Lögmannablaðið - 01.12.2011, Qupperneq 63
lögmaNNaBlaðið tBl 04/11 63
lMfÍ 100 ÁrA
Bókasafn lmfí
Umræður um að málflutningsmannafélag
Íslands þyrfti að koma sér upp
lögfræðibókasafni urðu strax í árdaga
félagsins en á fundi 1914 kom Sveinn
björnsson með þá hugmynd að félagið
keypti lögfræðirit. Fundarmenn töldu
félagið ekki hafa efni á því en settu
nefnd til að athuga málið sem auglýsti
eftir frjálsum framlögum félagsmanna
til bókakaupa. ekki urðu þeir við þessari
málaleitan stjórnar en hún fékk því
framgengt að landsbókasafnið hóf að
kaupa áskrift að dönskum tímaritum.
aftur var rætt um bókasafn á aðalfundi
málflutningsmannafélags Íslands árið
1925 og málið var öðru hverju til um-
ræðu næstu áratugina. meðal annars
komu fram hugmyndir í blaði lögmanna
árið 1963 um að félagið kæmi sér upp
sérstöku fræði- og handbókasafni þar
Þorsteinn Pálsson, dóms og kirkju málaráðherra, hélt ræðu í tilefni opnunar bókasafns
lmfí 1991. f.v. Hrafn Bragason forseti Hæstaréttar, gestur jónsson formaður lmfí og
Þorsteinn Pálsson.
sem þau bókasöfn sem lögmenn gátu
leitað til, s.s. Háskólabókasafnið, væru
ófullnægjandi og með slæmum starfs-
skilyrðum. mörgum lögmönnum gengi
illa að útvega sér erlend lögfræðirit og
bókasafn yrði hvatning til lögmanna til
að stunda meiri vísindastörf.
Fyrsti vísir að bókasafni kom árið
1974 þegar félagið fékk að gjöf bækur
frá Lárusi Jóhannessyni en þeim var
komið fyrir á skrifstofu félagsins. Síðan
barst félaginu rausnarleg bókagjöf frá
erfingjum ragnars Ólafssonar og Jón e.
ragnarsson ánafnaði félaginu bókasafni
sínu er hann lést árið 1983. bókasafn
Lögmannafélags Íslands var formlega
opnað árið 1991 í tilefni 80 ára afmæli
félagsins - 77 árum eftir að Sveinn
björnsson hreyfði fyrst við hug-
myndinni.64
Handbók lögmanna
Um miðjan 8. áratuginn var farið að
gefa út möppu sem bar nafnið Handbók
lögmanna. Í henni var að finna ýmsar
gagnlegar upplýsingar fyrir lögmenn en
félagið sendi þeim uppfært efni í
handbókina þegar þurfa þótti. Þegar
heimasíða félagsins var tekin í notkun
árið 1998 var handbókin sett á heimasíðu
félagsins.65
svo fallvalt er geNgi
HeimsiNs
Þegar nágrannasveitarfélög Reykjavíkur
tóku að þenjast út á síðari hluta 20. aldar
kom það fyrir að í nýjum byggingalöndum
fyndust fyrir hræ af gömlum sumar-
bústöðum. oft höfðu þessi hús verið
reist á grundvelli einhverra samninga við
sveitarfélögin en lengi var þessu lítill
gaumur gefinn og hræin rifin án þess að
hirða um að ljósmynda þau eða gæta að
hagsmunum rétthafa yfir þeim.
Þar kom að menn fóru að birtast á
bæjarskrifstofum og krefjast bóta fyrir
gömul sumarhús sem hefðu verið rifin.
Maður nokkur, sem var allþekktur
óreglumaður, stefndi einu af sveitar-
félögunum fyrir að hafa rifið sumarhöll
fjölskyldunnar til að rýma fyrir nýju hverfi.
eins og gengur var málinu frestað ítrekað
á meðan starfsmenn bæjarins reyndu
að átta sig á því hvaða gögn væru til um
þessa stórmerkilegu byggingu. Þar kom
að fundað var um málið og lögmaður
mannsins, Kristján Stefánsson, lýsti því
fjálglega hvílíkt áfall það hefði verið
umbjóðanda sínum að koma grandalaus
að vitja þessa glæsi hýsis forfeðranna,
aðeins til að sjá viðurstyggð eyðilegg-
ingarinnar. taldi lögmaðurinn að
umbjóðandinn hefði langt í frá jafnað sig
á þessari upplifun. Lögmaður bæjarins
stakk því þá að Kristjáni að raunar hefði
umbjóðandinn látist fyrir ári síðan.
Kristján tók þessu af yfirvegun og svaraði
að bragði -Sic transit gloria mundi, sem
útleggst á íslensku: svo fallvalt er gengi
heimsins.
Fjórir félagar
Páll a. Pálsson, kristinn sigurjónsson, ingi r. Helgason og guðjón steingrímsson fyrir
utan sumarbústað lmfí árið 1977.