Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.2014, Blaðsíða 20

Frjáls verslun - 01.11.2014, Blaðsíða 20
20 FRJÁLS VERSLUN 11 tbl. 2014 „Ég fór til Frakklands eftir menntaskóla því mig hafði alltaf langað til að læra frönsku. Eftir námið fékk ég starf sem fjár ­ mála stjóri franska sendiráðsins á Íslandi. Það var góður tími og þar lærði ég heilmikið um alþjóðasamskipti og fleira. Eftir að ég hætti þar stofnuðum ég og fyrr verandi samstarfskonur mínar árið 2005 líkams ­ ræktar stöðina Heilsu aka demíuna í Egilshöll. Þetta var líkams ræktar stöð sem gekk út á námskeið og kom um við með ýmsar nýjungar inn á mark aðinn, eins og námskeið í Polefitness, herþjálf un og nám skeið fyrir unglinga með þyngdar stjórn unar vandamál svo dæmi séu tekin.“ Stofnuðu fasteignafélag í hruninu Árið 2010 kynntust Valdís og samstarfskona hennar bandarískum fjárfesti og þá fóru hjólin að snúast í aðra átt en verið hafði fram að þeim tíma. „Þetta var í raun algjör tilviljun að við kynntumst honum en fljót ­ lega varð ljóst að grundvöllur var fyrir samstarfi sem átti eftir að verða farsælt. Við stofnuðum í kjölfarið fasteignafélagið Þórsgarð sem hafði það að markmiði að vera langtímaleigufélag fyrir einstaklinga þannig að leigjendur gætu fundið til öryggis á markaði. Þarna tókum við í raun danska módelið og heimfærðum það upp á Ísland þar sem langtímaleigusamningar voru gerðir við fólk til 10­20 ára í senn,“ segir Valdís. „Við keyptum 25 íbúðir og á innan við mánuði voru tugir manns komnir á bið ­ lista. Þetta gekk því framar vonum en vegna örðugleika í viðræðum við aðila inn an fjármálakerfisins sveigðum við fljót ­ lega af þessari leið og fórum út í að kaupa og reka atvinnuhúsnæði. Við keypt um Sæ túns 10­reitinn í samvinnu við fasteigna ­ þró unarfélagið Stólpa. Þórsgarður keypti síðan Kaaber­húsið sem við gerðum upp en ákváðum að halda upprunalegri mynd hús s­ ins eins og kostur var. Gamla Heimilistækjahúsið var tekið í gegn frá A­Ö og hýsir nú Advania. Árið 2012 var húsið selt til sjóðstýringafyrirtækisins Stefnis. Það sama ár keyptum við Kirkju ­ hvol í miðbænum sem við breyttum í hótel og opnuðum einnig Bergsson mat hús í sam vinnu við Þóri Bergsson matreiðslu ­ meistara.“ Mikil tækifæri og margar áskoranir Af persónulegum ástæðum seldi Valdís hlut sinn í Þórsgarði á þessu ári og þá hófst leit að nýjum og spennandi tækifærum. „Það er gott að halda áfram og maður verð ur að passa sig á að verða ekki of til ­ finn ingalega tengdur verkefnunum. Þetta var frábær tími hjá Þórsgarði og góð reynsla sem ég fékk þar. Það var mjög áhuga vert að fá að kynnast þessum heimi, stofna og reka fasteignafélag og það fljót ­ lega upp úr hruninu. Það voru gríðarleg tæki færi á þessum tíma en einnig miklar áskoranir. Helsta hindrunin var að öðlast trúverðugleika og að sanna sig. Við vorum ungar konur að kaupa með frægari húsum landsins eins og Kaaberhúsið og Kirkjuhvol og fjölda íbúða í Garðabæ, Kópavogi og Hafnarfirði og þurftum virkilega að sanna okkur. Það var oft skemmti legur svipur á bankamönnunum þegar við ungu konurnar komum inn og vorum í viðræðum um háar fjárhæðir en við höfðum bara lúmskt gaman af því. Eftir ákveðinn tíma hurfu efasemdirnar því við létum verkin tala og nutum fyrir vikið virðingar. Helsta verkefnið var að finna þörfina á markaðnum og búa til hugmynd sem virkaði og það heppnaðist mjög vel. Fyrst íslenskra fyrirtækja á Techstars En víkjum þá aftur að reKode sem þær stöll­ ur Rakel og Valdís vinna hörðum höndum að að festa í sessi á alþjóðlegum markaði. Fyrirtækið var nýlega valið eitt af tólf inn á Techstars. „Af 500 sprotafyrirtækjum voru tólf valin til að taka þátt í þriggja mánaða viðskipta ­ hraðli á vegum Kaplan og Techstars í New York,“ segir Valdís. „Hvert fyrirtæki fékk um 20 milljónir við það að komast inn í hraðalinn og í lok október var haldin stór Á þeim tíma hefur félagið tekið á móti um 3.500 börnum og 350 kennurum á forritunarnámskeið og það víðsvegar um landið. Þetta er fyrst og fremst ný nálgun á menntakerfið og þróun í tækni­ kennslu. Grunnþekking í forritun mun verða lágmarkskrafa í fjölda starfa í framtíðinni og vilj um við með vörum okkar og þjón ­ ustu auka tæknilæsi og tækni ­ skilning komandi kynslóða. Við hjá reKode ætlum að