Lögmannablaðið - 01.12.2011, Side 47
lögmaNNaBlaðið tBl 04/11 47
lMfÍ 100 ÁrA
ÞYrla uPP úr BotNiNum
sigurður Ólason og ágúst fjeldsted
Sigurður Ólason fór gjarnan út og suður
í málatilbúnaði sínum fyrir dómstólum í
þeirri vissu að það væri aldrei að vita
hvaða flugu dómari tæki; -Í stað þess að
henda út einni og einni flugu þá er nær
að þyrla upp úr öllu fluguboxinu, sagði
hann.
f.v.: svala thorlacius, kristín edwald, Hjördís e. Harðardóttir, inga Þöll Þórgnýsdóttir
og sif konráðsdóttir.
félag kvenna í lögmennsku
Haustið 2003 var stofnaður undir-
búningshópur til stofnunar sérstaks
félags kvenna í lögmennsku. Í hópnum
voru tíu konur sem áttu það sameiginlegt
að finnast konur ekki nógu sýnilegar
og virkar innan LmFÍ og umræðan um
lögmannsstarfið vera á þeim nótum að
það væri ekki nógu aðgengilegt fyrir
ungar konur.
Þann 4. mars 2004 var Félag kvenna
í lögmennsku stofnað af 70 félagskonum
LmFÍ, helmingi kvenna í félaginu.
Tilgangur FKL var að efla samstarf og
styrkja stöðu kvenna í lögmannastéttinni
sem og að auka áhrif og þátttöku þeirra
í lögmennsku. ennfremur hugðist
félagið gera konur í lögmannastéttinni
sýnilegri, halda uppi umræðu og standa
vörð um málefni og hagsmuni kvenna
í stéttinni. Í fyrstu stjórn FKL voru
kjörnar Sif Konráðsdóttir hrl., formaður,
Helga melkorka Óttarsdóttir hdl., Kristín
edwald hdl., margrét einarsdóttir hdl.
og Svala Thorlacius hrl. Varamenn voru
Hjördís Harðardóttir hdl. og inga Þöll
Þórgnýsdóttir hdl. Á stofnfundinum var
guðrún erlends dóttir hæstaréttar dómari
kjörin heiðursfélagi en hún starfaði sem
lögmaður 1961-1976.
Frá upphafi hefur FKL staðið fyrir
ýmsum viðburðum. Fastur liður er
árlegur fundur með félögum kvenna í
öðrum starfsgreinum en félagið hefur
einnig staðið fyrir gönguferðum,
fundum og ráðstefnum, sjósundi og
keilu svo fátt eitt sé nefnt.50
frumskYlda lögmaNNsiNs
„Sækjandi og verjandi í sakamáli vinna báðir að því að efla rétt og hrinda órétti. Sama gildir um lögmenn stefnanda og stefnda í
einkamáli. Þótt kröfur og röksemdir gangi í gagnstæðar áttir vinna þessir aðilar sameiginlega að því að úrlausn þrætunnar fáist á
forsendum réttarríkisins. Lögmaður sem gætir hagmuna skjólstæðings síns af trúmennsku þjónar réttarríkinu. Í því felst
frumskylda lögmannsins.“
Gestur Jónsson hrl. í Lögmannablaðinu 2009.55
LMFÍ 50 ára
í tilefni 50 ára afmælis félagsins árið 1961 efndi það til mikillar veislu í sjálfstæðishúsinu
við austurvöll.