Lögmannablaðið - 01.10.2013, Síða 16
16 lögmannaBlaÐiÐ tBl 03/13
UMfJöllUn
Stendur íslenskt réttarkerfi traustum
fótum?
mín skoðun er sú að almennt sé staðan
á íslensku réttarkerfi góð. Í grunninn
erum við með stofnanir sem, miðað
við stærð okkar, standa vel. Það er hins
vegar ljóst að réttarkerfið er auðlind sem
byggir í fyrsta lagi á sterkum mannauði
og í öðru lagi á fjármagni. réttarkerfið
verður ekki rekið á núlli, það kostar
peninga. Það er alveg ljóst að sumir
angar þess eru fjárvana. Ég nefni í þessu
sambandi starfsemi lögreglunnar og
fangelsismálin. Ég nefni einnig embætti
ríkissaksóknara sem nauðsynlegt er að
styrkja svo það geti sinnt eftirlits- og
samræmingarhlutverki sínu. Íslenskir
dómarar eru upp til hópa öflugir og
góðir lögfræðingar sem reyna á hverjum
einasta degi að gera sitt allra besta. Þótt
réttarkerfið standi almennt traustum
fótum þýðir það ekki að það séu
ekki vandamál í því eins og í öðrum
vestrænum réttarkerfum. Á hverjum tíma
þarf að skoða réttar kerfið gagnrýnum
augum. Það á að vera í sífelldri umræðu
og endurskoðun. réttarkerfið er til fyrir
fólkið. Alveg eins og önnur mann leg
kerfi þá verða þeir sem þar starfa að
vera tilbúnir að taka gagnrýni og gera
betur ef í ljós kemur að mistök hafa
verið gerð.
Nýverið birti Jón Steinar Gunnlaugsson
fv. hæstaréttardómari ritgerð þar sem
hann gagnrýndi Hæsta rétt. Hvað finnst
þér um hana?
Sumt af því sem jón Steinar segir í sinni
ritgerð er á rökum reist en um annað er
ég honum ósammála, eins og gengur.
Sú gagnrýni að Hæstiréttur starfi ekki
nægjanlega sem eiginlegur hæsti réttur
á rétt á sér. um þetta skrifaði ég raunar
ritstjórnargrein í Tímarit lögfræðinga
þegar á árinu 2007. mála fjöldinn í
Hæstarétti er of mikill og of mörg mál
því dæmd af þremur dómurum. Þá hef
ég líka verulegar áhyggjur af því að
skortur á raunverulegri endurskoðun
Hæstaréttar í sakamálum kunni að
skerða mannréttindi sak borninga í
einhverjum tilvikum. Einnig tel ég að
gagnrýna megi ýmislegt er tengist hinu
nýja ferli við mat á hæfni umsækjenda
um dómaraembætti, en hér gefst ekki
tími til að reifa þau atriði nánar. um
mín sjónarmið í þessu efni vísa ég
til ritstjórnargreinar minnar í 1. hefti
Tímarits lögfræðinga 2010.
umræðan um millidómstig á Íslandi
hefur verið í gangi í fimm ár. Ég hefði
talið eðlilegt að tillögur þær sem
réttarfarsnefnd, Lögmannafélag Íslands
og dóm stóla ráð hafa unnið að, eins
og upplýst var í pistli formanns LmfÍ
í síðasta tölublaði þessa tímarits, væru
lagðar til grundvallar frumvarpssmíð.
Ég tel því afar óheppilegt að innanríkis-
ráðherra hafi sett á laggirnar enn eina
nefndina sem ætlað er að skoða þetta
mál og þá á víðtækari grundvelli en áður
hefur verið talið nauðsynlegt. málið átti
að halda áfram í þeim farvegi sem því
hafði verið markaður. réttarfarsnefnd er
fastanefnd innanríkisráðuneytisins sem
er beinlínis falið að veita ráðherra ráðgjöf
á þessu sviði og útbúa lagafrumvörp til
breytinga á löggjöf um dómstóla og
á sviði réttarfars. Ég þekki störf slíkra
nefnda vel enda hef ég stýrt starfi
refsiréttarnefndar ráðuneytisins með
hléum í um áratug. réttarfarsnefnd
hafði leitað samráðs við LmfÍ og
dómstólaráð og mótað tillögur á grunni
eldri hugmynda og tillagna. Ég hef því
ekki heyrt sannfærandi rök fyrir þeirri
ákvörðun að setja á laggirnar enn eina
nefndina á þessu stigi málsins. Ég tek
þó skýrt fram að ég ber fullt traust til
þeirra einstaklinga sem eru í þessari
nýju nefnd, um það snúast ekki mínar
athugasemdir. Aðalatriðið er það að verið
er að huga að mikilvægum breytingum
á íslensku dómskerfi. dómsvaldið er
sjálfstæður handhafi ríkisvalds. Hið
pólitíska framkvæmdavald verður því
að fara mjög varlega, gæta að sjálfstæði
dómsvaldsins og viðhafa gott samráð
við þá sem þar starfa og hafa þekkingu
á þessum málaflokki.
lögmenn eru þjónar
réttarríkisins
Á síðasta lagadegi var rætt um stöðu
lögfræðinnar í íslensku samfélagi.
Hverja telur þú hana vera?
Ég held að það sé nauðsynlegt fyrir
lögfræðinga að velta því fyrir sér
hvernig þeir stóðu sig í aðdraganda
bankahrunsins. voru lögfræðingar að
virða nægjanlega þau grundvallargildi
sem lögfræðin byggir á? var þetta faglega