Lögmannablaðið - 01.06.2012, Síða 14
14 lögmannablaðið tbl 02/12
Af VettVAnGi félAGsins
Nafn: Borgar Þór Einarsson hdl.
Vinnustaður: oPuS lögmenn ehf.
Hve lengi hefur þú stundað lögmennsku? Í sex ár, þar af fjögur sem innanhússlögmaður
hjá Landsbankanum.
Sérhæfing í lögmennsku: bankaréttur og félagaréttur.
Hversu lengi hefur þú setið í stjórn LmFÍ? Í varastjórn frá 2010 og í aðalstjórn frá 2011.
Hver eru helstu áhugamál þín? golf og laxveiði.
Fjölskylduhagir: Kvæntur Kristínu Hrefnu Halldórsdóttur stjórnmálafræðingi. börn:
Sigrún Líf, stjúpdóttir, 18 ára, breki Þór 14 ára, marselía bríet 13 ára, anna Soffía 2 ára
og drengur fæddur 12. júní 2012.
Nafn: Guðrún Björk Bjarnadóttir hdl.
Vinnustaður: SteF (Samband tónskálda og eigenda flutningsréttar).
Hve lengi hefur þú stundað lögmennsku? 13 ár.
Sérhæfing í lögmennsku: Vinnuréttur og höfundaréttur.
Hversu lengi hefur þú setið í stjórn LmFÍ Ég hef setið í varastjórn í tvö ár en þetta er
fyrsta árið mitt í aðalstjórn.
Hver eru helstu áhugamál þín? tónlist og hestamennska. Þá hef ég sinnt
sjálfboðaliðastörfum fyrir aFS á Íslandi í allmörg ár.
Fjölskylduhagir: gift ingvari Stefánssyni, byggingaverkfræðingi og eigum við tvær dætur,
brynhildi gígju fædda 2003 og Hugrúnu Freyju fædda 2006.
Nafn: Guðrún Björg Birgisdóttir hrl.
Vinnustaður: Íslög ehf.
Hve lengi hefur þú stundað lögmennsku? 11 ár, en þar af var ég innanhússlögmaður
hjá marel í rúm 3 ár.
Sérhæfing í lögmennsku: Fjármögnun, fyrirtækjalögfræði, skiptastjórn og vinnuréttur.
Hversu lengi hefur þú setið í stjórn LMFÍ? eitt ár í varastjórn og kom í aðalstjórn 2012.
Hver eru helstu áhugamál þín? Lögfræði, félagsmál og skíði.
Fjölskylduhagir? Ég á einn 17 ára gamlan son, Högna Sigurðsson.
Nafn: Óskar Sigurðsson hrl.
Vinnustaður: jP Lögmenn.
Hve lengi hefur þú stundað lögmennsku? Ég hlaut leyfi til málflutnings fyrir héraðsdómi
1998 og Hæstarétti Íslands 2005. Hef því sinnt lögmannsstörfum í 15 ár.
Sérhæfing í lögmennsku: málflutningur, eignaréttur, byggingar- og skipulagslöggjöf,
skuldaskilaréttur, landbúnaðarréttur, fasteignaréttur, skaðabótaréttur, kröfu- og veðréttur.
Hversu lengi hefur þú setið í stjórn LMFÍ? Varamaður í stjórn frá 2009 og sæti í stjórn
frá 2011.
Hver eru helstu áhugamál þín? Fjölskyldan, vinnan og fótbolti. Næ því miður ekki alltaf
að halda þessari forgangsröðun.
Fjölskylduhagir: Ég er kvæntur elísabetu Kristjánsdóttur íþróttafræðingi og við eigum
þrjár stelpur: esther ýr 15 ára, elvu Rún 12 ára og Ástu björk 4 ára. Síðan bættist
hundurinn mosi í liðið fyrir skömmu síðan.
ný stjórn
arionbanki.is – 444 7000
Ertu að fá góða ávöxtun?
Í Einkabankaþjónustu Arion banka hefur hver viðskiptavinur eigin
viðskiptastjóra sem sér um eignasafn hans eftir fyrirframskilgreindri
árfestingarstefnu. Í þjónustunni felst einnig almenn bankaþjónusta
á hagstæðum kjörum og greining á stöðu lífeyrissparnaðar eins
og hún er í dag og væntanlegri stöðu við starfslok.
Leitaðu til okkar í síma 444-7410 eða sendu tölvupóst á einkabankathjonusta@arionbanki.is
og við aðstoðum þig við að nna hvað hentar þér og þínum markmiðum.
Einkabankaþjónusta Arion banka