Lögmannablaðið - 01.06.2012, Blaðsíða 26
26 lögmannablaðið tbl 02/12
Að loKnUM lAnDsDóMi
um 2. mgr. 110. gr. sml., en skv.
ákvæðinu hefur dómari skyldu til að
upplýsa mál og skal beina til ákæranda
að afla gagna um tiltekin atriði ef
hann telur eitthvað óskýrt. Hún telur
því að dómurinn hefði átt að beina
fyrirspurnum til sín, teldi hann eitthvað
óljóst í málflutningi hennar.
undirbúningur og rannsókn
máls
Friðrik Árni Friðriksson, hdl.,
aðstoðarmaður andra Árnasonar,
hrl. fjallaði um hvaða kröfur væru
gerðar til undirbúnings og rannsóknar
landsdómsmáls. Hann velti fyrir sér
hvernig staðið var að rannsókn málsins í
samanburði við tamílamálið í danmörku
en þar var sérstökum rannsóknarrétti
falið að rannsaka málið áður en þingið
tók ákvörðun um málshöfðun fyrir
danska ríkisréttinum sem er hliðstæða
landsdóms. Framkvæmd var með ólíkum
hætti í landsdómsmálinu þar sem
sérstök þingmannanefnd fór yfir skýrslu
rannsóknarnefndar alþingis og aflaði
sérfræðiálita og skriflegra athugasemda
ráðherra. nefndin réðst ekki í sérstaka
framhaldsrannsókn þótt hún hefði
heimildir til þess. Friðrik taldi mikilvægt
að hafa í hugfast að sakamálarannsókn
er skilgreind sem rannsókn þar sem
stjórnvöld vinna skipulega að því að afla
gagna til að taka ákvörðun um saksókn.
rannsóknarskýrsla alþingis ein og sér
getur því varla talist rannsókn, heldur
er um að ræða stjórnsýsluúttekt. Hann
gagnrýndi jafnframt lög um landsdóm
og sagði hvergi lögfest að fara þurfi
fram sérstök sakamálarannsókn áður
en farið er af stað í málarekstur, slíkt sé
einungis heimilt. Þá voru ekki gerðar
nægar kröfur til undirbúnings ákæru
og alþingismenn ekki bundnir af öðru
en persónulegri sannfæringu sinni við
atkvæðagreiðslu.
Friðrik sagðist sannfærður um
að hægt væri að bæta úr núverandi
annmörkum með því að færa ákæru
valdið úr höndum alþingis. alþingi
myndi þá vísa málum beint til
saksóknara sem rannsakaði mál eins
og hvert annað sakamál. saksóknari
tæki síðan ákvörðun um hvort gefa
ætti út ákæru en væri ekki eins og
viljalaust verkfæri í höndum þingsins.
Það er grundvallaratriði í lýðræðisríki að
réttarstaða sakbornings sé aldrei lakari
en í hefðbundnu sakamáli og það má
aldrei slá af nútímakröfum réttarfars
sakborningi í óhag. Ef sérstaða mála
leiðir til að gildandi reglum sé ekki fylgt
eftir, þá erum við á hálum ís.
Anna Lilja Hallgrímsdóttir.
GÓÐ lífeyrisréttindi
Séreign, sameign, áfallalífeyrir
Verið velkomin í Borgartún 25
sími 510 2500 – www.almenni.is
Enginn milliliður
Verið velkomin í Borgartún 25
sími 510 2500 – www.almenni.is
Verið velkomin í Borgartún 25
sími 510 2500 – www.almenni.is
Fjölbreyttar
ávöxtunarleiðir