Valsblaðið - 01.05.2012, Síða 14
14 Valsblaðið2012
Starfiðermargt
koma að stuðningi við ýmis verkefni inn-
an félagsins. Minjanefnd Vals skilaði frá-
bæru starfi og hélt áfram ótrauð þrátt fyr-
ir að afmælisár væri að baki enda næg
verkefni framundan. Settur var upp annar
bikaraskápur á jarðhæð þar sem geymdir
er hluti þeirra bikara sem yngri flokkar
félagsins hafa unnið. Hafið bestu þakkir
fyrir ómetanlegt starf við að skrá og
geyma sögu Vals.
Breytingar á starfsliði Vals
Á árinu hafa látið af störfum nokkrir góð-
ir starfsmenn félagsins til margra ára s.s.
Ragnhildur Skúladóttir sem gegndi stöðu
íþróttafulltrúa um árabil, Margrét Bryn-
geirsdóttir sem sá m.a. um verslunarrekst-
ur á Hlíðarenda og Sigríður Þórarinsdóttir
sem starfaði lengi á skrifstofu Vals. Vil ég
þakka þeim öllum fyrir gott samstarf og
vel unnin störf fyrir félagið. Ég vil bjóða
velkomna nýja starfsmenn sem ráðnir
hafa verið til starfa á árinu en það eru
Dagný Arnþórsdóttir sem er fjármálastjóri
félagsins, Viðar Bjarnason sem er nýr
íþróttafulltrúi,Telma Guðrún Jónsdóttir
sem komin er til starfa á skrifstofu Vals
og Guðmundur Thor Guðmundsson sem
tekur við rekstri verslunar.
Að lokum vil ég þakka starfsfólki
Knattspyrnufélagsins Vals undir stjórn
Haraldar Daða framkvæmdastjóra fyrir
vel unnin störf og gott samstarf á árinu.
Ég vil fyrir hönd stjórnar Vals óska öll-
um iðkendum, félagsmönnum, starfs-
mönnum félagsins, stuðningsmönnum og
fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og far-
sældar á komandi ári með von um gott
og gjöfult samstarf á nýju ári.
Einnig vil ég þakka þeim fjölmörgum
stuðningsaðilum okkar sem hafa stutt við
bakið á félaginu á árinu fyrir ómetanleg-
an stuðning.
Valskveðja,
Hörður Gunnarsson formaður.
og félagasamtaka á félagssvæði Vals.
Framkvæmd dagsins var að þessu sinni í
höndum starfsfólks Vals þó að dagurinn
sé einnig ætlaður til að kynningar á starf-
semi annarra félagasamtaka í hverfinu.
Mikill fjöldi fólks sótti Val heim á þess-
um degi og fengu þar með tækifæri til að
kynna sér það fjölbreytta starf sem boðið
er uppá hjá félaginu.
Blómlegt félagsstarf
Félagsstarf innan Vals er með miklum
blóma. Haldið var árlegt golfmót sem var
vel sótt, bridds- og skákmót voru einnig
haldin sem og að haldið var Reykjavík-
urmót íþróttafélaga í skák og er það í
annað sinn sem það fer fram á Hlíðar-
enda. Valskórinn hélt úti þróttmiklu starfi
á árinu og kom fram við ýmis tækifæri
tengd starfi félagsins sem og við önnur
tækifæri. Fjölmennt herrakvöld var hald-
ið á haustmánuðum sem tókst með mikl-
um ágætum. Vil ég þakka skipuleggjend-
um þessara viðburða fyrir þeirra aðstoð.
Fulltrúaráðið stafar nú af miklum þrótti
og heldur reglulega fundi ásamt því að
Stefnumótunarvinna á fullu á vel
heppnuðum vinnufundi, Valur á nýrri
öld, sem var haldinn 12. maí.
Það geta allir verið með á skólaleikum
Vals sem voru haldnir í 4. sinn á árinu.
Konni kóngur fagnar að hætti hússins og rífur upp steminguna þegar stelpurnar í hand-
bolta lönduðu Íslandsmeistaratitlinum 2012.
Kröftugir stuðningsmenn eru ómetan-
legir fyrir félagið.