Lögmannablaðið - 01.12.2014, Blaðsíða 20

Lögmannablaðið - 01.12.2014, Blaðsíða 20
20 LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 04/14 Í SIÐAREGLUM LÖGMANNA (codex ethicus) er sem kunnugt er að finna margvísleg ákvæði um störf lögmanna og samskipti þeirra innbyrðis. Öllum er okkur lögmönnum hollt að rifja reglulega upp ákvæði þessi. Hér verður minnst á nokkur þeirra, en ekki er um tæmandi umfjöllun að ræða. Í I. kafla siðareglnanna er fjallað um góða lögmannshætti almennt. Samkvæmt 4. gr. má lögmaður ekki ljá þeim nafn sitt eða lögmannsaðstoð, er stunda vilja lögmannsstörf, en hafa ekki til þess rétt að lögum. Þá má lögmaður á engan hátt stuðla að því, að þeir er ekki hafa lögmannsréttindi, fái unnið verk, sem skulu lögum eða venju samkvæmt aðeins unnin af lögmanni. II. kafli fjallar um skyldur lögmanns gagnvart skjólstæðingi sínum. Þar kemur fram í 3. mgr. 8. gr. að lögmaður skuli ekki taka að sér verkefni, sem hann veit eða má vita að hann er ekki fær um að sinna af kunnáttu og fagmennsku, nema verkið sé unnið í samstarfi við hæfan lögmann á viðkomandi sviði. Í IV. kafla er að finna ákvæði um samskipti lögmanna innbyrðis. Þar kemur fram í 25. gr. að lögmenn skuli hafa góða samvinnu sín á milli og sýna hver öðrum fulla virðingu í ræðu, riti og framkomu. Þeir skuli sýna hver öðrum þá tillitssemi, sem samrýmanleg er hagsmunum skjólstæðings. Samkvæmt 26. gr. má lögmaður ekki snúa sér beint til aðila um málefni, sem annar lögmaður fer með, án hans samþykkis, nema brýn nauðsyn krefji. Ávallt skal þá viðkomandi lögmanni þegar um það tilkynnt. Ef aðili, sem falið hefur mál sitt lögmanni, snýr sér sjálfur til lögmanns gagnaðila um það mál, skal lögmaður gagnaðila vísa aðila frá sér, nema brýnar ástæður bjóði annað. Ávallt skal þá viðkomandi lögmanni um það tilkynnt. Í 27. gr. siðareglnanna segir að lögmaður megi einungis hafa uppi gagnrýni á störf annars lögmanns á málefnalegum grundvelli, og skuli forðast að valda honum álitsspjöllum umfram það, sem málefnið gefur ástæðu til. Tekið er fram í 28. gr. að ef lögmanni er falið verkefni, sem annar lögmaður hefur áður sinnt, skuli hann ekki hefja vinnu við það fyrr en hann hefur fullvissað sig um að hagsmunagæslu fyrri lögmannsins sé lokið eða verði lokið án tafar. Lögmanni sé þó heimilt að gera nauðsynlegar ráðstafanir til að firra aðila réttarspjöllum. Þá kemur fram í 33. gr. að lögmanni sé óheimilt að áskilja sér úr hendi annars lögmanns eða annars aðila sérstaka þóknun fyrir að vísa skjólstæðingi til lögmannsins. Lögmanni er einnig óheimilt að greiða öðrum aðila sérstaka þóknun fyrir að láta hann vísa skjólstæðingum til sín. Fjallað er um lögmannsskrifstofu, auglýsingar o.fl.í VI. kafla siðareglnanna. Samkvæmt 38. gr. ber lögmaður persónulega ábyrgð á lögmannsstörfum sínum og fulltrúa sinna. Við firmanafn lögmannsskrifstofu skal ávallt tilgreina fullt nafn og starfstitil þess eða þeirra lögmanna, sem hana eiga og ábyrgð bera á lögmannsstörfum hennar. Firmanafn lögmannsskrifstofu má ekki gefa í skyn að þar sé veitt nein önnur þjónusta en lögmanns­ og fasteignaþjónusta. Lögmaður skal tilkynna stjórn LMFÍ hverjir séu eigendur félags um rekstur lögmannsstofu. Skal lögmaður sérstak­ lega gæta þess, að óheimilt er að stunda lögmannsstörf nema á skrifstofu, sem rekin er af lögmanni, sbr. 19. gr. laga um lögmenn, nr. 77/1998, nema undanþága hafi verið veitt samkvæmt 12. gr. laganna. Í 39. gr. segir að lögmanni sé óheimilt að tilkynna til dómstóla eða auglýsa aðra fulltrúa en þá, sem eru starfandi á lögmannsskrifstofu hans. Skylt sé lögmanni að tilkynna fulltrúa sína til skrifstofu félagsins og gæta að öðru leyti skyldna samkvæmt 11. gr. laga um lögmenn. Þá segir í 42. gr. að lögmaður megi auglýsa og kynna þjónustu sína svo sem samrýmist góðum lögmannsháttum. Óheimilt sé lögmanni að veita rangar, ófullnægjandi eða villandi upplýsingar í auglýsingum eða með öðrum hætti, svo og að afla sér viðskipta með öðrum aðferðum, sem sama marki séu brenndar. PISTILL FORMANNS Nokkur orð um störf lögmanna og samskipti þeirra innbyrðis JÓNAS ÞÓR GUÐMUNDSSON HRL. BBA // Legal Iceland // Reykjavík // Höfðatorg // bba.is England // London // 23 Berkeley Square // bbalegal.co.uk The team is praised as being very resourceful in difcult situations and providing outstanding value for money. The Legal 500

x

Lögmannablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.