Valsblaðið - 01.05.2012, Side 84
84 Valsblaðið2012
áns Þórðarsonar og Sigríðar Þórarinsdótt-
ur sem voru ættuð úr Biskupstungum.
Þau fluttu vestur um haf árið 1887 og var
Stefán meðal annars bæjarstjóri í Gimli í
Manitoba.
Charles var þekktur teiknari í Íslend-
ingabyggðum í Kanada, teiknaði í blaðið
Heimskringlu og myndskreytti vörulista
stórverslunarinnar Eaton í tvo áratugi.
Um skeið var hann giftur konu af pólsk-
um ættum. Sonur þeirra var Stephen
Thorson.
Kristín Sölvadóttir og Charles Thorson
hittust í Árborg, þar sem hann hélt nám-
skeið í teikningu. Síðan fór Charles að
venja komur sínar á Wevel Café í Winni-
peg þar sem Kristín var afgreiðslustúlka,
fékk sér þar kaffisopa og teiknaði mynd-
ir. Þau virðast hafa orðið mjög nánir vin-
ir. Hann var þá rúmlega fertugur, hún tví-
tug. Það kom þó ekki í veg fyrir að hann
bað hennar og gaf henni teikningu af
þeim saman þar sem hann var prinsinn
en hún prinsessan. Það mun hafa verið
sumarið 1934. En Kristín hafnaði bón-
orðinu, fór að vinna í Niagara og flutti
síðan aftur heim til Íslands um haustið.
Þau skrifuðust síðan á en hittust aldrei
aftur.
Charles flutti til Hollywood og fékk
vinnu hjá Walt Disney, meðal annars við
gerð teiknimyndarinnar um Mjallhvíti og
dvergana sjö. Síðar sagði Charles syni
sínum og fleirum að Kristín hefði verið
fyrirmyndin að Mjallhvíti. Sú saga hefur
einnig verið lífseig í Íslendingabyggðum.
Charles teiknaði líka myndir af öllum
persónum í teiknimynd um fílinn Elmer,
indíanastrákinn Hiawatha og fleiri pers-
ónur fyrir Walt Disney. Charles var alls
sjö ár í Hollywood en fór síðan að vinna
fyrir Warner Brothers, MGM og skapaði
meðal annars Kalla kanínu (Bugs
Bunny). Charles lést sumarið 1966.
Teiknimyndasagan „Mjallhvít og
dvergarnir sjö“ birtist í Þjóðviljanum
vorið og sumarið 1939 í tuttugu hlutum.
Kvikmynd Walt Disney var frumsýnd í
Gamla bíói í Reykjavík 10. maí 1939 og
þótti mikið afrek.
Kristín Sölvadóttir giftist Garðari Þór-
hallssyni bankamanni haustið 1937. Þau
bjuggu lengst af í Vogahverfi og eignuð-
ust fimm börn. Kristín lést í nóvember
1981, 69 ára.
Þorgrímur Þráinsson tók sam-
an upp úr grein eftir Jónas
Ragnarsson sem birtist í Fréttabréfi
Siglfirðingafélagsins í október 2012.
Á árunum 1907 til 1912 bjuggu hjónin
Sölvi Jónsson og Jónína Gunnlaugsdóttir
í bænum Hvanneyrarbakka (Bakki) á
Siglufirði, bæði ættuð úr Skagafirði. Þau
höfðu áður búið í Dæli í Fljótum og svo
eitt ár í Leyningi, inni í Siglufirði.
Eitt af níu börnum þeirra Sölva og Jón-
ínu var Ellert Sölvason eða Lolli í Val
eins og Valsmenn þekkja hann. Lolli
gekk í Val 1929 og lék sinn síðasta leik
með meistaraflokki í knattspyrnu árið
1951, þá 34 ára gamall. Lolli varð 7 sinn-
um Íslandsmeistari með meistaraflokki.
Ein af systrum Lolla fæddist 1. júlí
1912 í Bakka og var hún skírð Kristín Jó-
hanna. Fjölskylda Kristínar og Lolla
flutti síðan niður á Siglufjarðareyri en
Sölvi fór til Noregs haustið 1913 þar sem
hann kynntist norskum manni sem rak
verslun og útgerð á Fáskrúðsfirði. Þang-
að flutti fjölskyldan sumarið 1914. Þrem-
ur árum seinna fluttu þau öll til Eski-
fjarðar og sama ár að Búðareyri við
Reyðarfjörð. Árið 1920 flutti fjölskyldan
til Reykjavíkur og bjó meðal annars við
Óðinsgötu sem er ástæða þessa að Lolli
fór að æfa með Val.
Þegar Kristín var 17 ára, sumarið 1929,
lést Jónína móðir hennar, 53 ára að aldri.
Bæjarblöðin í Reykjavík greina frá því
að Kristín Sölvadóttir hafi haldið til
Kaupmannahafnar með varðskipinu Ægi
í janúar 1930. Hún var þá 18 ára og á leið
vestur um haf til Jónínu Oddleifsdóttur,
frænku sinnar, sem bjó í Winnipeg í Kan-
ada. Þar lék Kristín annað aðalhlutverkið
í sýningu Íslendinga á Hallsteini og Dóru
eftir Einar H. Kvaran í desember 1932.
Heimskringla og Lögberg fjölluðu um
leikritið og voru leiklistarhæfileikar
Kristínar rómaðir. „Þar fer saman yndis-
þokki æsku og útlits, léttir hlátrar lífs-
glaðrar sálar og varhugaleysi barnslegs
hreinleika,“ sagði Heimskringla sem
nefndi leikkonuna Miss K. Sölvason.
Kristín gekk í skóla vestra og stundaði
margvísleg störf, vann hluta úr ári við
Niagara-fossana og fór til New York.
Hún kom aftur til Reykjavíkur með Gull-
fossi 1934 og auglýsti að hún tæki að sér
enskukennslu.
Maður er nefndur Charles Thorson,
Vestur-Íslendingur, fæddur 29. ágúst
1890 í Winnipeg í Manitoba, sonur Stef-
SystirLollaíValfyrir-
myndinaðMjallhvíti
Fyrirmynd teiknimyndapersónunnar
fæddist í torfbæ á Siglufirði
Kristín Jóhanna Sölvadóttir, systir Lolla
í Val, er fyrirmyndin að Mjallhvíti.