Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 2009, Side 44

Náttúrufræðingurinn - 2009, Side 44
Náttúrufræðingurinn 108 Lýsing og lifnaðarhættir Folafluga er stórvaxin fluga af ættbálki tvívængja sem tilheyrir hrossafluguættinni (Tipulidae) og er nýjasta viðbótin við þá ætt hérlendis. Fjórar tegundir eru nú þekktar hér á landi og hafa þær allar hlotið íslensk heiti sem tengjast hestum. Tipulidae – hrossafluguætt Prionocera turcica – kaplafluga Tipula rufina – hrossafluga Tipula confusa – trippafluga (áður T. marmorata) Tipula paludosa – folafluga (Erling Ólafsson, munnl. uppl.) Folaflugan er áberandi stærst þessara fjögurra tegunda og eru karlflugur mun lappalengri en kvenflugur, ólíkt hinum tegundun- um (Erling Ólafsson, munnl. uppl.). Auðvelt er að greina milli kynja, þar sem kvenflugur eru bæði stærri og oddhvassar á aftasta búkhluta; það kemur þeim til góða þegar þær verpa í jarðveginn. Höfuð er lang- leitt, útlimir mjög langir og búkur grannur og langur. Búklengd karl- flugna er 16–18 mm og kvenflugna 19–25 mm. Vængir eru grannir, langir, hálfgegnsæir og brúnleitir á jöðrum. Líkami folaflugunnar er grábrúnn (1. og 2. mynd). Hún hefur fullkomna myndbreytingu sem flokkast í fjögur lífsstig (egg, lirfu, púpu og flugu) og auk þess hefur lirfan fjögur vaxtarstig (lirfu- stig = instör).2 Flugurnar makast allt sumarið (2. mynd) og kvenflugur verpa síðan ofan í jarðveginn þar sem er gróður og þá sérstaklega gras nálægt því svæði þar sem þær klöktust sjálfar úr púpum.1,2 Egg flugunnar eru svört, glans- andi og sívöl, um 1 mm á lengd og um 0,4 mm í þvermál. Lirfan klekst úr eggi um 14 dögum eftir varp og er fótalaus og ljósbrún á litinn.1 Hún er með sívalan mjúkan líkama og sterka yfirhúð (3. mynd). Á útbreiðslusvæði tegundarinnar eru lirfur algengar í mýrum, deig- lendi, graslendi og túnum. Fyrstu tvö vaxtarstig lirfunnar standa stutt og dvelst hún yfirleitt yfir veturinn á þriðja vaxtarstiginu (3. lirfuin- stari).3 Lirfurnar geta verið virkar þrátt fyrir að umhverfishiti sé aðeins 5°C og geta því haldið áfram áti á hlýjum tímabilum yfir veturinn.4 Þegar vorar verða þær mun virkari og byrja að éta mikið og fara á fjórða (og seinasta) vaxtarstigið.2 Fullvaxn- ar eru þær um 3–4 cm að lengd og halda sig í 6–8 vikur í göngum sem þær hafa grafið sér. Frá júní og fram í ágúst fikra þær sig upp á yfirborð jarðvegsins og púpa sig þar og varir púpustigið í um tvær vikur.1 Fola- flugur hafa eina kynslóð á ári og myndbreytast frá púpu yfir í flugu frá júní til september.5 Útbreiðsla Tegundin er þekkt á kaldari svæð- um í Norður-Evrópu og hafa lirf- ur hennar verið skilgreindar sem meindýr og valdið skaða í mörgum Evrópulöndum, Kanada og Norð- vestur-Bandaríkjunum.6,7,8,9,10,11,12 Dr. Erling Ólafsson skordýra- fræðingur bar fyrst kennsl á hana í Gróðrarstöðinni Borg í Hveragerði í júlí 2001, en talið er líklegt að hún hafi borist til Hveragerðis nokkru áður. Síðan hefur hún fundist í nágrenni Hveragerðis, við bæinn Gljúfur austan við Sogn, inni í Reykjadal og við Mógilsá í Kolla- firði. 2. mynd. Folaflugur að makast. Neðri flugan er karlfluga og sú efri kven- fluga. – Mating of the Marsh Craneflies. The lower fly is a male, the upper one a female. Ljósm./Photo: Jon Law, 01.06.2007. 3. mynd. Lirfa folaflugunnar. – Larva of the Marsh Cranefly. Ljósm./Photo: Gísli Már Gíslason, Hveragerði, 25.07.2007.

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.