Valsblaðið - 01.05.2012, Qupperneq 90
90 Valsblaðið2012
Hvaða setningu notarðu oftast: „Ég er
ógeðslega svöng“.
Fullkomið laugardagskvöld: Humar-
veisla með stórfjölskyldunni heima í
Mosó og spilakvöld í kjölfarið. Svoleiðis
kvöld eru uppáhöldin mín.
Fyrirmynd þín í fótbolta: Þegar ég var
lítil var það minn hinsti draumur að hitta
David Beckham. Núna held ég þó mikið
upp á Nemanja Vidic og svo hef ég ógeðs-
lega gaman af Christiano Ronaldo. Ég hef
alveg eytt þó nokkrum klukkutímum í að
googla hann og skoða myndir og video.
Draumur um atvinnumennsku í fót
bolta: Atvinnumennskan hjá mér er
næsta skref, mig langar að fara út, spila í
sterkustu deildunum og vinna titla.
Landsliðsdraumar þínir: Fyrsta mark-
miðið er EM í Svíþjóð á næsta ári en hitt
er síðan einfalt, mig langar að vera fasta-
maður í landsliðinu og spila hvern leik
þangað til ég hætti í fótbolta. Ég vil fara
með liðinu á EM, HM og Ólympíuleik-
ana og draumadraumurinn er vinna eitt
slíkt stórmót.
Besti söngvari: Celine Dion, hún er
rugluð.
Besta hljómsveit: U2.
Besta bíómynd: My Sister’s Keeper,
nýjustu Batman myndirnar og Derailed.
Besta bók: Grafarþögn.
Uppáhaldsfélag í enska boltanum:
Manchester United.
Nokkur orð um aðstöðuna á Hlíðar
enda: Algjörlega frábær, af því sem ég
hef séð eru Valur og FH eru í algjörum
sérflokki hvað þetta varðar.
Hvernig viltu sjá Val þróast á næstu
árum: Ég vil að sjálfsögðu sjá liðið ná
hæstu hæðum í öllum greinum, karla og
kvenna, en ég hef virkilega mikla trú á
liðinu sem við stelpurnar erum nú með í
höndunum í fótboltanum. Þetta getur
hæglega orðið næsta gullaldarlið ef allir
halda haus og standa saman. Mig langar
rosalega að sjá þennan hóp blómstra.
Nám: Er á öðru ári í viðskiptafræði í HÍ.
Kærasti: Hann er ófundinn.
Af hverju Valur? Metnaðurinn í klúbbn-
um heillaði mig mikið. Valur er frábær
klúbbur með frábæra stuðningsmenn og
magnaða sögu. Viljinn til að ná árangri er
svo mikill og félagið veitir þér öll þau
verkfæri sem þú þarft til að bæta þig,
þannig að það var mjög auðvelt að segja
já þegar tækifærið bauðst að koma í Val.
Hvernig var tekið á móti þér í Val þeg
ar þú skiptir úr KR: Mér var tekið ein-
staklega vel, bæði af stelpunum í liðinu
og öðrum Völsurum þannig að ég var
mjög fljót að komast inn í hlutina.
Ég er uppalin í Aftureldingu þar sem var
enginn meistaraflokkur kvenna allan þann
tíma sem ég var í yngri flokkum og þar
var venjan bara að klára 2. flokk og hætta
svo. Það var ekki fyrr en ég var komin í
U-19 að ég áttaði mig á því að þetta væri
eitthvað sem ég vildi og gæti gert.
Hver er besti íþróttamaðurinn í fjöl
skyldunni: Margrét Ólafsdóttir, ein af
bestu fótboltakonum sem Ísland hefur
átt, við erum systkinabörn. En í nánustu
fjölskyldu verð ég að nefna mömmu
mína, hún á A-landsleiki í handbolta.
Af hverju fótbolti: Ég byrjaði í fótbolta
þegar ég var 4 ára gömul, systkini mín
voru öll í fótbolta og systir mín að þjálfa
mig á þessum árum. Ég hafði bara svo
rosalega mikinn áhuga á fótbolta og
minnist þess ekki að hafa prófað neinar
aðrar íþróttir fyrir utan frjálsar sem ég
entist engan veginn í enda fannst mér
ekkert varið í eitthvað annað en bolta-
íþróttir. Ég sé þó mikið eftir því að hafa
ekki verið í handbolta líka en þegar ég
var að byrja var enginn handbolti fyrir
stelpur hjá Aftureldingu.
Eftirminnilegast úr boltanum: Bikar-
meistaratitillinn með Val 2011 er klárlega
það sem stendur upp úr hingað til, ásamt
því að hafa komist á lokamót EM með
U-19 2009.
Besti stuðningsmaðurinn: Mennirnir
þrír sem mæta á alla leiki hjá okkur og
öskra okkur áfram sama hvernig gengur.
Erfiðustu samherjarnir: Thelma Björk
getur verið andlega mjög erfið. Tekur
sérstaklega á að vera með henni í reit
enda þrætugjörn með eindæmum.
Eftirminnilegasti þjálfarinn: Gunni
Borgþórs. Hann þjálfaði mig hjá Aftureld-
ingu í 3. og 4. flokki og gerði alvöru lið úr
þeim árgangi. Hann fékk mig svo yfir til
Vals 2010 og er sá þjálfari sem hefur
hjálpað mér hvað mest á mínum ferli.
Stærsta stundin: Ætli það hafi ekki ver-
ið þegar ég var valin fyrst í A-landsliðið.
Athyglisverðasti leikmaður í meistara
flokki kvenna hjá Val: Ég ætla að segja
Laufey Ólafs hérna, bæði í von um að
hún hafi ekki spilað sinn síðasta leik fyr-
ir félagið en líka vegna þess að hún er
einhver magnaðasti leikmaður sem ég
hef kynnst. Hún hefur einhvern x-factor
sem er erfitt að útskýra. Hennar nærvera
fær aðra leikmenn til að spila betur og
hún lyftir liðinu. Frábær karakter innan
vallar sem utan.
Athyglisverðasti leikmaður í meistara
flokki karla hjá Val: Rúnar Már, hann
dró vagninn klárlega í sumar og það
verður gaman að fylgjast með honum því
hann getur farið mjög langt.
Hvernig líst þér á yngri flokkana í fót
bolta hjá Val: Mér líst hrikalega vel á
þá, það eru nokkrir mjög skemmtilegir
árgangar á leiðinni. Ég hef sérstaklega
mikla trú á dúllunum í ’99 árganginum.
Fleygustu orð: Það er í lagi að gera mis-
tök, svo lengi sem maður lærir af þeim.
Mottó: Þetta reddast er svolítið mikið ég.
Við hvaða aðstæður líður þér best: Mér
líður alltaf ótrúlega vel eftir að hafa stað-
ið mig vel í fótboltanum. Það er svo
gaman að uppskera þegar þú veist að þú
hefur virkilega unnið fyrir því. Það er
svo eins þegar gengur illa, það leggst
svakalega þungt á mig.
Framtíðarfólk
Éghefvirkilega
miklatrúáliðinu
Mist Edvardsdóttir er 22ja ára og leikur
knattspyrnu með meistaraflokki