Lögmannablaðið - 01.12.2011, Síða 70
70 lögmaNNaBlaðið tBl 04/11
lMfÍ 100 ÁrA
Á árshátíð LMFÍ
árið 2000
efst f.v.: gunnar
thor oddsen, steinar
Þór guðgeirsson,
tómas jónsson og
Bjarni Þór
Óskarsson.
í miðju f.v.:
Þorsteinn
einarsson, stefán
geir Þórisson,
smári Hilmarsson
og jóhanna H.
marteinsdóttir.
Brot úr sögu félags
tilgangur félagsins í takt við
tímann
Frá stofnun málflutningsmannafélags
Íslands árið 1911 var tilgangur félagsins,
samkvæmt lögum, að vernda hagsmuni
málflutningsmanna, efla góða samvinnu
milli þeirra og gæta þess að þeir fylgdu
sömu reglum um borgun fyrir störf sín.
Í takt við breytingar á félaginu og
starfsumhverfi lögmanna var tilganginum
breytt í samþykktum félagsins árið 1944
í að gæta hagmuna félagsmanna og
styrkja félagsmenn, ekkjur þeirra og
munaðarlaus börn. Heildarendurskoðun
á samþykktum félagsins fór fram árið
1998 og síðan þá hefur tilgangur félags-
ins verið að sinna lögboðnu eftirlits- og
agavaldi, gæta hagsmuna lögmannas-
téttarinnar, stuðla að samheldni og góðri
samvinnu félagsmanna, að standa vörð
um sjálfstæði lögmanna stéttarinnar og
að stuðla að framþróun réttarins og
réttaröryggis.83
Fjöldi félagsmanna á aldarafmæli LMFÍ
á 100 ára afmæli lögmannafélags íslands, 11. desember 2011, voru félagsmenn 952 talsins
680 karlar (71,4 %) og 272 konur (28,6%). sjálfstætt starfandi lögmenn voru 435 talsins
(46%), fulltrúar sjálfstætt starfandi lögmanna 210 (22%) og innanhússlögmenn 267 (28%).
alls störfuðu 178 innanhússlögmenn hjá fyrirtækjum og félagasamtökum og 89 hjá ríki eða
sveitarfélögum. 40 lögmenn (4%) voru hættir störfum vegna aldurs.
gerðu Þetta aldrei aftur
eitt sinn var Örn Clausen að verja mann
og fékk hann óvænt sýknaðan. Þegar sá
sýknaði þakkaði erni fyrir vörnina svaraði
Örn: -Það var nú lítið, en þú verður að
lofa að gera þetta aldrei aftur!