Lögmannablaðið - 01.12.2011, Blaðsíða 45
lögmaNNaBlaðið tBl 04/11 45
lMfÍ 100 ÁrA
„en lítum fram á veginn og metum stöðu og tækifæri lögmanna. Ég tel ólíklegt að lögmannsstofum
eigi eftir að fjölga þótt lögmönnum fjölgi. Þar komi til bæði sameining lögmannsstofa og að fjölgun
í lögmannastéttinni verði aðallega hjá stærri lögmannsstofum. Sérhæfing lögmanna muni aukast
með flóknara lagaumhverfi og líklegra sé að sú sérhæfing gerist á stærri stofum fremur en hjá
einyrkjum. Þá er líklegt að aukin erlend samskipti eigi eftir að færa lögmönnum tækifæri, einkum
þeim sem búa yfir færni í ensku lagamáli og hafa þokkalega þekkingu á umhverfi viðskipta- og
fjármálastofnana.“
Ásgeir thoroddsen formaður LMFÍ á 90 ára afmæli félagsins.41
lmfí 90 ára: litið fram á vegiNN
skák og bridge
margir af bestu skákmönnum þjóðarinnar í gegnum tíðina hafa verið félagar í
Lögmannafélaginu og áður fyrr voru skákmót haldin reglulega. mörður lögmaður
hefur ekki látið sig vanta á þau frekar en á aðra viðburði. Hann sést hér til vinstri
á minningarmóti um bobby Fischer sem haldið var árið 2008 en það er eitt af fáum
mótum sem haldið hefur verið síðustu ár. með honum á myndinni er björgvin
Jónsson hrl. en Ágúst Sindri Karlsson hrl. sigraði mótið. Áður voru bridgemót haldin
reglulega á vegum félagsins en lítið hefur farið fyrir því síðustu ár.42
„Annað hvort er lögmaður að hjálpa
mönnum eða hann er ekki í þessu djobbi.
hann má ekki fara eftir því hvað honum
finnst frekar en dómari. Lögmaður verður
að hjálpa skjólstæðingnum á allan hátt,
hann er eiðsvarinn til þess.“
Örn Clausen hrl. í Lögmannablaðinu
2005.44
í Þessu djoBBi
deilur um hlutverk lmfí
Á aðalfundi LmFÍ árið 1995 kom fram
ályktun átta lögmanna um að aðalfundur
teldi það ekki samrýmast eðli og tilgangi
félagsins, þar sem lög kvæðu á um
skylduaðild, að það tæki þátt í starfsemi
félagasamtaka um þjóðfélagsmál né
heldur að gefnar væru út álitsgerðir,
umsagnir eða ályktanir þar sem pólitísk
afstaða væri tekin í nafni félagsins í
umdeildum þjóðfélagsmálum. Því ætti
að hætta aðild félagsins að mann-
réttindaskrifstofu Íslands og að stjórn
félagsins gætti þess framvegis að ekki
væru gefnar út pólitískar ályktanir í nafni
þess. miklar umræður urðu um ályktun-
ina sem var á endanum samþykkt með
73 atkvæðum gegn 44.43
Stjórn LMFÍ 1994-1995
f.v. ragnar aðalsteinsson formaður, ingólfur Hjartarson varaformaður, lárus l. Blöndal
meðstjórnandi, ásgeir magnússon, gjaldkeri, guðni á. Haraldsson ritari og marteinn
másson framkvæmdastjóri.