Víkurfréttir - 21.12.2011, Síða 20
20 MIÐVIKUdagUrInn 21. dESEMbEr 2011 • VÍKURFRÉTTIR
Eftirfarandi verkefni hljóta
styrk að þessu sinni.
MYR design
Fyrirtækið framleiðir eigin vörulínu í fatn-
aði og fylgihlutum. Verkefnið lýtur að því
að styrkja markaðssetningu fyrirtækisins í
Austurríki þar sem framleiðslan hefur nú
þegar fengið góðar viðtökur, enda hóf MYR
design starfsemi sína þar þegar hönnuður-
inn og eigandinn bjó þar um tíma. Verk-
efnið hlýtur styrk að fjárhæð 500 þúsund.
Framleiðsla á Omega-3 fitusýrum á
Reykjanesi
Verkefnið snýr að þróun og síðar uppsetn-
ingu á framleiðslueiningu á Reykjanesi í
samstarfi við erlenda samstarfsaðila Ma-
torku. Markaður fyrir Omega-3 fitusýrur er
gríðarlega stór og fer vaxandi. Reykjanesið
er ákjósanlegt fyrir framleiðslu af þessum
toga þar sem hér er næg orka. Verkefnið
hlýtur styrk að fjárhæð kr. 500 þúsund.
Keflavík Music Festival
Hugmyndin með verkefninu er að setja á
laggirnar tónlistarhátíð á Ásbrú. Hátíðin
verður markaðssett erlendis jafnt og á Ís-
landi. Styrkurinn er veittur til áframhald-
andi undirbúnings og þróunar á klasasam-
starfi og viðskiptahugmyndinni. Verkefnið
hlýtur styrk að fjárhæð kr. 500 þúsund.
Endurnýting fisksalts
í hálkuvarnarsalt
Verkefnið lýtur að rannsóknum og til-
raunum á að hreinsa og endurnýta fisksalt
með það að markmiði að nýta það sem
hálkuvarnarsalt. Með því er hægt að lækka
kostnað sveitarfélaga sem hlýst af inn-
fluttu salti til hálkuvarna og spara með
verkefninu dýrmætan gjaldeyri. Verkefnið
lýtur styrk að fjárhæð kr. 800 þúsund.
Reykjanes Culture & Design Tours
Verkefnið lýtur að því að bjóða erlend-
um ferðamönnum upp á menningar- og
hönnunartengdar verslunarferðir fyrir
einstaklinga og hópa og kynna fyrir þeim
íslenska menningu, hönnun, hand-
verk og listir. Þróað verður verkefnið
Reykjanes Design and Cultural Tours og
áhersla lögð á að ná til „Stop-over“ ferða-
manna, eða þeirra sem dvelja á landinu
einn sólarhring eða skemur. Verkefnið
hlýtur styrk að fjárhæð kr. 800 þúsund.
Aircraft Asset Management
Verkefnið lýtur að sérhæfingu á heildar-
lausn í eigna- og verðmætastýringu
fyrir flugvélaeigendur með flugvélar
sem lokið hafa líftíma sínum. Áæt-
anir gera ráð fyrir að unnt sé að endur-
nýta 85-95% af hverri flugvél. Verkefnið
hlýtur styrk að fjárhæð kr. 1 milljón.
Hagræn förgun á sorpbrennsluösku
Verkefninu er ætlað að skoða og greina nýja
valkosti við förgunarlausnir óbrennanlegra
afurða sorpbrennslustöðvar. Verkefnið fékk
styrk úr Vaxtarsamningi á sl. ári og er hér
um framhald að ræða. Með þessu verkefni
hefur náðst að auka þekkingargrunn og
kortleggja eiginleika öskuefna að verulegu
marki auk þess að þróa hugmyndir að
tæknilausnum. Í þessum hluta verkefn-
isins er ætlunin að útfæra tæknilausnir og
prófa þær við raunsannar aðstæður. Verk-
efnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 1 milljón.
Research on a variety of seaweed
species and their extracts obtained
from Suðurnes, for use in certified
organic health and skin care pro-
ducts
Verkefnið lýtur að nýtingu og vinnslu
á lífrænt vottuðum þörungum til notk-
unar í heilsu- og húsvörum. Verkefnið
mun efla þróun og nýsköpun úr stórþör-
ungum og leggja grunn að aukinni nýt-
ingu stórþörunga á Reykjanesi. Verkefnið
hlýtur styrk að fjárhæð kr. 1 milljón.
Sjóstangaveiði á Suðurnesjum
Verkefni þetta lýtur að vetrarferðamennsku.
Í byrjun er ætlunin að gera út einn bát á
Suðurnesjum, frá Sandgerði, Grindavík eða
Reykjanesbæ eftir því hvaða höfn hentar
best hverju sinni. Varan mun til að byrja
með byggja á sjóstangaveiði, veitingasölu,
vinnslu á afla og pökkun auk annarrar
þjónustu við viðskiptavinina. Verkefnið
hlýtur styrk að fjárhæð kr. 1 milljón.
Umsókn um styrk til uppbyggingar
á Auðlindagarði sem vinnur úr af-
urðum sem tengjast jarðvarma
Verkefnið lýtur að styrkumsókn til sjöundu
rammaáætlunar Evrópusambands-
ins. Þar verður sótt um styrk til þess að
koma á fót skilgreindum Auðlindagarði,
sem yrði öndvegissetur í fjölnýtingu af-
urða úr jarðvarma. Ef af styrkveiting-
unni verður frá Evrópusambandinu er
hér um að ræða fjármuni sem myndu
gera fjölmörgum fyrirtækjum og stofn-
unum kleift að þróa nýjar vörur, þjónustu
og markaði með tilheyrandi atvinnu- og
verðmætasköpun á Suðurnesjum. Verkefnið
hlýtur styrk að fjárhæð kr. 1,5 milljón.
