Lögmannablaðið - 01.10.2013, Qupperneq 20
20 lögmannaBlaÐiÐ tBl 03/13
undanFarin Ár hefur félagsdeild
lmFÍ staðið fyrir fjallgöngum fyrir
lögmenn, fjölskyldur og vini. meðal
annars hefur verið farið á hvanna
dalshnjúk, heklu, eyjafjallajökul og
snæfellsjökul þótt síðast nefnda
fjallgangan hafi reyndar breyst í
fjörugöngu vegna veðurs. um miðjan
júní síðastliðinn var farið yfir hinn
vinsæla Fimmvörðuháls sem er um 25
km löng ganga. marteinn másson hrl.,
var einn göngumanna og deilir hér
ferðasögunni með lesendum Lög
manna blaðsins.
okkar maður á fjöllum
Ekki var laust við að eftirvæntingar hafi
gætt hjá þátttakendum fimmvörðu-
hálsferðar LmfÍ þar sem fararstjórinn var
enginn annar en Helgi jóhannesson hrl.,
sem nýlega lauk leiðsögumannaprófi.
veltu menn fyrir sér hvort Helga tækist
að „lesa“ hópinn rétt sem og hvernig
hann brygðist við óvæntum aðstæðum,
s.s. meiðslum göngumanna, óveðri,
þreytu, væli, pexi eða öðru þar sem
reynir á getu fararstjóra og útsjónarsemi.
Svo fór að þátttakendafjöldinn endaði
í óhappatölunni 13 og lagði hópurinn
af stað frá Skógum um tíuleytið að
morgni 15. júní. fossarnir í Skógánni
munu vera rúmlega 20 talsins, upp að
göngubrúnni yfir ána, með Skógarfoss
neðstan og mestan. við stoppuðum
við marga þeirra, tókum myndir og
nutum náttúrusmíðanna, enda hver
öðrum fallegri.
við tókum nestisstopp á leiðinni og
svo annað við Baldvinsskála. gamli
skálinn, sem sumir kalla fúkka, er
ónýtur og hefur raunar verið mjög
lélegur í mörg ár. nú er búið að reisa
nýjan skála við hlið hans og ekki að efa
að göngufólk á eftir að njóta þess að
hvíla lúin bein áður en haldið er upp
síðustu snjóskaflana og brekkurnar.við
þurftum ekki að nýta okkur nýja skálann
að þessu sinni því þegar hér var komið
sögu skein sól í heiði.
stóreinkennilegt fólk á
hlaupum
við vorum ekki ein á ferð þennan daginn
á fimmvörðuhálsi því nokkur hundruð
manns voru á sömu leið og við. Þegar
við héldum frá Baldvinsskála mættum
morinsheiði, kattahryggir, heljarkambur
og óhappatalan 13
F.v. marteinn másson, ingimar ingason, þórný jónsdóttir, margrét rún guðmundsdóttir, guðrún margrét hannesdóttir, jóhann
ólafsson, hrund hólm, Páll þórhallsson, þórey s. þórðardóttir, ómar þór eyjólfsson og Bogi nilsson. ljósmyndari: hj.
Á léttUM nótUM