Lögmannablaðið - 01.12.2011, Qupperneq 58
58 lögmaNNaBlaðið tBl 04/11
lMfÍ 100 ÁrA
lögmenn fylgjandi eftirlits
og agavaldi hjá félaginu
Veturinn 1997 var í fyrsta skipti gerð
viðhorfskönnun meðal lögmanna. Tilefni
hennar var að gefa lögmönnum kost á
því að tjá sig um nokkru álitaefni sem
fólust í tillögum um breytingar á löggjöf
um lögmenn sem og að fá skoðanir
félagsmanna á einstökum þáttum
starfseminnar. Spurningalisti var sendur
til 465 félagsmanna og bárust svör frá
48,5%. Yfirgnæfandi meirihluti var
fylgjandi því að eftirlits- og agavald væri
innan LmFÍ, hjá stjórn eða sérstakri
nefnd. 64% svarenda fylgjandi skyldu-
aðild að LmFÍ og 72% fylgjandi því að
einungis lögmenn ættu og rækju
lögmannsstofur. Þá voru flest allir þeirrar
skoðunar að fræðslustarf yrði meira eða
álíka mikið og verið hafði og að
bókasafnið yrði rekið með sama sniði.56
stjórn lmfí 19971998 ásamt framkvæmdastjóra. f.v. sigurbjörn magnússon meðstjórnandi,
kristín Briem gjaldkeri, sigurmar k. albertsson formaður, marteinn másson
framkvæmdastjóri, jakob r. möller varaformaður og kristinn Bjarnason ritari,
játNiNg
einu sinni var piltur fyrir dómi sem var ákærður fyrir ýmis brot. Svo spurði dómari hver væri afstaða hans til ákærunnar og hann
sagði: - Ég játa.
-Nú, sagði dómarinn Ólöf Pétursdóttir sem taldi þar með málið auðdæmt.
-Ég játa mig saklausan, bætti þá pilturinn við.
Að sögn vitna átti piltur að hafa tekið þátt í að stela pressu en hann neitaði því afdráttarlaust:
-Í fyrsta lagi þá vinn ég alltaf einn.
Þá var honum bent á að það hefðu verið vitni af þessu og fingraför hans hefðu fundist.
-Það getur ekki verið, ég var ekki einu sinni þarna á staðnum og svo var ég með hanska!
minnisvarði um
Hafliða másson
Á félagsfundi LmFÍ hinn 23. nóvember
1973 kom Sigurður Ólason með þá
tillögu að félagið minntist 1100 ára
afmælis Íslandsbyggðar með því að setja
upp skjöld á breiðabólstað í Vesturhópi
þar sem fyrstu lög voru skráð á Íslandi.
Tillagan fékk afar góðar undirtektir og
fóru forsvarsmenn félagsins norður í
land til að velja stað fyrir minnisvarðann
sem var svo reistur með viðhöfn.61
forystumenn lögmannafélags íslands fóru
norður í Húnaþing ásamt fríðu föruneyti og
afhjúpuðu minnisvarðann. f.v.: skúli Pálsson
hrl. egill sigurgeirsson hrl., Páll s. Pálsson
hrl., Benedikt sigurjónsson forseti
Hæstaréttar., Baldur möller ráðuneytisstjóri
og guðjón steingrímsson hrl.
Brot úr sögu félags