Lögmannablaðið - 01.06.2012, Side 9
lögmannablaðið tbl 02/12 9
lAGADAGUr 2012
skaðabótaábyrgð
sérfræðinga
Ábyrgð sérfræðinga í samfélaginu og
hvort meginreglur skaðabótaréttarins
eigi við þegar meta á skaðabótakröfur
á hendur þeim voru efni málstofu
iii á lagadaginn. Fyrirlesarar voru
Guðmundur sigurðsson forseti laga
deildar Háskólans í reykjavík og
Þóra Hallgrímsdóttir sérfræðingur við
lagadeild Háskólans í reykjavík. í
panil sátu kristín Edwald hrl. hjá Lex
og vilhjálmur H. vilhjálmsson hrl. hjá
Landslögum en Jóhannes sigurðsson hrl.
hjá aktis stjórnaði umræðum. í erindi
Guðmundar var farið yfir helstu reglu og
álitaefni um ábyrgð sérfæðinga. Fjallað
var m.a. um ríkar kröfur sem gerðar eru
til háttsemi sérfræðinga, sönnunarstöðu,
heimildir til að takamarka ábyrgð
ofl. Þóra Hallgrímsdóttir fjallaði um
sérfræðiábyrgð út frá sjónarhorni
vátryggingaréttar. Fram kom að kröfum í
starfaábyrgðartryggingu lögmanna hefði
fjölgað mikið á síðasta áratug. Þá fjallaði
Þóra ítarlega um samspil bótaréttarins
og reglna um ábyrgðatryggingar. í
umræðum á eftir erindunum var fjallað
um ýmsa dóma og tilvik sem komið hafa
upp og fjalla um ábyrgð sérfræðinga.
Lýstu þau kristín og vilhjálmur reynslu
sinni sem lögmenn af málum af þessu
toga. Þá var nokkur umræða um reglur
skaðbótalaga sem takmarka mjög
bótaábyrgð starfsmanna fyrirtækja en
meginreglan er nú sú að starfsmenn
bera ekki bótaábyrgð á störfum sínum
nema í undantekningatilvikum. Þá
var nokkur umræða um mál sem eru
í deiglunni um bótaábyrgð lækna
vegna fegrunaraðgerða og bótaábyrgð
endurskoðenda vegna endurskoðunar
á reikningsskilum fyrirtækja.
f.v. vilhjálmur h. vilhjálmsson, kristín edwald, jóhannes sigurðsson, guð mund ur
sigurðsson og Þóra hallgrímsdóttir.
f.v. hafsteinn Þór hauksson, bryndís hlöðvers
dóttir, sigurður líndal og ragnhildur helgadóttir.
f.v. gylfi magnússon, ása ólafsdóttir,
ragnar h. hall og helgi sigurðsson.
Lærdómur af afleiðingum efnahags
hrunsins á lán til heimilanna var efni
málstofu um fjármögnun til framtíðar
þar sem velt var upp hvaða leiðir væru
færar til að tryggja betur stöðugleika á
lánamarkaði og hvernig lánveitingum
til einstaklinga væri best fyrir komið
í framtíðinni. Framsögumenn voru
Ása ólafsdóttir, lektor við lagadeild
Háskóla íslands og Gylfi magnússon,
dósent við viðskiptafræðideild Háskóla
íslands. Yfirskrift framsögu Gylfa var
framtíðarskipa lána til heimilanna þar
sem farið var yfir málið frá hagfræðilegu
sjónarhóli. Erindi Ásu bar yfirskriftina
„skuldastýring heimilanna“? Hvernig
á að haga lánveitingum til framtíðar?
í panil sátu Helgi sigurðsson, hrl. hjá
Lagastoðum og ragnar, H. Hall hrl.
hjá mörkinni lögmannsstofu en Þóra
Hjaltested, skrifstofustjóri skrifstofu
viðskiptamála og fjármálamarkaðar
efnahags og viðskiptaráðuneytisins
stjórnaði málstofunni.
sátt um samfélagssáttmála
miklar og líflegar umræður urðu
á rökstólum um hvernig tillaga
stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá geti
orðið að þeim samfélagssáttmála sem
stjórnarskrá á að vera og sitt sýndist
hverjum. Þátttakendur í rökstólunum
voru þau Bryndís Hlöðversdóttir rektor
Háskólans á Bifröst, sigurður Líndal
prófessor emeritus og ragnhildur
Helgadóttir en Hafsteinn Þór Hauksson
lektor við lagadeild Háskóla íslands
stjórnaði umræðunum.
fjármögnun til framtíðar – framtíðarskipan lána til heimila