vaxa hratt og fara í fyrsta þrepinu í samstarf við háskóla erlendis, síðan í almenningsskólana áður en við byggjum tæknisetur á hverju svæði fyrir sig. Árdís Ármannsdóttir, Valdís Fjölnisdóttir, Rakel Sölvadóttir, Anna Sigríður Pétursdóttir og Erla Ósk Ásgeirsdóttir lukkulegar eftir fjárfestakynninguna í New York. tæknifyrirtæki – Bólgueyðandi og verkjastillandi Íbúfen® 400 mg, 30 stk og 400 mg, 50 stk H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA - A ct av is 4 1 0 1 1 3 Göngum frá verknum Notkunarsvið: Íbúfen inniheldur íbúprófen sem er bólgueyðandi, verkjastillandi og hitalækkandi lyf. Íbúfen tilheyrir okki lya sem kölluð eru NSAID lyf (bólgueyðandi lyf sem ekki eru sterar). Íbúfen er notað við vægum til meðal miklum verkjum eins og höfuðverk, mígreni, tannpínu, tíðaverkjum og hita. Ekki má taka Íbúfen: Þeir sem hafa ofnæmi fyrir íbúprófeni, öðrum skyldum lyum eða einhverju hjálparefnanna. Þeir sem fengið hafa ofnæmisviðbrögð eins og astma, nefrennsli, útbrot með kláða eða ef varir, andlit, tunga eða háls hafa bólgnað upp eftir að hafa tekið íbúprófen eða skyld lyf. Þeir sem þjáðst hafa af sárum eða blæðingum í maga eða smáþörmum (skeifugörn) í tengslum við fyrri notkun bólgueyðandi verkjalya, þjást núna af sárum eða blæðingum í maga eða smáþörmum (skeifugörn) eða hafa áður þjáðst af slíku, tvisvar eða oftar, með alvarleg lifrar-, nýrna-, eða hjartavandamál (kransæðasjúkdómar meðtaldir), þeir sem þjást af umtalsverðum vökvaskorti (vegna uppkasta, niðurgangs eða of lítillar vökvaneyslu), eru með einhverjar blæðingar (blæðingar í heila meðtaldar), eru með sjúkdóm af óþekktum uppruna sem leiðir til óeðlilegrar myndunar blóðfrumna. Sérstök varnaðarorð: Þeir sem eru með rauða úlfa (SLE) eða aðra sjálfsnæmissjúkdóma, arfgengan sjúkdóm sem hefur áhrif á blóðrauða, hemoglóbín (purpuraveiki), langvarandi bólgusjúkdóma í þörmum eins og bólgur í ristli með sárum (sáraristilbólgu), bólgur í meltingarvegi (Crohn´s) eða aðra maga- eða þarmasjúkdóma, truanir á blóðfrumnamyndun, vandamál tengd blóðstorknun, ofnæmi, ofnæmiskvef, astma, langvarandi bólgur í nefslímhúð, kinnbeinaholum, kokeitlum eða langvarandi teppusjúkdóma í öndunarvegi, blóðrásarkvilla í slagæðum handleggja og fóta, lifrar-, nýrna- eða hjartavandamál eða háan blóðþrýsting, nýkomnir úr meiriháttar skurðaðgerð ættu ekki að nota lyð. Íbúprófen getur valdið nýrnavandamálum hjá börnum og unglingum sem skortir vökva. Meðganga/brjóstagjöf: Íbúprófen má ekki taka á síðustu 3 mánuðum meðgöngu. Aðeins ætti að nota Íbúfen á fyrstu 6 mánuðum meðgöngu í samráði við lækni og ef það er algerlega nauðsynlegt. Íbúprófen getur gert konum erðara með að verða þungaðar. Þessi áhrif ganga til baka þegar hætt er að taka lyð. Íbúprófen berst í brjóstamjólk í litlum mæli og brjóstagjöf þarf yrleitt ekki að hætta meðan á skammtíma meðferð stendur. Ef lengri tíma meðferð er áætluð, ætti að meta hvort hætta eigi brjóstagjöf. Aukaverkanir: Svartar, tjörukenndar hægðir eða blóðlituð uppköst (sár í meltingarvegi með blæðingum), brjóstsviði, kviðverkir, meltingartruanir, truanir í meltingarfærum s.s. niðurgangur, ógleði, uppköst, vindgangur og harðlí, sáramyndun í meltingarvegi með eða án rofs, þarmabólga og versnandi bólga í ristli og meltingarvegi (Crohn´s) og pokamyndun í digurgirni (rof eða stlar), smásæjar blæðingar frá þörmum sem geta leitt til blóðleysis, sára og bólgu í munni, höfuðverkur, sya, svimi, sundl, þreyta, æsingur, svefnleysi og viðkvæmni. Skammtastærðir: Fullorðnir og unglingar eldri en 12 ára (≥ 40 kg): 200-400 mg sem einn skammtur eða 3-4 sinnum á dag með 4-6 klst. millibili. Hámarks dagsskammtur er 1200 mg. Börn 6-9 ára (20-29 kg): 200 mg, 1-3 sinnum á dag á 4-6 klst. fresti eftir þörfum. Hámarks skammtur er 600 mg á dag. Börn 10-12 ára (30-40 kg): 200 mg, 1-4 sinnum á dag á 4-6 klst. fresti eftir þörfum. Hámarks skammtur er 800 mg á dag. Fullorðnir skulu ekki taka Íbúfen í meira en 7 daga og unglingar ekki meira en 3 daga án samráðs við lækni. Sjá nánar í fylgiseðli. Börn 12 ára og yngri eiga ekki að nota Íbúfen nema í samráði við lækni. Lyð er ekki ætlað börnum yngri en 6 ára. Lesið vandlega leiðbeiningar sem fylgja lynu. September 2014.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.