Lögmannablaðið - 01.12.2011, Síða 68
68 lögmaNNaBlaðið tBl 04/11
lMfÍ 100 ÁrA
Brot úr sögu félags
stjórn lmfí árið 19791980. f.v.: Helgi v. jónsson meðstjórnandi, jónas a. aðalsteinsson
varaformaður, Þorsteinn júlíusson formaður, stefán Pálsson ritari og skarphéðinn
Þórisson gjaldkeri.
laganefnd
Laganefnd var kosin í fyrsta skipti á
aðalfundi árið 1979 en hlutverk hennar
var að fylgjast með lögum, lagafram-
kvæmd og lagafrumvörpum og gefa
stjórn félagsins ábendingar og tillögur
til umsagna um þau. Í fyrstu laganefndina
voru skipaðir þeir benedikt blöndal,
guðmundur ingvi Sigurðsson, Jón
Finnsson, Páll arnór Pálsson og baldur
guðlaugsson.74
kjaranefnd
Hlutverk kjaranefndar, sem stofnuð var
á aðalfundi árið 1979, var að vinna að
bættum hag félagsmanna og gera tillögur
til stjórnar um málefni sem vörðuðu
kjör þeirra, s.s. launa-, markaðs-, trygg-
inga-, skatta - orlofs- og menntunar mál.
Í nefndina voru í upphafi skipaðir þeir
Jón e. ragnarsson, ragnar aðalsteinsson,
brynjólfur Kjartansson, Jón Steinar
gunnlaugsson og gestur Jónsson.75
styrktarsjóður lögmanna
Snemma komu upp hugmyndir um að
stofna sérstakan styrktarsjóð lögmanna
og aðstandenda þeirra. Var það gert
árið 1931 en tilgangur sjóðsins var að
styrkja málflutningsmenn sem verið
höfðu félagsmenn eða fjölskyldur þeirra
til að bæta úr alls konar fjárhags-
vandræðum og vegna náms eða annars
undirbúnings unglinga undir lífsstarfið.
Fyrstu styrkirnir voru greiddir úr
sjóðnum vorið 1940. með lögum um
málflytjendur nr. 61/1942 voru tekjur
sjóðsins ákvarðaðar sektir sem stjórn
lögmannafélagsins gat skikkað lögmenn
til að greiða fyrir framferði í starfi og
væri stéttinni ósamboðið. Sjóðurinn varð
aldrei öflugur en síðast var veittur
styrkur úr honum árið 1995. Þá var ekkju
látins félagsmanns veittur styrkur en þar
sem sjóðurinn var tómur varð að færa
fjármuni úr félagssjóði í þessu skyni.
Sjóðurinn var formlega lagður niður
árið 1998 þegar nýjar samþykktir voru
gerðar fyrir félagið.76
lagasafn jóns e.
ragnarssonar
Jón e. ragnarsson gaf Lögmanna félaginu
allt lagabókasafn sitt eftir sinn dag en
meðal gersema er Lagasafnið þar sem
búið er að skera út úr blaðsíðum til að
koma fyrir pela.
gjaldskrárnefnd
eitt af fyrstu verkefnum málflutnings-
manna félagsins var að setja lágmarks-
gjaldskrá fyrir félags menn sína en næstu
áratugi var umræða um hana áberandi
á fundum. Sérstök gjaldskrárnefnd
starfaði lengi innan félagsins en hún
hafði það hlutverk að fjalla um og gera
tillögur um breytingar á gjaldskrá en
úrskurðar vald um mál flutnings þóknun
var hjá stjórn félagsins. Lögmannafélagið
hætti að vera vett vangur formlegs
samráðs lögmanna þegar talið var að
það væri andstætt samkeppnislögum
árið 1994. gjald skrár nefnd var eina
nefndin sem starfaði samkvæmt
samþykktum félagsins þar til aðalfundur
samþykkti að stofna laganefnd og
kjaranefnd árið 1979.73