Valsblaðið - 01.05.2012, Side 26
26 Valsblaðið2012
Framtíðarfólk
Nám: Er í Verzlunarskóla Íslands.
Kærasti: Nei enginn svoleiðis.
Af hverju Valur: Mamma mín er algjör
Valsari og svo var stóra systir mín, Heiða
að æfa fótbolta með Val svo ég hermdi
eftir henni.
Hvernig skýrir þú hvað margar efnileg
ar fótboltastelpur koma upp úr yngri
flokkum Vals: Góðir þjálfarar með góðar
æfingar og sem halda vel utan um hópinn.
Frægur Valsari í fjölskyldunni: Mamma
mín, Ragnheiður Víkingsdóttir.
Hvernig hafa foreldrar þínir stutt þig í
fótboltanum: Þau mæta á alla leiki sem
þau geta þ.e.a.s þegar þau eru ekki að
horfa á hinar systur mínar. Svo eru þau
dugleg að benda mér á það sem ég get
gert betur eða eitthvað sem ég gerði vel,
þannig þau hjálpa mer að bæta mig.
Hver er besti íþróttamaðurinn í fjöl
skyldunni: Það eru allir íþróttamenn i
fjölskyldunni minni svo ég ætla bara að
segja ég.
Erfiðustu mótherjarnir: Breiðablik.
Eftirminnilegasti þjálfarinn: Bjössi og
Sossa.
Fyndnasta atvik: Við vorum nokkrar
Valsstelpur að fara til Færeyja að keppa
æfingaleik með U17. Þegar allir hittust
hjá KSÍ kemur Ingunn þangað með haus-
inn hangandi niðri, þá hefði hún farið í
sturtu og verið að teygja sig eftir
shampoo-inu og festi sig í hálsinum. Þótt
þetta væri ekki fyndið þarna var þetta
mjög fyndið eftir á því hún var eins og
einhver krypplingur alla ferðina. Hún
náði þó að spila seinni hálfleik í seinni
leiknum.
Athyglisverðasti leikmaður í meistara
flokki kvenna hjá Val: Rakel getur ver-
ið algjör steik.
Hvernig líst þér á yngri flokkana í fót
bolta hjá Val: Mér líst bara mjög vel á
þá.
Við hvaða aðstæður líður þér best:
Þegar ég er nýbúin á æfingu um vetur,
fer í sturtu og svo í rúmið mitt undir
sæng. Gæti ekki verið betra.
Skemmtilegustu gallarnir: Er frekar
þrjósk. Það er alveg gaman fyrir mig en
veit ekki með fólkið í kringum mig.
Landsliðsdraumar þínir: Stefni á það
að komast í A-landsliðið.
Besta hljómsveit: Get alltaf hlustað á
Sálina hans Jóns míns.
Besta bíómynd: Batman myndirnar eru
góðar og Inception.
Uppáhaldsvefsíðan: Facebook.
Uppáhalds erlenda fótboltafélagið:
Barcelona.
Nokkur orð um aðstöðuna á Hlíðar
enda: Toppaðstaða, væri samt fínt að hafa
upphitaðan gervigrasvöll.
Toppaðstaðaá
Hlíðarenda
Hildur Antonsdóttir er 17 ára og leikur
knattspyrnu með meistaraflokki
Veriðvelkominíglæsilega
ValsbúðokkaraðHlíðarenda
Í búðinni fæst allur nauðsynlegur varningur til íþróttaiðkunar, Vals-
búningar og gallar frá Hummel ásamt ýmsum öðrum varningi eins
og derhúfum, treflum, Valsbrúsum o.fl. Hægt að merkja treyjurnar á
staðnum. Í Valsbúðinni geta iðkendur, foreldrar og félagsmenn
græjað sig upp í rauða litnum, rækilega merktir félaginu okkar!
Búðin er opin milli kl. 16 og 18
á virkum dögum auk þess sem hún
er opin á leikdögum.
Nánari upplýsingar á valur.is