Lögmannablaðið - 01.12.2011, Síða 66
66 lögmaNNaBlaðið tBl 04/11
lMfÍ 100 ÁrA
Brot úr sögu félags
dr. gunnlaugur Þórðarson við stuðlabergsdrangana sem hann lét setja niður við goðafoss.
minnisvarði við goðafoss
Árið 1990 fékk dr. gunnlaugur Þórðarson
samþykkta tillögu á aðalfundi LmFÍ um
að félagið léti reisa minnisvarða við
goðafoss, um þann atburð þegar Þorgeir
Ljósvetningagoði lagðist undir feld í þrjá
daga áður en hann leiddi til lykta deildu
Ásatrúarmanna og kristinna á Þingvöllum
árið 1000. næstu ár sló stjórn félagsins
sífellt á frest að vinna að málinu þar
sem önnur meira aðkallandi verkefni
tóku tíma hennar. Dr. gunnlaugur reyndi
að fylgja málinu eftir með því meðal
annars að koma með teikningar af
minnisvarða til stjórnar og bjóða stjórn
og framkvæmdastjóra félagsins í
dýrðlegan kvöldverð í bústað sínum við
Helluvatn í rauðhólum til að ræða
málið.
Á endanum gafst dr. gunnlaugur
upp á sinnuleysi stjórnar og tók málið
í sínar hendur. Hann fór norður og samdi
við heimamann um að setja niður
stuðlabergsdranga á eyju á bílastæði,
sem nýbúið var að gera við goðafoss.
Stuttu síðar fékk skrifstofa félagsins
upphringingu frá oddvita sveitastjórnar
á svæðinu sem var ósátt við að Lög-
manna félagið setti niður minnismerki
án þess að ræða við skipulagsnefnd eða
sveitarstjórn. marteinn másson fram-
kvæmdastjóri og Sigurmar K. albertsson
formaður fóru af þessu tilefni norður
og hittu oddvitann á fundi til þess að
ræða málið. Úr varð að stuðlabergs-
drangarnir fengu að standa áfram á
eyjunni og félagið lét steypa járnplötu
með áletrun um hinn merka atburð árið
1000. Síðan hefur minnisvarðinn staðið
á sínum stað, félaginu og dr. gunnlaugi
til mikils sóma.81
Það mátti reYNa Það
f.v. kristján stefánsson og Hilmar
ingimundarson.
Hilmar ingimundarson átti til að vera
svolítið brögðóttur í réttarsal og einu
sinni kom hann með nýjar málsástæður
í seinni ræðu sem ekki þykja vera góð
vinnubrögð. Lögmaður gagnaðila
mótmælti með því að grípa fram í fyrir
Hilmari, sem þykja heldur ekki góð
vinnubrögð. Mælti Hilmar þá dúnmjúkri
röddu: -Ég ætla ekki að fara fram á það
að lögmaður gagnaðila verði víttur fyrir
frammíköll.
eitt sinn sagði dómari við Hilmar
þegar hann kom með nýjar málsástæður
í réttarsal: -Hilmar, svona gerir maður
ekki.
-Æ, svaraði Hilmar; -það má reyna
það.
veistu Hver ég er?
eitt sinn kom Hilmar akandi inn á bílaport
lögreglu og lagði þar bílnum. Kom þá
hlaupandi út lögreglumaður í fullum
skrúða og tjáði Hilmari að bílastæðin
væru einungis fyrir lögreglumenn og
starfsmenn embættisins.
Hilmar svaraði þá að bragði: -Veistu
hver ég er?
Lögreglumaðurinn varð hvumsa og
sagði: -Nei það veit ég ekki.
Þá svaraði Hilmar: -ef þú veist ekki
hver ég er, þá hef ég fullar efasemdir
um að þú sért lögreglumaður og mér
ber ekki skylda til að hlusta á þig.