Fréttablaðið - 06.11.2014, Page 36

Fréttablaðið - 06.11.2014, Page 36
FÓLK|TÍSKA Verslunareigendur í mið-borginni bjóða upp á veitingar og uppákomur og verða með ýmis tilboð í tilefni Miðborgarvöku í dag. Undan- farin ár hefur verið efnt til Mið- borgarvöku að vori og hausti en haustvakan er yfirleitt haldin um svipað leyti og Airwaves. Það verður því án efa líf í bænum enda fjöldi tónleika á dagskrá. Anna Kristín Magnúsdóttir, eigandi verslunarinnar Kjóla & konfekts á Laugavegi 92, segir Miðborgarvöku einn skemmti- legasta dag ársins hjá verslunar- eigendum í miðborginni. „Það er svo ótrúlega mikið líf hérna í bænum og flestallar versl- anir með einhverja viðburði. Við verðum með plötusnúða og 15 prósent afslátt af öllum vörum svo dæmi séu nefnd.“ Anna Kristín segir þúsundir innlendra og erlenda gesta í bænum í tengslum við Airwaves og að fólki finnist Miðborgar- vakan algert ævintýri. „Það hefur myndast notaleg stemning og allir eru svo glaðir. Margir nýta jafnframt tilboð og afslætti og hefja jólagjafakaupin.“ Anna Kristín segir Airwaves-gesti mjög áhugasama um íslenska hönnun og tísku og keppast þeir um að finna séríslenska vöru til að skarta á hátíðinni. Kjólar & konfekt var opnuð í desember fyrir tveimur árum. „Við erum svolítið ofarlega á Laugaveginum sem er ört vax- andi svæði. Við gætum ekki verið ánægðari enda hafa viðtökurnar verið frábærar,“ segir Anna Kristín. Í versluninni eru bæði inn- fluttir kjólar og kjólar sem eru saumaðir á staðnum, auk barna- kjóla. Anna Kristín segir leitast við að vera með kjóla sem henta öllum. „Við pössum okkur á að bjóða upp á fjölmörg snið og sanngjarnt verð. Við erum með allt frá tjullkjólum yfir í mikið úr- val af svörtum kjólum fyrir jafnt hversdagsleg sem fínni tilefni.“ SKEMMTILEGASTI DAGUR ÁRSINS MIÐBORGARVAKA Efnt verður til Miðborgarvöku á Laugavegi í dag og verð- ur opið til 22 í öllum verslunum. Anna Kristín Magnúsdóttir, eigandi Kjóla og konfekts, segir Miðborgarvöku að hausti einn skemmtilegasta viðburð ársins. ALLIR GLAÐIR Anna Kristín Magnúsdóttir segir stemninguna á Miðborgarvöku notalega. Hún segir Airwaves-gesti mjög áhugasama um íslenska hönnun og tísku og keppast þeir um að finna séríslenska vöru til að skarta á hátíðinni. Brasilíska fyrirsætan Lea T hefur brotið á bak aftur margar hindr- anir og fordóma í tískuiðnaðinum. Hún er músa og fyrrverandi að- stoðarkona Riccardo Tisci hjá Givenchy en hefur nú skrifað undir meiriháttar samning um að gerast andlit Redken. Ástæðan fyrir því að þetta þykir frásagnarvert er að Lea T er transkona. Lea T, sem er einnig mikil baráttukona gegn einelti, er fyrsta transfyrirsætan sem landar samningi við jafn þekkt merki og Redken. Fyrirsætan er þekkt fyrir þykkan og fallegan makkann og því ekki að furða að Redken hafi sóst eftir samningi við hana. Redken-samningurinn er í raun aðeins nýjasti sigur Leu T í tískubransanum. Hún hefur birst í fjölmörgum auglýsingum Givenchy og kyssti meðal annars Kate Moss á forsíðu Love magazine. LEA T MEÐ SAMNING VIÐ REDKEN FYRIRSÆTA OG TRANSKONA Lea T hefur verið áberandi í tísku- heiminum undanfarið en hún er músa Riccardo Tisci hjá Givenchy og hefur setið fyrir í ófáum auglýsingum fyrir tískurisann. Stærðir 38-52 Bæjarlind 1-3 201 Kópavogur s: 571-5464 my style Alltaf eitthvað nýtt og spennandi Kí ki ð á m yn di r o g ve rð á F ac eb oo k Laugavegi 178 | Sími 555 1516 og v er ð á Fa ce bo ok Opið virka daga kl . 11–18. Opið laugardaga k l. 10–16. Eftir fertugt framleiðir líkaminn 50% minna Nitric Oxide. SUPERBEETS örvar Nitric Oxide framleiðslu strax. Betra blóðflæði, allt að 30% æðaútvíkk un, 30% meiri súrefnisupptaka, réttur blóðsykur, 20% meira þrek orka og úthald. Nitric Oxide hefur áhrif á og bætir: Blóðþrýsting, kólesteról, hjarta- æða- og taugakerfi, þvagblöðru, lifur, nýru, ofnæmiskerfi, astma, lungnaþembu. Nitric Oxide stjórnar blóðflæði líkamanns. Bætt ris hjá körlum, aukin kynörvun kvenna. Nánari upplýsingar www.SUPERBEETS.is Blóðrásin flytur súrefni og næringarefni til frumna líkamans Betra blóðflæði betri heilsa Fæst í Apótekum og heilsubúðum Umboð: vitex ehf

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.