Lögmannablaðið - 01.12.2011, Síða 38
38 lögmaNNaBlaðið tBl 04/11
lMfÍ 100 ÁrA
útgáfumál: að eiga vekjara í
sem flestum greinum
Útgáfa tímarits um lögfræði hófst 14
árum áður en málflutningsmannafélag
Íslands var stofnað, árið 1897, er tímarit
sem bar nafnið Lögfræðingur hóf göngu
sína. að útgáfunni stóð Páll briem en
ritið bar undirtitilinn Tímarit um
lögfræði, löggjafarmál og þjóðhagsfræði.
Tímarit Páls kom út í alls fimm ár, til
ársins 1901.
málflutningsmannafélag Íslands var
ungt að árum þegar byrjað var að ræða
útgáfu sérstaks lögfræðirits. Á fundi árið
1918 ræddi Ólafur Lárusson, síðar
prófessor við lagadeild Háskóla Íslands,
um að félagið stofnaði eða styddi við
útgáfu lögfræðirits en ekkert varð að
því að sinni.
ekki er að sjá að málflutningsmanna-
félag Íslands hafi átt þátt í útgáfu
Tímarits lögfræðinga og hagfræðinga
sem kom fyrst út árið 1922. Félag hafði
verið stofnað um útgáfuna en í stjórn
þess voru lögfræðingarnir Lárus H.
bjarnason og Ólafur Lárusson. Í formála
Brot úr sögu félags
ritsins segir að engri þjóð væri jafn
áríðandi og Íslendingum að eiga vekjara
í sem flestum greinum vegna fjarlægðar
landsins frá menningarlöndum, fámennis
og frumbýlingsháttar. ritið kom út
ársfjórðungslega og átti að flytja
frumsamdar fræðigreinar, ritdóma og
fagnýjungar frá útlöndum, taka þátt í
umræðum um löggjöf og lagafram-
kvæmdir. Tímaritið varð ekki langlíft en
einungis tveir árgangar voru gefnir út
af því, sjö hefti alls.
ekki vansalaust af íslenskum
lögfræðingum
Þótt minnst væri á útgáfumál á fundum
félagsins a.m.k. tvisvar á fjórða ára-
tugnum og stofnuð nefnd til að kanna
grundvöll að útgáfu blaðs varð það ekki
fyrr en árið 1950 sem aðalfundur LmFÍ
fól stjórn að hefja útgáfu lögfræðitímarits
svo fljótt sem verða mætti. einar
arnórsson varð ritstjóri og í ritnefnd
voru dr. Ólafur Lárusson prófessor, Árni
Tryggvason hæstaréttardómari og
Theodór b. Líndal hrl. Þann 1. apríl 1951
kom Tímarit lögfræðinga út í fyrsta skipti
og í formála sem stjórnarmenn LmFÍ
skrifuðu segir það varla geta talist
vansalaust af íslenskum lögfræðingum
að hafa ekki fyrir löngu stofnað tímarit
um lögfræðileg efni. Hét stjórnin á alla
lögfræðinga að slá skjaldborg um ritið.
LmFÍ stóð að útgáfu Tímarits lögfræðinga
þangað til 1960 en þar sem Lög fræð-
ingafélag Íslands hafði verið stofnað
árið 1958 þótti eðlilegt að allsherjarfélag
lögfræðinga tæki við útgáfunni.
með eiNu m
einu sinni var Kristján Stefánsson að
verja mann sem ákærður var fyrir að
hafa falsað ógrynni af ávísunum. Þar
sem ávísanirnar voru flestar upp á fimm
og fimmtán þúsund krónur en
upphæðirnar aðeins skrifaðar með einu
m-i þá var vörn Kristjáns sú að
skjólstæðingur hans væri miklu betri í
stafsetningu en þetta.