Lögmannablaðið - 01.12.2011, Page 52
52 lögmaNNaBlaðið tBl 04/11
lMfÍ 100 ÁrA
Árið 1973 var ákveðið að ráða
skrifstofustjóra til Lögmannafélagsins
og var arnbjörg edda guðbjörnsdóttir
ráðin en hún hafði verið lögmannsritari
á skrifstofa Ágústs Fjeldsted á 7.
áratugnum. Jónína bjartmarz var
skrifstofustjóri í þrjú ár samhliða
laganámi til 1981, en þá var fyrsti
framkvæmdastjórinn ráðinn til félagsins,
Hafþór ingi Jónsson hdl. Hafþór starfaði
Brot úr sögu félags
Það fennir ekki í feilsporin
margar góðar sögur hafa verið sagðar
af lögmönnum og skjólstæðingum þeirra
í gegnum tíðina sem ekki mega falla í
gleymsku. Í tilefni af 100 ára afmæli
Lögmannafélagsins var kallað á nokkra
góða sögumenn og setið með þeim
skemmtilega eftirmiðdagsstund þar sem
sögur af Jóni e. ragnarssyni, Sigurði
georgssyni, Páli S. Pálssyni og fleiri
litríkum lögmönnum fuku. Sögumenn
voru talið frá vinstri: Helgi Jóhannesson,
markús Sigurbjörnsson, gunnar Jónsson,
Stefán Pálsson og Kristján Stefánsson
en sögurnar er að finna dreifðar um
afmælisblaðið.
til 1989 og þá tók Unnur gunnarsdóttir
hdl. við af honum til 1990. marteinn
másson hdl. var framkvæmdastjóri 1990
til 1999 er ingimar ingason hdl.,
núverandi framkvæmdastjóri tók við.
auk framkvæmdastjóra hefur ritari verið
í fullu starfi á skrifstofunni og starfsmaður
félagsdeildar í hlutastarfi frá stofnun
hennar.52
árið 1974 var skrifstofa félagsins opin fjóra daga vikunnar frá 912 og einn dag kl. 1317.
á myndinni er arnbjörg edda ásamt stjórn lmfí árið 19751976. f.v: sveinn Haukur valdi
mars son, arnbjörg edda guðbjörnsdóttir, Páll s. Pálsson, guðjón steingrímsson, ragnar
aðal steinsson og skúli Pálsson. skrifstofa félagsins var þá á Óðinsgötu 4.
skrifstofu og framkvæmdastjórar lmfí
BarNslegt aNdlit
Steingrímur Þormóðsson var eitt sinn á fundi með ungum lögmanni þar sem þeir deildu um hagsmuni skjólstæðinga sinna. Þegar
Steingrími var farið að leiðast þófið sagði hann við unga lögmanninn:
-Þú ert bara eins og ónefndur útrásarbankastjóri.
- Nú? sagði sá ungi hissa.
- Þið eruð báðir með svona barnsleg andlit og sakleysisleg. Svo bara ljúgið þið framan í mann!