lögmaNNaBlaðið tBl 04/11 35
ViðtAl
Hákon árnason.
lögmenn í reykjavík í síma nema einn
og ég man að við slepptum einu sinni
þremur togurum út af símtali frá
lögmanni. Þá fékk ég reyndar bakþanka
en það stóð allt sem samið var um. Þetta
mundi ekki hvarfla að mér í dag. allt
skjalfest og það er kannski hluti af
þessari samkeppni.
í tjaldi í rjóðri
Er meira álag á lögmönnum í dag en
áður? Er vinnutíminn lengri?
Ragnar: Já, þetta er álag sem fylgir
tækninni. Ég fór venjulega í tveggja
vikna tjaldtúr með allt mitt hafurtask á
sumrin og einu sinni var starfsfólk á
símstöð úti á landi látið leita að mér.
Það fann mig í tjaldi í rjóðri. Álagið
hefur aukist við tölvupóst og farsíma
en viðskiptavinir ætlast til að hægt sé
að ná í mann hvenær sem er.
Þórunn: Ég er á stórri lögmannsstofu
og það er alltaf hægt að ná í mig, sama
hvar í veröldinni ég er stödd. Þannig
að ef svo stendur á að ég geti ekki sinnt
verkefninu þá eru aðrir til staðar á
staðnum sem geta tekið við. Hraðinn
er meiri en ekki meira álag.
Gestur: Ætli þetta sé ekki einstak-
lingsbundið. Sumir hafa meira að gera
en aðrir og svo er eðli verkefnanna
þannig að sumt getur beðið en annað
ekki. Því meira sem áreitið er þeim mun
mikilvægara er að skipuleggja vinnu-
tímann vel. mér finnst mér ganga betur
að skipuleggja vinnutímann nú heldur
en áður var. Kannski lærist eitthvað.
sérhæfing lögmanna
Löggjöfin hefur breyst mikið og nú er
orðið miklu meira um tæknilegri
útfærslur í lögum. Gerir það kröfu um
meiri sérhæfingu meðal lögmanna?
Jón Steinar: Ég hef alltaf litið svo
á að lögmenn sem eru í flutningi
dómsmála eigi að vera svokallaðar
alætur. málflytjendur eigi ekki að
sérhæfa sig í ákveðnum tegundum mála
frekar en ég væri hlynntur því að
dómarar gerðu það.
Hákon: Þú verður þá að hafa
sérfræðing við hlið þér sem undirbýr
málið. ef ég færi að flytja mál í
höfundarétti, sem ég hef lítið sinnt, þá
þyrfti ég að hafa sérfræðing í þeim
málaflokki mér við hlið.
Jón Steinar: Lögfærðin er þannig
að almennar reglur, réttarheimildir og
beiting þeirra ræður úrslitum mála.
aðferðirnar eru i meginatriðum þær
sömu í öllum efnisflokkum mála.
Gestur: Þessi sjónarmið eiga
örugglega við um dómara en ég er ekki
viss um að þau eigi jafnt við um
lögmenn. mér líður mjög misjafnlega
vel þegar ég er að flytja mál eftir því
hvort mér finnst ég hafa fræðin á
viðkomandi réttarsviði á valdi mínu.
ekki vegna þess að það breyti miklu
um hvernig ég flyt málið heldur vegna
þess að í góðum málflutningi þá koma
gjarnan spurningar frá dómnum og þær
spurningar lúta ekki bara að réttar-
farsatriðum heldur líka efnisatriðum.
Jón Steinar: Þú ert samt að tala við
dómarann sem er af sömu gerð og þú
sjálfur. Dómari sem hlustar á mikinn
sérfræðing í máli er kannski ekkert nær
um niðurstöðuna. Sérfræði getur
stundum orðið of mikil og menn missa
sjónar á meginatriðum vegna hennar.
Lögmenn og dómarar eiga í grunninn
að vera „generalistar“, þ.e. sérfræðingar
í málflutningi fyrir dómstólum.
Ragnar: Þetta snýst um sönnun og
sönnunarmat ekki um sérþekkingu á
ákveðnu máli. maður getur lært
heilmikið um þyrlur vegna þyrluslyss
sem maður flytur mál um fyrir dómi en
það er bara skaðabótaréttur í grunninn.
ný lög koma og til dæmis má nefna
málaflokka eins og fjarskiptarétt og
samkeppnisrétt. Það er erfitt að fylgjast
með öllum breytingum og ég held að
það sé útilokað að ráðleggja skjól-
stæðingum á öllum sviðum.
Gestur: mér hefur alveg mistekist
f.v. jón steinar gunnlaugsson og ragnar
aðalsteinsson.