Fréttablaðið - 27.12.2014, Blaðsíða 40
FÓLK| HELGIN
Skrautlegir búningar og létt andrúmsloft ein-kenna alltaf Gamlárshlaup ÍR sem haldið verður 39. árið í röð á gamlársdag. Hlaupið
er meðal stærstu hlaupaviðburða ársins og fastur
liður í keppnishaldi margra hlaupara og hlaupa-
hópa auk þess sem það setur skemmtilegan svip
á miðborg Reykjavíkur þennan síðasta dag ársins.
Stór hluti keppenda klæðist skrautlegum búningum
og ólíkt flestum öðrum hlaupum ársins mæta flestir
með það markmið í huga að skemmta sér og eiga
góðan dag með hlaupafélögum og fjölskyldumeð-
limum.
Meðal þátttakenda í ár er Halldóra Hálfdánar-
dóttir sem hlaupið hefur með skokkhópi Vals síðan
árið 2009. Hún tók fyrst þátt árið 2007 en vissi þá
ekki af búningahefðinni. „Í fyrsta Gamlárshlaupi
mínu eftir að ég byrjaði í skokkhópi Vals var ég ekki
í búningi og gekk ekkert sérstaklega vel. Ég sá því
strax að það borgaði sig bara að hlaupa í einum
slíkum. Það er mikil hefð fyrir því í skokkhópnum
mínum að hlaupa í búningi á þessum degi enda höf-
um við það mottó að ef maður mætir ekki í búningi,
verður maður að ná persónulegu meti. Valsskokk-
arar eru því mjög duglegir að mæta skrautlega
klæddir enda ekki algengt að ná persónulegu meti á
þessum tíma árs. Ég hef endalaust gaman af því að
láta eins og vitleysingur og þá er mjög heppilegt að
geta klætt sig í búning og látið allt flakka!“
Ekki er laust við að mörg eftirminnileg atvik eigi
sér stað þegar skrautlega klæddir hlauparar safn-
ast saman með þessum hætti. „Eitt árið fór ég alein
í matvörubúð í trúðabúningi. Þar vakti ég eðlilega
mikla athygli yngstu kynslóðarinnar sem bjóst
eflaust við því að ég myndi taka nokkur trix sem
ég er reyndar alveg ófær um! Sama ár hljóp ég með
Gísla hlaupavini mínum í Valshópnum klædd trúða-
búningi en hann í jólasveinabúningi og gúmmístíg-
vélum. Við vöktum mikla athygli og sérstaklega
þegar fólk sá fótabúnaðinn hjá Gísla.“
Hún segir nær alla meðlimi skokkhópsins mæta
árlega í hlaupið og engar afsakanir séu teknar gild-
ar, kannski helst þá að viðkomandi þurfi að mæta í
eigin jarðarför. „Við erum alltaf mjög forvitin að sjá
búningana hjá hvert öðru og leggjum oftast mikinn
metnað í þá. Eftir hlaupið skálum við svo í fjalla-
kakói og er það góð stund til að kveðja árið með
góðum félögum.“
Gamlárshlaupið verður ræst við Hörpu kl. 12 og
lýkur á sama stað.
Forskráning í hlaupið fer fram á www.hlaup.is
en henni lýkur á miðnætti 30. desember. Auk þess
verður hægt að skrá sig í hlaupið á gamlársdag í
Hörpu milli kl. 10 og 11.30.
Allar nánari upplýsingar má finna á vef ÍR, www.
ir.s, undir flipanum Frjálsar og á Facebook undir
Gamlárshlaup ÍR.
GAMAN AÐ LÁTA EINS
OG VITLEYSINGUR
SKEMMTILEGT HLAUP Meira fer fyrir skrautlegum búningum og léttri stemn-
ingu en harðri keppni í Gamlárshlaupi ÍR sem nú er haldið 39. árið í röð.
Margir hlauparar og hlaupahópar leggja mikinn metnað í búningana.
BÓFAR Á FERÐ Lukku-Láki reynir að handsama Dalton-bræður.
MYND/TORFI LEIFSSON, HLAUP.IS.
KÓNGURINN MÆTTUR Sjálfur Elvis Presley hljóp í fyrra í
Gamlárshlaupinu. MYND/ÖRVAR RUDOLFSSON
ÓLÁTABELGIR Peyjarnir tveir úr Kettinum með höttinn voru kátir. MYND/TORFI LEIFSSON, HLAUP.IS.
OFURHETJAN Halldóra í Superman búningi ásamt Hilmari,
eiginmanni sínum, og dóttur þeirra, Diljá. MYND/ÚR EINKASAFNI
Active Liver
í lifrinni og styrkir
starfsemi hennar
„Finn mikinn mun á mér,
eftir að ég byrjaði að nota
Active Liver. Hef minni
löngun í óhallan mat,
Ég hef líka lést og er mjög
ánægð með árangurinn“.
-Kirsten
Ábendingahnappinn má finna á
www.barnaheill.is