Hagræn nýting fiskislógs
á Suðurnesjum
Víða er förgun á fiskslógi orðið umhverf-
islegt vandamál, fyrirtæki standa frammi
fyrir umtalsverðum flutnings- og förgunar-
kostnaði. Því er þörf á hentugri lausn á nýt-
ingu slógs til mjöls og lýsisgerðar. Verkefnið
lýtur að rannsóknum, greiningu og frum-
hönnun á slógnýtingarverksmiðju. Verk-
efnið hlýtur styrk að fjárhæð 2 milljónir.
Kynningarátak á vörum í Whole
Foods Market
Verkefnið lýtur að markaðsátaki í Banda-
ríkjunum þar sem fyrirtækið Hafnot
ehf hefur komið vörum sínum Söl og
Hrossaþara í verslanir Whole Foods
Market verslunarkeðjunnar í Bandaríkj-
unum. Varan er nú í samkeppni við vöru
frá Asíu sem er talsvert ódýrari en gæði
íslensku vörunnar þykja mun betri. Verk-
efnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 2 milljónir.
Flugvirkjabúðir
Verkefnið lýtur að því að byggja upp
alþjóðlegt nám í flugvirkjun við flug-
akademíu Keilis. Verkefnið hefur verið
styrkt af Vaxtarsamningi og er hér sótt
um öðru sinni til áframhaldandi þróunar
starfseminnar og markaðsvinnu, með það
að markmiði að hefja nám í flugvirkj-
un hjá Keili um mitt ár 2012. Verkefnið
hlýtur styrk að fjárhæð kr. 2 milljónir.
Flugvélamálun
Verkefnið lýtur að málun flugvéla stórra
sem smárra. Sambærileg þjónusta er ekki
til staðar á Íslandi og hafa því íslensk flug-
félög sótt þjónustuna til annarra landa. Við-
skiptahugmyndin er sú að sækja á erlendan
markað ásamt því að skapa möguleika fyrir
íslensk flugfélög að fá þjónustuna hér á landi
og spara með því tíma og gjaldeyri. Verk-
efnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 2 milljónir.
Grjótkrabbi – rannsóknir
og vinnsla á Suðurnesjum
Verkefnið gengur út á veiðar, vinnslu og
markaðssetningu á grjótkrabba sem er ný
tegund hér við land en er þekkt nytjategund
við NA strönd Ameríku. Um framhalds-
umsókn er að ræða. Ætlunin er að halda
áfram rannsóknum á krabbanum, auk
vöruþróunar og markaðssetningar. Verkefn-
ið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 2,5 milljónir.
Eldfjallagarður á Reykjanesi
Verkefnið lýtur að því að koma jarðminj-
um á framfæri, vernda þær og stuðla
að sjálfbærri efnahagslegri þróun með
því meðal annars að þróa jarðferða-
mennsku og eldjallagarð. Verkefnið byggir
á einstakri jaðfræði í landi Grindavík-
ur og á Reykjanesinu. Verkefnið hlýt-
ur styrk að fjárhæð kr. 3 milljónir.
16 verkefni fengu styrki fyrir 22 millj.
kr. frá Atvinnuþróunarráði
Eins og kunnugt er gerðu Iðnaðarráðuneytið og At-vinnuþróunarráð sveitarfélaga á Suðurnesjum með
sér Vaxtarsamning með það að markmiði að efla sam-
keppnishæfni atvinnulífsins og nýsköpun á Suðurnesjum.
Byggt er á hugmyndafræði klasa enda er eitt af mark-
miðum vaxtarsamninga um land allt að stofna til og efla
klasasamstarf til uppbyggingar atvinnulífs og nýsköp-
unar. Í fyrstu úthlutun fyrir tæpu ári síðan voru 15 verk-
efni styrkt og öll byggðu þau verkefni á klasasamstarfi.
Verkefnin voru af margvíslegum toga, rannsóknarverk-
efni, ferðaþjónustuverkefni, verkefni tengd flugstarfsemi og
sjávarútvegi svo eitthvað sé nefnt. All flest hafa verkefnin
lokið eða eru um það bil að ljúka þeim verkþáttum sem
samningur var gerður um í kjölfar úthlutunar. Í nokkrum
þessara verkefna hefur þróunin orðið sú að fyrirtækjum
hefur fjölgað sem vilja vera þátttakendur í klasa viðkomandi
verkefnis, þannig virkar klasinn best, fleiri fyrirtæki eru
virkir þátttakendur, stuðningur við verkefnið verður öflugra
og verkefni þróast af festu og öryggi. Fyrirtækin í klasanum
geta átt í harðri samkeppni sín á milli en koma hver með sína
þekkingu að þróun einstakra verkefna sem klasinn ákveður
að vinna sameiginlega að.
Í annað sinn var auglýst eftir styrkhæfum verkefnum í
október sl. 40 umsóknir bárust og í liðinni viku var tilkynnt
um 16 verkefni sem hljóta stuðning Vaxtarsamnings. Sótt
var um verkefnastyrki að fjárhæð kr. 127.856.- milljónir
króna. Áætlað heildarverðmæti verkefnanna að mati þátt-
takenda sjálfra eru 318.886 millj. kr. Eins og áður er sótt til
fjölbreyttra verkefna.