Lögmannablaðið - 01.10.2013, Blaðsíða 23

Lögmannablaðið - 01.10.2013, Blaðsíða 23
lögmannaBlaÐiÐ tBl 03/13 23 Af VettVAnGi félAGsins málatilbúnaður í einkamálum og rekstur þeirra fyrir héraðsdómi ­ 24. og 29. október 2013 fjallað verður um rekstur einkamála í héraði og hvernig lögmenn geta betur gætt hagsmuna umbjóðenda sinna. Lögð verður áherzla á gerð stefnu og greinargerðar og hvernig lögmenn geta afmarkað betur málsgrundvöllinn. fjallað verður um tilvik þar sem ólíkum kröfum er teflt fram í sama máli (t.d. skaðabótakröfur utan og innan samninga, skaðabótakröfur og kröfur um vátryggingabætur). Ennfremur verður fjallað um aðstæður sem upp geta komið undir rekstri mála og hvernig bezt sé að gæta hagsmuna málsaðila. markmiðið með námskeiðinu er að bæta skjalagerð í einkamálum, gera lögmenn meðvitaðri um eðli grund- vallarskjala og hvert vera eigi efni þeirra, svo og auka meðvitund þeirra um bætta hagsmunagæzlu fyrir umbjóðendur sína. námskeiðið er fyrst og fremst ætla yngri lögmönnum. Kennari: viðar már matthíasson hæstaréttardómari. Staður: Kennslustofa LmfÍ, Álftamýri 9, reykjavík. Tími: Alls 6. klst. Fimmtudagur 24. okt. og þriðjudagur 29. okt. 2013 kl. 16:00-19:00. Verð: Kr. 35.000,- en fyrir félaga í félagsdeild kr. 26.250,- __________________________________________________ Frestur er á illu bestur ­ 31. október 2013 farið verður yfir fyrningafresti, tómlætisfresti, málshöfð- unarfresti og aðra fresti sem lögmenn þurfa að huga að í einkamálum. fjallað verður um hina ýmsu fresti og túlkun þeirra. Leitast verður við að svara því hver sé upphafstími helstu fresta, lengd þeirra og hvernig þeir verða rofnir. Hversu langir eru tómlætisfrestir í kröfurétti og vátryggingarétti? Hvenær hefjast þeir og á hverjum hvílir sönnunarbyrðin um rof þeirra? Kennari: Hildur Ýr viðarsdóttir hdl. hjá Landslögum. Staður: Kennslustofa LmfÍ, Álftamýri 9, reykjavík. Tími: Fimmtudagur 31. okt. kl. 16:00-19:00. Verð: Kr. 20.000,- en fyrir félaga í félagsdeild kr. 15.000,- __________________________________________________ úr hlýju hjónasængur ­ 5. nóvember 2013 farið verður yfir reglur um fjárskipti hjóna og sambúðarfólks við slit sambúðar. nýlegir dómar verða reifaðir og vangaveltur um hvort breyting hafi orðið með nýjum dómum Hæstaréttar á rétti sambúðarfólks vegna fjárskipta. Kennari: Hulda rós rúriksdóttir hrl. hjá Lögmönnum Laugavegi 3. Staður: Kennslustofa LmfÍ, Álftamýri 9, 108 reykjavík. Tími: Þriðjudagur 5. nóvember 2013 kl. 16:00-19:00. Verð: Kr. 20.000,- en fyrir félaga í félagsdeild kr. 15.000,- __________________________________________________ Skráning stendur yfir á heimasíðu www.lmfi.is upplýsingagjöf og útboð verðbréfa ­ 19. nóvember 2013 upplýsingagjöf útgefanda verðbréfa er ein forsenda skilvirks verðbréfamarkaðar. Á námskeiðinu verður fjallað um nokkur álitaefni í tengslum útboð verðbréfa og töku þeirra til viðskipta, skyldur útgefenda til að birta upplýsingar og tilkynningar um viðskipti innherja. reglur um þetta efni verða skoðaðar í ljósi túlkana fmE og dóma, íslenskra sem erlendra. jafnframt verður fjallað um samspil þessara reglna og reglna um gjaldeyrishöft. Kennari: guðmundur Thorlacius ragnarsson hdl. hjá Arion banka. Staður: Kennslustofa LmfÍ, Álftamýri 9, 108 reykjavík. Tími: 3 klst. Þriðjudagur 19. nóvember 2013 kl. 16:00-19:00 Verð: Kr. 20.000,- en fyrir félaga í félagsdeild kr. 15.000,- __________________________________________________ Framkvæmd ees­réttar í ljósi nýlegra dóma eFta­dómstólsins og mála hjá esa ­ 26. nóvember 2013 Á síðustu misserum hefur EfTA-dómstóllinn kveðið upp marga áhugaverða dóma, m.a sem varða álitaefni tengd skaðabótaábyrgð ríkisins vegna brota á EES-samningnum. Þar hefur dómstóllinn gefið til kynna að aðrar og jafnvel vægari kröfur eigi að gera til „alvarleika brots” í EES-rétti en í ESB-rétti. Eins hefur hann dæmt að sé löggjöf ekki réttilega tilkynnt til ESA geti það leitt til þess að ekki sé unnt að beita henni. Samband EfTA-dómstólsins og dómstóla í EfTA-ríkjunum hefur einnig verið í deiglunni sem og mál er varða samkeppnisrétt og ríkisstyrki. Á námskeiðinu verður farið yfir nýlega dóma frá EfTA- dómstólnum sem og áhugaverð mál sem hafa verið til meðferðar hjá Eftirlitsstofnun EfTA (ESA). Sjónum verður sérstaklega beint að málum sem varða Ísland eða eru áhugaverð fyrir íslenska lögfræðinga. Að lokum verður sjónum beint að nokkrum íslenskum dómsmálum þar sem íslenskar reglur sem upprunnar eru í tilskipunum EES réttar hafa verið skýrðar samkvæmt orðanna hljóðan, án þess að litið sé til uppruna þeirra. Í því ljósi verður vikið að mikilvægi þess að málsaðilar nýti sér það að fullu að byggja á reglum EES-réttar þ.m.t. dómum Evrópudómstólsins í málatilbúnaði. Kennari: Ólafur jóhannes Einarsson framkvæmdastjóri skrifstofu innri markaðar hjá EfTA. Staður: Kennslustofa LmfÍ, Álftamýri 9, 108 reykjavík. Tími: 3 klst. Þriðjudagur 26. nóvember 2013 kl. 16:00-19:00 Verð: Kr. 25.000,- en fyrir félaga í félagsdeild kr. 19.000,- __________________________________________________

x

Lögmannablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.