Náttúrufræðingurinn - 2009, Blaðsíða 61
125
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
2. mynd. Álftamerkingar á votlendissvæðum Skagafjarðar hafa verðið unnar í smavinnu
við Ólaf Einarsson líffræðing. Ljósm.: Armelle Decaulne 2006.
Náttúrustofa Norðurlands vestra
Þorsteinn Sæmundsson
Náttúrustofa Norðurlands vestra
var stofnsett 1. febrúar árið 2000 og
er aðsetur stofunnar að Aðalgötu 2
á Sauðárkróki. Það húsnæði var
upphaflega byggt sem barnaskóli
árið 1908 og er því 100 ára nú í
ár. Áður en stofan flutti þar inn
hafði sveitarfélagið lagt í miklar
endurbætur á húsinu og er það
nú mikil bæjarprýði. Að rekstri
stofunnar standa tvö sveitarfélög,
Skagafjörður og Akrahreppur.
Starfsemi stofunnar hefur mótast
af umhverfi hennar og hafa grunn-
rannsóknir á náttúru svæðisins
verið í fyrirrúmi. Mikil áhersla hefur
verið lögð á jarðfræðirannsóknir
en einnig hafa fuglarannsóknir á
votlendissvæðum Skagafjarðar verið
töluvert ríkur þáttur í starfi hennar
og sérstök rækt verið lögð við sam-
starf við innlendar og erlendar
rannsóknarstofnanir og ekki síst
fræðslu til almennings.
Fastir starfsmenn stofunnar eru
fjórir. Þorsteinn Sæmundsson er
forstöðumaður stofunnar og hefur
starfað þar frá upphafi. Hann er
jarðfræðingur og lauk BS-prófi og
4. árs prófi frá Háskóla Íslands
árið 1989. Hann lauk fil.lic.-prófi í
ísaldarjarðfræði frá Háskólanum í
Lundi árið 1992 og fil.dr.-prófi frá
saman skóla árið 1995. Þorsteinn
hefur lagt megináherslu á rannsókn-
ir á ofanflóðum, jafnt snjóflóðum,
aurskriðum og berghlaupum, og
jarðfræðilegum ummerkjum þeirra.
Hann hefur beitt sér mjög fyrir
erlendu samstarfi og hefur setið í
stýrihópum í Evrópusamstarfi
SEDIFLUX- og SEDIBUD verkefn-
anna (sjá nánar á www.ngu.no/sedi-
flux). Í tengslum við þessi verkefni
stóð stofan að alþjóðlegri ráðstefnu
á Sauðárkróki árið 2004 sem mark-
aði upphaf þessara verkefna.
Helgi Páll Jónsson er jarðfræð-
ingur og lauk BS-prófi frá Háskóla
Íslands árið 2005. Helgi hóf fyrst
störf hjá stofunni árið 2002 sem
sumarstarfsmaður. BS-ritgerð hans
fjallaði um öskulög í Skagafirði og
hefur hann meðal annars unnið að
kortlagningu á útbreiðslu þeirra.
Að auki hefur Helgi unnið að
1. mynd. Aðsetur Náttúrustofu Norðurlands vestra að Aðalgötu 2, Sauðárkróki. Ljósm.
Þorsteinn Sæmundsson 2007.
3. mynd. Rannsóknir á Orravatnsrústum á
Hofsafrétt hafa verið stundaðar frá árinu
2001. Ljósm.: Þorsteinn Sæmundsson 2003.