Lögmannablaðið - 01.06.2012, Blaðsíða 10
10 lögmannablaðið tbl 02/12
lAGADAGUr 2012
Það var mikið um dýrðir að kvöldi Lagadags 2012 þegar á fimmta hundrað lögfræðingar
og makar þeirra mættu á Hilton hótel nordica, tóku sér glas í hönd og settust síðan að
veisluborðum, nýgreiddir og í burstuðum skóm. veislustjórar voru miðíslandsbræðurnir
og lögfræðingarnir Bergur Ebbi Benediktsson og Jóhann alfreð kristinsson. Þeir fóru
á kostum, skutu á mann og annan, mærðu aðra verðskuldað og salurinn kunni vel að
meta beittan húmorinn.
óvænt skemmtiatriði kvöldsins var Landslagabandið en lögmannsstofan Landslög hefur
yfir að ráða hæfileika mönnum á ýmsum sviðum. tóku þeir u2 ballöðuna „Everlasting love“
með þvílíkum tilþrifum að sagt er að ungar meyjar í salnum hafi kiknað í hnjánum yfir
ívari Pálssyni söngvara og piltar hent blómum að söngdívunum Jónu Björk Helgadóttur
og margréti Halldóru Hallgrímsdóttur. allt þetta var innbyrt með lambahrygg sem var
borinn fram með hamsakrumbli og axlarpressu, sveppamauki, jarðskokkum, fondant
kartöflum og sólseljusósu. Og hana nú.
að kvöldi lagadags 2012
jóna björk helgadóttir söngdíva í
landslagabandinu.
íslandsbankaborðið. f.v. tómas sigurðsson, kristín ninja guðmundsdóttir, ingvar örn
sighvatsson, rut gunnarsdóttir, ragnheiður b. sighvatsdóttir og kristinn arnar
stefánsson.
veislustjórar voru þeir jóhann alfreð
kristinsson og bergur ebbi benediktsson.
til upphitunar er ætíð fordrykkur þar sem gamlir
félagar hittast og taka púlsinn. f.v. viðar lúðvíksson,
bjarki már baxter, Ægir guðbjarni sigmundsson og
anna linda bjarnadóttir.
uppfullar af kærleika og ást. f.v. elva
dögg ásudóttir kristinsdóttir og helga
vala helgadóttir.
ívar pálsson poppstjarna í landslaga
bandinu.