Lögmannablaðið - 01.06.2012, Síða 29
lögmannablaðið tbl 02/12 29
Af VettVAnGi félAGsins
vel sóttur aðalfundur fkl
aðalfundur félags kvenna í
lögmennsku (fkl) var haldinn föstu
daginn 13. apríl sl. auður björg jóns
dóttir hdl. var kosin formaður en auk
hennar voru guðrún sesselja arnar
dóttir hrl., harpa sólveig björns dóttir
hdl., helga maría pálsdóttir hdl. og
marta margrét rúnars dóttir kosnar í
stjórn. hrefna kristín jónsdóttir hdl. og
helga lára hauks dóttir hdl. voru kosnar
í varastjórn.
Fráfarandi formaður, Þyrí Halla
steingrímsdóttir hrl., fór yfir skýrslu
stjórnar og viðburði nýliðins starfsárs.
Félagið stóð fyrir nokkrum göngum:
Esjuferð, Jónsmessugöngu á Helgafell
og göngu um Elliðaárdal sem endaði
með sundferð í Árbæjarlaug. Fjölsóttustu
viðburðirnir voru „happy hour” á Hilton
hóteli seinnipart föstudags, sem efnt
var til í tvígang. Félagið stóð fyrir
tveimur námskeiðum; golfnámskeiði og
námskeiði um framkomu í fjölmiðlum
sem haldin voru í samvinnu við önnur
fagfélög kvenna. Fagfélögin stóðu
einnig fyrir sameiginlegum fundi um
sýnileika kvenna í fjölmiðlum sem var
mjög fjölsóttur. Þá tók lið á vegum FkL
þátt í innanhúsmóti LmFí í knattspyrnu
en liðið stóð sig með mikilli prýði og
naut mikils stuðnings meðal áhorfenda
Fundurinn var afar vel sóttur sem
er mikið gleðiefni fyrir stjórn FkL.
Það er skýrt merki um síaukinn áhuga
kvenlögmanna á félaginu enda hefur
mæting á viðburði á vegum félagsins
verið góð undanfarin ár og er alltaf að
aukast. að loknum aðalfundarstörfum
var boðið upp á veitingar en mikið var
rætt um tilgang félagsins og mikilvægi
þess að efla félagstengsl kvenlögmanna.
Auður Björg Jónsdóttir hdl.
AnnA lilJA HAllGrÍMsDóttir stjórn félagsins krafist þess að lögmaður
sendi henni ársfjórðungslega eða oftar
yfirlýsingu og nauðsynleg fylgigögn. við
slíkar aðstæður getur stjórnin jafnframt
ákveðið að fela trúnaðarendurskoðanda
sínum að rannsaka hvort lögmaður fari
eftir reglum og fullnægi bókhaldslögum
að öðru leyti. Gefi rannsókn tilefni til
getur stjórn LmFí ákveðið að viðkomandi
lögmanni sé óheimilt að ráðstafa
innistæðum á fjárvörslureikningum,
nema að fengnu leyfi trúnaðarmanns
sem stjórnin tilnefnir.
Lögmanni sem rannsókn er beint að er
skylt að láta stjórninni eða trúnaðarmanni
hennar í té allar upplýsingar um rekstur
sinn og efnahag, sem krafist kann að
verða, svo og að veita aðgang að öllum
bókhaldsgögnum og öðrum gögnum,
sem rannsakandi telur hafa þýðingu fyrir
rannsóknina. Lögmannafélag íslands ber
kostnað af slíkri rannsókn en er hins
vegar heimilt í ákveðnum tilvikum að
krefja þann lögmann, sem rannsókn
beinist að um greiðslu kostnaðar. slík
tilvik geta verið fyrir hendi ef rannsókn
er viðamikil og leiðir í ljós misbresti í
störfum lögmannsins.
viðurlög
Lögmaður sem gerist brotlegur við
ákvæðum reglna um fjárvörslureikninga
lögmanna og sinnir ekki áskorun
Lögmannafélags íslands um að starfa
í samræmi við þær, getur búist við
að dómsmálaráðherra felli úr gildi
starfsréttindi hans skv. 3. mgr. 13. gr.
laga um lögmenn. stjórn LmFí hvetur
félagsmenn sína sérstaklega til þess að
kynna sér nánar inntak reglnanna, en
þær má finna á heimasíðu félagsins undir
flipanum handbók lögmanna.
mikil stemning var á aðalfundi fkl en f.v.
eru laufey kristjánsdóttir, vigdís ósk
sveinsdóttir og katrín smári ólafsdóttir.