Náttúrufræðingurinn - 2009, Síða 78
Náttúrufræðingurinn
162
Október: Járngerður Grétarsdóttir
plöntuvistfræðingur hélt erindi um
rannsóknir á gróðri stuttu eftir stór-
an sinubruna. – Skammtímaáhrif
sinubruna á Mýrum 2006 á gróður.
Fundargestir voru 25.
Nóvember: dr. Ólafur Ingólfsson
jarðfræðingur hélt erindi um ferð
sína í eyðimörkina. – Jöklafræð-
ingur í Kalahari-eyðimörkinni:
jarðsaga, fornjöklun, demantar og
ljón. Fundargestir voru 40.
Fræðsluferð
Þessi þáttur félagsstarfsins hefur því
miður verið mjög lítill síðustu árin.
Ein fræðsluferð á vegum félags-
ins var farin á árinu. Miðvikudags-
kvöldið 6. júní 2007 hittist hópur
fólks á bílastæði í Bláfjallafólkvangi
en ferðinni var heitið á Þríhnúkagíg.
Fararstjóri og leiðsögumaður var dr.
Kristján Sæmundsson jarðfræðingur,
sem þekkir svæðið vel vegna rann-
sókna sinna þar. Fram hafa komið
hugmyndir um að grafa göng í Þrí-
hnúkagíg og koma fyrir útsýnispalli
um miðjan hellinn. Fáir hellar eru til
á jörðinni af þeirri gerð og stærð sem
Þríhnúkagígur tilheyrir. Rúmlega
20 manns gengu, en vegna slæms
veðurs gekk aðeins hluti þeirra sem
mættu. Lengst af ferðar var skyggni
ekkert og hópurinn gekk í roki og
rigningu í tvo og hálfan tíma. Það er
óhætt að segja að Kristján hafi leyst
verkefnið vel af hendi og þrátt fyrir
leiðindaveður var ferðin áhugaverð
og mjög fræðandi. Margir í hópnum
voru ákveðnir í að fara sem fyrst
aftur í betra veðri til að sjá það sem
Kristján lýsti en ekki sást.
Náttúruminjasafn Íslands
Lög um Náttúruminjasafn Íslands
(nr. 35 2007) voru samþykkt á
Alþingi þann 17. mars 2007 með 49
atkvæðum en 14 þingmenn voru
fjarstaddir. Lögin tóku gildi 30. mars
2007. Frumvarp að lögum um Nátt-
úruminjasafn Íslands var fyrst lagt
fyrir vorþingið 2006 en ekki tókst
að ljúka afgreiðslu þess þá. Lítið
breytt frumvarp var lagt fyrir þingið
haustið eftir þannig að frumvarpið
fór tvisvar sinnum til menntamála-
nefndar. Menntamálanefnd leitaði í
bæði skiptin eftir umsögn félagsins
og varð stjórn félagsins við þeirri
beiðni. Þann 13. febrúar 2007, á með-
an frumvarpið var til meðferðar í
þinginu, skrifaði stjórn Hins íslenska
náttúrufræðifélags opið bréf til
þingmanna og fékk það birt í Morg-
unblaðinu. Í bréfinu hvatti stjórnin
þingmenn til að styðja frumvarpið.
Stjórn félagsins taldi mikilvægt að
lögin yrðu samþykkt því hún gerði
sér vonir um að við það kæmist
hreyfing á málefni safnsins.
Fljótlega eftir að lög um Nátt-
úruminjasafn Íslands voru sett var
staða safnstjóra auglýst og bárust sjö
umsóknir um starfið. Menntamála-
ráðherra veitti dr. Helga Torfasyni
jarðfræðingi, þáverandi varafor-
manni Hins íslenska náttúrufræði-
félags, safnstjórastöðuna þann 8. maí
2007. Náttúruminjasafn Íslands fékk
aðstöðu að Túngötu 14 í Reykjavík.
Annað
Fimmta Umhverfisþing umhverfis-
ráðherra var haldið á Hótel Nordica
í Reykjavík dagana 12.–13. október.
Umhverfisþingið fjallaði um nátt-
úruvernd og líffræðilega fjölbreytni
nú og í framtíðinni. Þingið sátu
Kristín Svavarsdóttir, Helgi Torfa-
son, Hilmar J. Malmquist og Krist-
inn J. Albertsson úr stjórn Hins
íslenska náttúrufræðifélags. Fulltrúi
umhverfisverndarsamtaka, Kristín
Helga Gunnarsdóttir rithöfundur,
hélt erindi við upphaf þingsins og
tveir fulltrúar sömu félaga, Björg-
ólfur Thorsteinsson og Guðbjörg R.
Jóhannesdóttir, sátu í pallborði í lok
þingsins.
Hið íslenska náttúrufræðifélag
var kynnt á veggspjaldi á Umhverfis-
þinginu.
Um höfundinn
Kristín Svavarsdóttir (f.
1959) hefur verið formað-
ur Hins íslenska náttúru-
fræðifélags frá 2002. Hún
lauk doktorsprófi í plöntu-
vistfræði frá Lincoln-
háskóla í Nýja-Sjálandi.
Kristín er sérfræðingur í
vistfræði hjá Landgræðslu
ríkisins.
Póstfang höfundar
Kristín Svavarsdóttir
Landgræðsla ríkisins
Keldnaholti
IS-112 Reykjavík
kristin.svavarsdottir@land.is2. mynd. Á leið á Þríhnúkagíg í slæmu skyggni og misjöfnu veðri. Ljósm.: Stefán Már
Stefánsson.
3. mynd. Þríhnúkagígur lengst til vinstri.
Ljósm.: Stefán Már Stefánsson.
78 3-4 LOKA.indd 162 11/3/09 8:33:55 AM