Lögmannablaðið - 01.10.2013, Blaðsíða 21

Lögmannablaðið - 01.10.2013, Blaðsíða 21
lögmannaBlaÐiÐ tBl 03/13 21 Á léttUM nótUM við hlaupandi fólki á leið suður hálsinn. Það leit nokkuð eðlilega út, brosti jafnvel, en það var samdóma álit okkar að það hlyti að vera stóreinkennilegt. Það er merkilegt að fá tækifæri til að ganga í nýju landslagi á hrauninu við móða og magna, fellin á fimmvörðuhálsi sem mynduðust í gosinu árið 2010. Hraunið er svart og úfið en segja má að ekki hafi fyrr myndast skel á yfirborðinu, fljótlega eftir eldgosið, en að gönguleið var mynduð yfir hraunið og í hlíðum fellanna. mér skilst að menn hafi í fyrstu stoppað stutt á hrauninu til þess að skósólarnir bráðnuðu ekki. Í dag er þetta í lagi en þó stutt niður á hitann, það nægir að sparka aðeins vikri og hrauni til. Það vakti athygli mína í fyrra þegar ég gekk þessa leið í fyrsta skipti eftir gos, og svo aftur núna, hvað mosinn er fljótur að nema land. Það er raunar furðu mikið af mosa sums staðar í hrauninu. Þegar halla fer undan fæti, og ef veður leyfir, er útsýnið yfir goðalandið, Þórsmörkina, mýrdalsjökul, Tindfjallajökul og svæðið norðan jökla stórkostlegt. við vorum sæmilega heppin með veður og fengum því að njóta þessarar náttúrufegurðar. Eins og jafnan á þessum árstíma var nokkur snjór í Bröttufönn. fólk notar ýmsar aðferðir við að renna sér niður skaflinn, ýmist er reynt að „skíða“ á gönguskónum, eða þá að menn setja eitthvað undir afturendann á sér og renna sér þannig niður. Það er stutt í barnið í okkur við réttar aðstæður. Í harðfenni getur þetta þó verið varasamt. heljarkambur og kattahryggir Heljarkambur heitir hryggur sem tengir brekkurnar við morinsheiði. Heiðin mun hafa myndast í svipuðu gosi og því sem varð á fimmvörðuhálsi árið 2010 en jöklar og vatn surfu hluta heiðarinnar og mynduðu Heljarkambinn. Sumum finnst óþægilegt að fara kambinn því það þarf að fikra sig niður með keðjum en gönguhópurinn okkar var ekki í vandræðum með það enda með þennan fína fararstjóra. Áfram lá leiðin niður með Heiðarhorninu og niður foldirnar þar til komið var á Kattahryggi. gönguleiðin liggur þar ofan á móbergshrygg og er bratt niður í gilin sitt hvoru megin við gönguleiðina. Það fer því um suma að ganga þessa leið en hún er skemmtileg og ekki spillir fyrir fjölbreyttur gróðurinn í Strákagili. við komum niður úr skóginum neðst á Kattahryggjunum, við mynni Strákagils, um kl. 18:00, þar sem rútan beið okkar. Eftir sveitta hamborgara á Hvolsvelli skildi leiðir. Þessi gönguhópur var fljótur að hristast saman en allir voru í góðu formi, líkamlegu jafnt sem andlegu með skemmtilegheit og gott skap í fyrirrúmi. Aldursforseti hópsins, Bogi nilsson, var ávallt meðal fremstu manna og blés ekki úr nös. Það er ekki amalegt að vera í svo góðu formi. Lesendur eru sjálfsagt spenntir að vita hvernig fararstjórinn Helgi jóhannesson hafi staðið sig í þessu nýja hlutverki meðal lögmanna. Svarið er að hann var fræðandi, leiðandi og ábyrgur en eins og venjulega var stutt í grínið og glensið. Hann verður vonandi fararstjóri í fleiri ferðum á vegum félagsdeildar LmfÍ. og ef hann verður einhvern tímann leiður á lögmennskunni þá tel ég að hann eigi tvímælalaust framtíðina fyrir sér sem fararstjóri á fjöllum. Marteinn Másson. Á leið upp með skógánni, nokkru áður en komið er að göngubrúnni yfir ána. ljósmyndari: ii. Fararstjórinn síkáti, helgi jóhannesson. ljósmyndari: ii.

x

Lögmannablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.