Lögmannablaðið - 01.12.2011, Blaðsíða 67
lögmaNNaBlaðið tBl 04/11 67
lMfÍ 100 ÁrA
auk þess að standa fyrir faglegum
námskeiðum fyrir lögmenn stendur
félagsdeild öðru hvoru fyrir öðruvísi
námskeiðum. á myndinni eru lögmenn og
fylgifiskar að læra sushigerð.
Námssjóður
Á aðalfundi árið 1970 var námssjóður
Lögmannafélags Íslands stofnaður og
var honum m.a. ætlað að efla fram-
haldsmenntun með styrkveitingu til
einstakra lögfræðinga og með fjár-
framlögum til fræðslufunda og
námskeiða. Tekjustofn námssjóðs var
20% af málagjöldum sem greidd voru
við þingfestingu dómsmála og rann til
LmFÍ. aðrar tekjur sjóðsins voru vextir
af innistæðum, gjafir og önnur framlög.
Á meðan sjóðurinn var að eflast fyrstu
árin var starfsemi engin og sá þá
félagssjóður LmFÍ um að styrkja
námskeiðahald lögfræðinga. Í árslok
1974 var eign sjóðsins rúmlega ein
milljón krónur og á næstu árum styrkti
námssjóður útgáfu Tímarits lögfræðinga
og Úlfljóts, gaf út nokkrar bækur
lögfræðilegs efnis auk þess að styrkja
lögmenn til utanfara. Frá árinu 1992
hefur starfað sérstök fræðslunefnd sem
hefur það hlutverk að vera stjórn til
ráðuneytis um fræðslu- og endur-
menntunarmál lögmanna. 1998 hóf LmFÍ
samstarf við endur menntunarstofnun
Háskóla Íslands ásamt Lögfræðingafélagi
Íslands um endurmenntun lögmanna
og annarra lögfræðinga. Frá árinu 2002
hefur námssjóður staðið fyrir nám-
skeiðum hjá félagsdeild LmFÍ.79
stjórn lmfí 19601961. f.v. Þorvaldur lúðvíksson, gísli einarsson, ágúst fjeldsted
formaður, egill sigurgeirsson og jón N. sigurðsson.
lífeyrissjóður lögmanna
Á 6. áratugnum komu upp hugmyndir um stofnun lífeyrissjóðs fyrir lögmenn og
málið rætt á fjölmörgum fundum. Sjóðurinn var stofnaður árið 1960 en hann laut
sérstakri stjórn og hafði eigin samþykktir. Þar sem félagsmenn voru of fáir tókst
ekki að byggja upp öflugan lífeyrissjóð auk þess sem eignir hans rýrnuðu í
verðbólgu á sjöunda og áttunda áratugnum. Var hann lagður niður árið 1983.77
línuritið hér að ofan sýnir fjölgun félagsmanna frá stofnun lögmannafélagsins árið 1911
til ársins 2011. fjölgunin er tiltölulega jöfn lengi framan af, en félagsmönnum fer síðan
ört fjölgandi upp úr árinu 1980 og á síðustu rúmum tíu árum hefur félagafjöldi nánast
tvöfaldast. félagsmenn eru nú 952 talsins 680 karlar (71,4%) og 272 konur (28,6%).